Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn í Fjarðabyggð hafa ákveðið að hefja formlegar meirihlutaviðræður um áframhaldandi samstarf flokkanna á komandi kjörtímabili.
Núverandi meirihluti flokkanna hélt velli í sveitarstjórnarkosningunum. Fulltrúar flokkanna telja því eðlilegt að leita leiða til að halda áfram samstarfi undanfarinna tveggja ára.
Þetta kemur fram í tilkynningu. Í henni segir að viðræður á næstu dögum muni snúa að sameiginlegri framtíðarsýn, verkefnum komandi kjörtímabils og útfærslu nýs málefnasamnings fyrir sveitarfélagið.