Einar Hug Bjarnason lögmaður rekur skaðabótamál núverandi stærsta hluthafa Sýnar gegn fyrrverandi stærsta hluthafa fyrirtækisins. Auk þess að gegna lögmannsstörfum er hann stjórnarformaður fjölmiðlanefndar. Í því hlutverki tekur hann þátt í að kveða upp ákvarðanir í málefnum fjölmiðla þegar nefndinni berast erindi eða kvartanir vegna starfsemi þeirra.
Morgunblaðið greindi frá því í morgun að Gavia Invest hefði stefnt Heiðari Guðjónssyni og eignarhaldsfélaginu Úrsusi vegna kaupa þeirra fyrrnefndu á hlutafé í Sýn fyrir 2,2 milljarða króna. Þar var greint frá því að eigendur Gavia teldu Heiðar hafa haldið eftir upplýsingum um stöðu Sýnar við söluna og jafnframt að Einar Hugi væri lögmaður þeirra.
Gavia Invest er stærsti hluthafinn í Sýn með 18,23% hlut samkvæmt yfirliti á vef Sýnar. Sjötti stærsti hluthafinn er fyrirtækið InfoCapital sem er að stærstum hluta í eigu Reynis Grétarssonar sem á 78% í Gavia Invest.
Hefur engin áhrif á störf mín
Einar Hugi segist hafa lagt sjálfstætt mat á hvort það hefði áhrif á hæfi sitt að taka að sér þetta afmarkaða verkefni.
„Það hefur bara engin áhrif á mín störf sem formaður fjölmiðlanefndar. Sýn á ekki aðild að þessu máli. Þetta mál snýst um viðskipti sem áttu sér stað á árinu 2022 milli tveggja lögaðila. Í þessu máli er ekki á nokkurn hátt fjallað um málefni Sýnar sem fjölmiðils heldur er þarna fyrst og fremst um að ræða skaðabótamál vegna hlutabréfakaupa í félaginu.“
Hann segir vissulega rétt að hann sé að vinna fyrir stærstu hluthafana í Sýn en telur það ekki valda vanhæfi.
Fjölmiðlanefnd þarf meðal annars að taka ákvarðanir um mál sem varða Sýn og aðra fjölmiðla.
Einar Hugi segist ekki hafa tekið þátt í neinum ákvörðunum um fjölmiðla síðan hann tók að sér þetta verkefni fyrir Gavia. Hann telur sig hæfan til þeirra starfa.
„Ég myndi líta svo á en ég myndi bara skoða það sérstaklega ef það kemur upp í framhaldinu meðan þetta mál er í rekstri en eins og staðan er í dag lít ég svo á að ég sé hæfur til þess.“
Keyptu Heiðar út
Eignarhaldsfélagið sem Einar Hugi vinnur fyrir í þessu skaðabótamáli heitir Gavia Invest. Það varð stærsti hluthafinn í Sýn þegar það keypti hlutabréf sem voru í eigu Heiðars Guðjónssonar. Þá greindi Innherjinn á Vísi frá því að meðal eigenda Gavia væru Jón Skaftason, sem áður vann meðal annars fyrir Streng, Reynir Grétarsson, stofnandi Creditinfo, Hákon Stefánsson og Andri Gunnarsson, lögmaður og fjárfestir.
Reynir er nú skráður fyrir 78% hlut í Gavia samkvæmt fyrirtækjaskrá og 97% hlut í InfoCapital. Hákon Stefánsson, stjórnarformaður Sýnar, er einnig stjórnarformaður Gavia Invest, samkvæmt fyrirtækjaskrá og framkvæmdastjóri InfoCapital.
Hákon sendi fjölmiðlanefnd erindi um RÚV fyrir helgi en sagðist ekki gera það sem stjórnarformaður Sýnar heldur sem einstaklingur.