„Það er ekkert fegurra í heiminum þegar kemur að náttúrusýningu eins og almyrkvi á sólu,“ sagði Sævar Helgi Bragason, einnig þekktur sem Stjörnu-Sævar, í Bakaríinu á Bylgjunni.
Mikilvægt sé að nota sólmyrkvagleraugu þegar fólk fylgist með tunglinu færast fyrir sólu þann 12. ágúst. Einnig þurfi að nota sérstakar sólarsíur ef teknar eru ljósmyndir eða horft í gegnum sjónauka.
„Hún er svo óskaplega skær og getur auðvitað valdið skaða á augum ef maður fer ekki það varlega.“ Þá skipti máli að taka niður gleraugun þegar almyrkvinn sjálfur skellur á.
„Rétt fyrir klukkan sex, miðvikudaginn 12. ágúst, þá þarf að taka gleraugun af það augnablik sem tunglið er alveg fyrir sólinni og horfa með berum augum. Annars sér maður ekki almyrkvann.“
Fólk boðið íbúðir sínar í skammtímaleigu
Von er á fjölda skemmtiferðaskipa til landsins vegna almyrkvans og hafa sumir landsmenn leigt íbúðir sínar út til ferðamanna.
„Ég vona að fólk sé spenntara fyrir þessu heldur en kannski peningalegu hliðinni því þetta er svo óskaplega fallegt. Ef fólk er að leigja út húsin sín þá bara fyrir alla muni gera það en alls ekki fara út fyrir slóðina, það eru mestu mistök sem fólk getur gert,“ segir Sævar.
Vísar hann til þess hluta landsins þar sem almyrkvinn verður sjáanlegur en hann mun einungis ganga yfir Vestfirði, Snæfellsnes, höfuðborgarsvæðið og Reykjanesskaga. Utan þessarar slóðar mun einungis sjást deildarmyrkvi þar sem tunglið fer ekki alveg fyrir sólu.
„Sama hvernig viðrar þá er upplifunin inni í almyrkvaslóðinni sem gengur til dæmis yfir höfuðborgarsvæðið, svo miklu, miklu áhugaverðari heldur en nokkurn tímann 99 prósent deildarmyrkvi. Þannig ef fólk ætlar að skella sér í sumarbústað á meðan einhver gistir í húsinu þeirra, leggið leið ykkar inn í slóðina aftur og njótið bara þessarar einstöku sýningar sem þú færð ekki aftur fyrr en eftir 170 ár. Það eru algjör mistök að vera fyrir utan slóðina ef þú getur verið inni í henni.“
Sums staðar búið á örfáum sekúndum
Sævar segir að sólmyrkvinn muni í heildina standa yfir í um rúmar tvær klukkustundir á flestum stöðum á landinu en almyrkvinn sjálfur sjáist í mun styttri tíma.
„Bara frá örfáum sekúndum upp í tvær mínútur og þrettán sekúndur þar sem hann er lengstur. Til dæmis hér á höfuðborgarsvæðinu þá upplifir fólk almyrkvann í kringum eina mínútu. En ef fólk fer til dæmis á Snæfellsnesið eða jafnvel Reykjanesskagann þá er það svona undir eða rétt yfir tvær mínútur og það eru bara tvær gullfallegustu mínútur lífsins.“
Þá sé mikilvægt að fara ekki á salernið á röngum tíma. „Þannig ég hvet alla til þess að vera búin að fara á klósettið fyrir klukkan 17:40 þennan dag.“