Föðurlandið

Björn Bjarnason skrifar:
Ljóð Huldu varð að einu ástsælasta hátíðarljóði þjóðarinnar eftiir að það var frumflutt á Þingvöllum 17. júní 1944. Nú er það bæði flutt til að hylla ættjörðina og til minningar um látna við jarðarfarir.
Unnur Benediktsdóttir Bjarklind (1881–1946), sem orti undir skáldanafninu Hulda, skipar sérstakan sess í íslenskri bókmenntasögu sem fyrsta íslenska skáldkonan á bekk þjóðarskálda. Í ljóðum sínum sameinaði hún ást á íslenskri náttúru, djúpa þjóðernisvitund og næma tilfinningu fyrir sögu og örlögum þjóðarinnar. Þessi einkenni birtast skýrt í ljóðinu Hver á sér fegra föðurland? sem Hulda orti til verðlauna í tilefni af stofnun lýðveldisins árið 1944. Lag Emils Thoroddsens gerði ljóðið að einu ástsælasta hátíðarljóði þjóðarinnar og það var frumflutt á Þingvöllum 17. júní 1944. Nú er það bæði flutt til að hylla ættjörðina og til minningar um látna við jarðarfarir.
Hver á sér fegra föðurland?
Hver á sér fegra föðurland,
með fjöll og dal og bláan sand,
með norðurljósa bjarmaband
og björk og lind í hlíð?
Með friðsæl býli, ljós og ljóð,
svo langt frá heimsins vígaslóð.
Geym, drottinn, okkar dýra land
er duna jarðarstríð.
Hver á sér meðal þjóða þjóð,
er þekkir hvorki sverð né blóð
en lifir sæl við ást og óð
og auð, sem friðsæld gaf?
Við heita brunna, hreinan blæ
og hátign jökla, bláan sæ,
hún uni grandvör, farsæl, fróð
og frjáls - við ysta haf.
Ó, Ísland, fagra ættarbyggð,
um eilífð sé þín gæfa tryggð,
öll grimmd frá þinni ströndu styggð
og stöðugt allt þitt ráð.
Hver dagur liti dáð á ný,
hver draumur rætist verkum í
svo verði Íslands ástkær byggð
ei öðrum þjóðum háð
Svo aldrei framar Íslands byggð
sé öðrum þjóðum háð.
Hér hef ég feitletrað orð sem höfða sterklega til samtímans.
Hulda orti ljóðið á tíma annarrar heimsstyrjaldarinnar. Þá eins og nú er ofmælt að Ísland sé „svo langt frá heimsins vígaslóð“. Við erum í besta falli í jaðri hennar eða jafnvel í miðju komi til átaka á Norður-Atlantshafi.
Lokasetning ljóðsins höfðar beint til þess að ekki megi fella byggðir Íslands undir sameiginlega stjórn ESB í krafti landbúnaðarstefnu sambandsins.
Gleðilega þjóðhátíð! Áfram Ísland!
