Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, segir að engin ákvörðun hafi enn verið tekin um hvort flugvirkjar grípi til verkfallsaðgerða, þrátt fyrir að félagsmenn hafi samþykkt slíkar aðgerðir í könnun.
Hins vegar megi ætla að verkfallsaðgerðir séu raunhæfur valkostur í stöðunni í ljósi þess að félagsmenn hafi gefið grænt ljós á aðgerðir í könnun meðal þeirra í síðustu viku.
Fyrr í dag slitnaði upp úr viðræðum flugvirkja og Icelandair.
Engir aðrir kostir í stöðunni
Að sögn Óskars hafa deiluaðilar fundað tíu sinnum hjá ríkissáttasemjara frá 17. febrúar. Viðræður milli aðila hófust í nóvember áður en deilunni var vísað til embættisins.
„Á þessum tímapunkti er ekkert hægt að fullyrða um aðgerðir. Við höfum haldið tíu fundi hjá ríkissáttasemjara án þess að komast nokkuð áfram og því sjáum við enga aðra kosti í stöðunni en að lýsa viðræðunum árangurslausum og meta stöðuna okkar megin,“ segir Óskar.
Meta stöðuna
Er þá ekki rökrétt að þið skoðið verkfallsaðgerðir fyrst nýlega var kannaður hugur félagsmanna til slíkra aðgerða?
„Menn geta sagt sér það sjálfir að fyrst verið er að spyrja félagsmenn með þessum hætti hlýtur eitthvað að búa þar að baki. Hins vegar hefur engin ákvörðun verið tekin. Við erum fyrst og fremst að fara yfir stöðuna,“ segir Óskar.
Höfnuðu boðinu
Hann segir að flugvirkjum hafi, líkt og flugmönnum, verið boðið að halda viðræðunum áfram fram í miðjan september í fastmótuðu ferli hjá ríkissáttasemjara. Flugvirkjar hafi hins vegar hafnað því boði.
„Það felur ekkert í sér fyrir okkur annað en að draga viðræðurnar á langinn,“ segir Óskar.
