Ekki hefur verið boðað til samningafundar í kjaradeilu flugmanna Icelandair og fyrirtækisins. Þetta staðfestir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari við Morgunblaðið.
Samkvæmt upplýsingum blaðsins eru þó í gangi samtöl og þreifingar á milli samningsaðila, en þær hafa þó ekki leitt til þess að boðað hafi verið til formlegs fundar enn sem komið er. Deilan er sögð þung og erfið og óljóst hvort boðað verði til fundar nú í vikunni.
Vinnudeilan snýst aðallega um kröfur Icelandair um breytt vinnufyrirkomulag flugmanna sem þó krefst ekki meira vinnuframlags frá flugmönnum. Fyrst og fremst er óskað breytinga á því hvernig unnt sé að skipuleggja vinnu flugmanna. Það er einkum til þess að Icelandair geti lagað sig að nýrri flugvélategund, en Icelandair er að skipta út Boeing-flugvélum en taka inn í reksturinn í þeirra stað nýjar Airbus 321 XLR-flugvélar sem eru langdrægari en Boeing-þotur félagsins og skapa þ.a.l. aukin tækifæri. Því er lögð áhersla á að gert verði mögulegt að skipuleggja vinnutíma flugmanna á annan veg en verið hefur.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
Innskráning
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.