Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 23,5% fylgi og bætir við sig tveimur prósentustigum milli mánaða. Flokkurinn hefur aukið fylgi sitt um fjögur prósentustig frá kosningunum fyrir einu og hálfu ári. Fylgið hefur ekki verið meira í þjóðarpúlsi frá því vorið 2023.
Flokkur fólksins tapar rúmu prósentustigi á milli mánaða og mælist aðeins með 4,0% fylgi. Yrðu þetta úrslit kosninga fengi flokkurinn engan þingmann kjörinn.
Fylgi Miðflokksins minnkar
Samfylkingin mælist sem fyrr stærsti flokkurinn. Fylgið er 28,4% og stendur í stað milli mánaða.
Fylgi Miðflokksins dregst saman. Flokkurinn mælist með 17,6%, sem er rúmu prósentustigi minna en í síðasta mánuði. Fylgi flokksins hefur dregist nokkuð saman frá því í lok síðasta árs þegar það mældist yfir 20 prósentum.
Viðreisn mælist með 10,6% fylgi sem er það sama og í síðasta mánuði.
Framsóknarflokkurinn bætir við sig. Alls segjast 6,7% kjósenda styðja flokkinn en voru 5,4% í síðasta mánuði.
49% styðja ríkisstjórnina
Á móti dregur úr stuðningi við Vinstri græna. Flokkurinn mælist inni á þingi í síðustu könnun Gallups með 5,1% en nú er fylgið 4,3%. Þrátt fyrir það fengi flokkurinn einn kjördæmakjörinn þingmann miðað við þessa könnun, en vert er að nefna að mikil óvissa er með fylgi kjördæmakjörinna þingmanna
Sósíalistaflokkurinn mælist með um 2,6% en Píratar 1,9%. Hvorugur þessara flokka næði manni á þing.
Alls segjast 49% aðspurðra styðja ríkisstjórnina, sem er sama hlutfall og í síðasta mánuði. Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna dregst þó saman og mælist 43%.
Leiðrétt: Í myndriti með upphaflegri útgáfu fréttarinnar sagði að Samfylkingin fengi 19 þingmenn. Hið rétta er að flokkurinn fær 21 þingmann (þar af 19 kjördæmakjörna). Þetta hefur verið leiðrétt.