Fasteignamarkaðurinn er rólegur um þessar mundir og seljendum sem lækka ásett verð á íbúðum sínum hefur fjölgað, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS). Erfiðara er að selja dýrar íbúðir en ódýrari. Verst gengur að selja íbúðir í fjölbýli sem eru stærri en 120 fermetrar.
Fólk hefur fært sig yfir í óverðtryggð lán á föstum vöxtum í auknum mæli.
Í skýrslunni kemur fram að fleiri leigjendur búa við íþyngjandi húsnæðiskostnað en áður. Markaðsleiga hefur hækkað umfram lægstu laun frá 2014.