Ekki er búist við því að margir Íslendingar ferðist sérstaklega vestur um haf fyrir HM í fótbolta sem hefst í næsta mánuði. Þeir sem það gera, verða þó flestir á eigin vegum.
Heimsmeistaramótið í fótbolta er haldið í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó og hefst 11. júní. Í fyrsta sinn verða 48 þátttökuþjóðir og leikirnir alls 104. Mikið hefur verið rætt um miðaverð í aðdraganda mótsins og fjallað um að allt að sjö sinnum dýrara verður fyrir hinn almenna stuðningsmann að fylgja sínu liði en á HM í Katar fyrir fjórum árum.
Miðasala fer fram beint í gegnum Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA. KSÍ hefur ekki milligöngu um miða fyrir Íslendinga og samkvæmt þeim forsvarsmönnum ferðaskrifstofa hér á landi sem fréttastofa hefur rætt við er ekki búist við mörgum Íslendingum sem ferðast vestur um haf sérstaklega fyrir mótið.
Ein hafði þó haft milligöngu um miðakaup fyrir nokkur fyrirtæki og einstaklinga - en eftirspurnin sé lítil sem engin samanborið við til dæmis leiki í ensku úrvalsdeildinni.
Eina skiptið sem Ísland hefur komist á HM er í Rússlandi 2018, karlaliðið var með á EM 2016 og kvennalandsliðið hefur verið með á síðustu fimm Evrópumótum. Alltaf eru settar upp sérferðir á stórmót þegar Ísland er að spila, hvort sem er á HM eða EM. Fótboltaáhugi landans er þó mikill og ferðaskrifstofurnar benda á að þegar mótin eru haldin nær okkur er alltaf fjöldi Íslendinga sem sækir leiki.
Ferðalagið í ár er töluvert lengra, og dýrara, en til að mynda á Evrópumót og er því búist við að flestir þeir Íslendingar sem þó fara á HM í sumar, geri það á eigin vegum.