Fjórir voru drepnir og átján særðust þegar Rússar skutu eldflaug að bænum Merefa suðvestur af Karkív í Úkraínu í morgun. Þessu greindi Oleg Synegubov héraðsstjóri frá í dag. Hann sagði að fórnarlömbin væru tveir karlmenn og tvær konur, á aldrinum 41 til 63 ára.
Synegubov sagði að fjölbýlishús, fjórar verslanir og bifreiðaverkstæði hefðu skemmst í árásinni.