Fjallalamb hefur um árabil verið einn af stærstu atvinnurekendunum á Kópaskeri og í Öxarfirði. Frá 2015 hefur byggð í Öxarfirði verið skilgreind brothætt af Byggðastofnun og stofnunin hefur aðstoðað við rekstur Fjallalambs, bæði með hlutafé og lánveitingum. Nýverið ályktaði stjórn Fjallalambs og óskaði eftir að Byggðastofnun afskrifaði lán sem hún veitti fyrirtækinu. Við þeirri bón gat Byggðastofnun ekki orðið, þar sem stofnunina skortir lagaheimild til þess.
„Byggðastofnun er tilbúin að halda áfram stuðningi við félagið Fjallalamb enda hefur orðið viðsnúningur í rekstrinum hjá þeim. Íbúar á svæðinu og aðstandendur félagsins vilja hafa fullan vilja til að halda áfram, það er mjög mikilvægt að það séu allir á sömu blaðsíðu,“ segir Hrund Pétursdóttir, forstöðumaður hjá Byggðastofnun.
Rekstur Fjallalambs í góðu jafnvægi
Rekstur Fjallalambs hefur verið í góðu jafnvægi undanfarin ár og telur Byggðastofnun að hægt sé að byggja á því. Forsvarsmenn Fjallalambs báðust undan viðtali við fréttastofu á þessum tímapunkti en að þeirra sögn er verið að leysa ákveðin mál innan fyrirtækisins sem eru á viðkvæmu stigi. Fregna er að vænta á næstu tveimur vikum frá fyrirtækinu.
Þrátt fyrir að Byggðastofnun hafi ekki getað orðið við beiðni um afskrift lánsins undirstrikar Hrund mikilvægi fyrirtækisins.
„Það er auðvitað þannig að í viðkvæmum byggðarlögum skiptir hvert fyrirtæki og hvert starf mjög miklu máli. Í tilviki Fjallalambs þá er auðvitað verið að tala um grunnstoð í þeirri atvinnugrein sem samfélagið byggir á. Það, eins og annað, skiptir mjög miklu máli í svona viðkvæmu byggðarlagi.“