Áfram verður fundað í kjaraviðræðum Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) og Flugvirkjafélags Íslands (FVFÍ) við Icelandair á fimmtudag. Fundir fóru fram í báðum deilum hjá ríkissáttasemjara í gær.
Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA, segist lítið geta sagt um það sem fram fór á fundinum í gær og hverju sé stefnt að á fimmtudaginn.
„Þetta er á viðkvæmum stað og samtal er í gangi,“ segir hann. Þá bendir hann á að ríkissáttasemjari hafi biðlað til bæði FÍA og Icelandair að tjá sig ekki um stöðu mála í fjölmiðlum.
Óskar Einarsson, formaður FVFÍ, vildi sömuleiðis lítið segja um viðræðurnar en viðurkenndi að þó nokkuð bæri enn á milli. „Við erum með ákveðna þætti sem við þurfum að komast yfir áður en haldið er lengra,“ segir hann.
Enn mögulegt að ná saman
Aðspurður hvort svo langt sé á milli fylkinga að mögulega sé tilgangslaust að funda segir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari að svo sé ekki. Hann áréttar að Ríkissáttasemjari taki við þeim málum sem embættinu beri samkvæmt lögum og bendir á að kjaradeilur eigi í raun ekki í önnur hús að venda. Málið sé enn mjög viðkvæmt en ekki sé enn búið að setja neina í fjölmiðlabann.
Stundum geti deilur verið með þeim hætti að fylkingar sjái ekki tilgang með því að hittast. Svo sé ekki í þessum deilum. „Við erum ekki þar, við erum að finna fleti til að mynda sátt,“ segir Ástráður.