Erlendur ferðamaður sem veiktist alvarlega á Fimmvörðuhálsi í gær var úrskurðaður látinn á vettvangi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi.
Lögreglu barst tilkynning um alvarlega veikan ferðamann fyrir hádegi í gær og þyrla Landhelgisgæslunnar fór á vettvang ásamt björgunarsveitum. „Naut lögregla og sjúkraflutningar liðsinnis björgunarsveita til að komast á vettvang,“ segir í tilkynningunni.
Endurlífgunartilraunir báru ekki árangur.