Erlendur ferðamaður á sjötugsaldri lést á Fimmvörðuhálsi í gær eftir að hafa veikst alvarlega á göngu.
Vísir greindi fyrst frá því í gær að þyrla Landhelgisgæsla Íslands hefði verið kölluð út vegna málsins, eftir að tilkynning barst um meðvitundarlausan göngumann á svæðinu.
Maðurinn var á göngu með syni sínum og hafði farið um sex kílómetra frá Skógum þegar atvikið átti sér stað. Björgunarsveitir aðstoðuðu lögreglu og sjúkraflutningamenn við að komast á vettvang, samhliða útkalli þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar.
Í viðtali Vísis við Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóra hjá Lögreglunni á Suðurlandi, greinir hann frá því að endurlífgun hafi fyrst verið hafin af ferðafólki sem kom að manninum.
Í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi kemur fram að endurlífgunartilraunir á vettvangi hafi ekki borið árangur og var maðurinn úrskurðaður látinn á staðnum.
Ekki hafa fengist frekari upplýsingar um dánarorsök að svo stöddu.