Alþingi samþykkti í gær ný sóttvarnalög. Sóttvarnafrumvarpið sem var lagt fram af Ölmu Möller heilbrigðisráðherra, það var fyrst lagt fram árið 2022 og hefur verið tekið til meðferðar ítrekað áður en það var samþykkt nú. Við afgreiðslu málsins greiddu 33 þingmenn atkvæði með, 7 á móti og 13 sátu hjá.
Helstu breytingarnar felast fyrst og fremst í því að stjórnsýsla sóttvarna er endurskipulögð. sóttvarnalæknir verður skipaður beint af ráðherra og ný farsóttanefnd sett á laggirnar sem leggur til aðgerðir, á meðan núverandi sóttvarnaráð er lagt niður.
Þingmenn Miðflokksins greiddu atkvæði gegn frumvarpinu en þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sátu hjá.
Vildu meiri völd til þingsins
Þingmenn Sjálfstæðisflokks í velferðarnefnd, Sigurður Örn Hilmarsson og Rósa Guðbjartsdóttir, lögðu fram tillögu þar sem lagt var til að skipuð yrði rannsóknarnefnd sem myndi fara yfir aðgerðir stjórnvalda í covid-faraldrinum. Myndi sú rannsókn bæði taka til aðgerða sem voru til þess fallnar að skerða frelsi og ferðir almennings og einnig áhrif ákvarðana á atvinnulíf og efnahagsmál. Sú tillaga var felld.
Helsta gagnrýni stjórnarandstöðunnar á frumvarpið sneri að aðkomu þingsins í sóttvarnarástandi. Kveðið er á um að ráðherra beri að upplýsa velferðarnefnd þingsins um leið og sóttvarnartakmarkanir eru kynntar og er einnig kveðið á um skýrslugjöf til þingsins. Það þótti stjórnarandstöðunni ekki nóg og sögðu að með frumvarpinu sé embættismönnum falið mikið vald, meðal annars að taka íþyngjandi ákvarðanir.

Alþingi.
Harðorð gagnrýni á valdheimildir
Málið hefur þó sætt harðri gagnrýni þar sem bent er á að með henni séu festar í sessi víðtækar heimildir stjórnvalda til inngripa í daglegt líf borgaranna, meðal annars með heimildum með frelsissviptingum, auk fleiri íþyngjandi inngripa. Í þeirri gagnrýni hefur verið bent á að lögin gangi lengra en nauðsynlegt sé og að mikil hætta sé á íþyngjandi beitingu valds.
Sérstaklega hefur verið varað við því að aukið svigrúm ráðherra og sóttvarnalæknis geti raskað jafnvægi milli almannaöryggis og einstaklingsfrelsis. Þá er bent á að skýrari lagarammi tryggi ekki sjálfkrafa aukið aðhald heldur geti einnig styrkt umdeildar heimildir.
Ný ritrýnd rannsókn
Í síðustu viku fjallaði Fréttin um nýja ritrýnda rannsókn á yfir 15.000 bandarískum hjúkrunarheimilum sem sýnir að íbúar sem voru bólusettir gegn COVID-19, voru meiri hættu á að deyja eftir smit samanborið við óbólusett fólk.
Rannsóknin sem greindi 15.022 hjúkrunarheimili í Bandaríkjunum leiddi í ljós að íbúar sem höfðu verið bólusettir gegn COVID voru í meiri hættu á andláti eftir smit samanborið við óbólusetta. Þá hafa tryggingafélög vestanhafs einnig leitt í ljós aukna dánartíðni vegna fjöldabólusetninga.
Bretar með starfandi Covid-rannsóknarnefnd
Fréttin fjallaði einnig um í síðustu viku að Bretar stefni á að hækka greiðslur til þeirra sem hlutu skaða af völdum covid-efnanna og leggur til að bætur verði tvöfaldaðar,
Baroness Hallett, dómari við Hæstarétt Bretlands er formaður Covid-rannsóknarnefndarinnar.
Hún segir að ríkisstjórnin verði að endurbæta greiðslukerfið til fólks sem skaðaðist af völdum bóluefnanna tafarlaust og bætti við að allir sem hlutu skaða ættu að fá „viðeigandi viðurkenningu,“ á skaða sínum.
Skýrslan, sem er 274 blaðsíðna að lengd og fjallar um hvernig bóluefni og lyf eru þróuð, leyfð og afhent, fjórar af af tíu opinberum skýrslum hefur verið gefið út opinberlega.
Það hlýtur því að skjóta skökku við að meirihluti þingmanna á Íslandi hafi hafnað Covid-rannsóknarnefnd, þar sem flest lönd við við berum okkar saman við hafa komið slíkri nefnd á fót.
Þessir þingmenn höfnuðu tillögunni um Covid-rannsóknarnefnd
- Alma D. Möller
- Arna Lára Jónsdóttir
- Ása Berglind Hjálmarsdóttir
- Ásthildur Lóa Þórsdóttir
- Dagbjört Hákonardóttir
- Dagur B. Eggertsson
- Elín Íris Fanndal
- Eydís Ásbjörnsdóttir
- Eyjólfur Ármannsson
- Grétar Mar Jónsson
- Guðmundur Ingi Kristinsson
- Guðmundur Ari Sigurjónsson
- Ingvar Þóroddsson
- Jóhann Páll Jóhannsson
- Jón Gnarr
- Karólína Helga Símonardóttir
- Kristján Þórður Snæbjarnarson
- Kristrún Frostadóttir
- Lilja Rafney Magnúsdóttir
- Logi Einarsson
- María Rut Kristinsdóttir
- Pawel Bartoszek
- Pétur Björgvin Sveinsson
- Ragna Sigurðardóttir
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Rúnar Sigurjónsson
- Sandra Sigurðardóttir'
- Sigmar Guðmundsson
- Sigmundur Ernir Rúnarsson
- Sigurjón Þórðarson
- Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
- Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
- Þórunn Sveinbjarnardóttir