Felldi loks tár þegar and­lát eigin­mannsins var rætt - Vísir

Felldi loks tár þegar and­lát eigin­mannsins var rætt - Vísir

Felldi loks tár þegar and­lát eigin­mannsins var rætt - Vísir

Skýrslutaka yfir Ming Ting hófst upp úr klukkan 10 í morgun, eftir nokkra töf vegna tæknilegra örðugleika. Þegar þessi frétt er skrifuð hefur hún gefið skýrslu í um sex klukkustundir, með hálfrar klukkustundar matarhléi.

Hélt í höndina á dóttur sinni

Í ákæru á hendur henni er því lýst hvernig Ming Ting og Emeric Xavier Mancel eiga að hafa banað dóttur sinni, Catherine Delphine Mancel. Lesa má lýsingar á því hér.

Skýrslutakan hófst á því að Ming Ting var spurð út í atvik næturinnar þegar dóttir hennar og eiginmaður létust. 

Hún sagði meðal annars að hún hefði haldið í hönd dóttur sinnar á meðan eiginmaður hennar stakk hana í hjartað. Hún sagði dótturina hafa viljað deyja en að hún hefði frekar kosið aðra aðferð.

Það vakti athygli viðstaddra hversu róleg Ming Ting virtist, miðað við konu sem sætir ákæru fyrir að myrða dóttur sína. 

Meðal þeirra sem vöktu máls á því var írsk blaðakona frá Irish Times en fjölskyldan var búsett á Írlandi. Mál Ming Ting hefur vakið athygli víðar, til að mynda í Nýju-Kaledóníu, upprunalandi fjölskyldunnar.

Þá vakti það athygli blaðamanns í morgun að Ming Ting gerði enga tilraun til þess að hylja andlit sitt, líkt og sakborningar gera nánast undantekningarlaust þegar þegar þeir ganga inn í dómsal.

„Næst var komið að mér“

Eftir að hafa lýst því hvernig dóttir hennar lést greindi Ming Ting frá framhaldinu. „Næst var komið að mér,“ sagði hún.

Hún hefði farið inn á baðherbergi með eiginmanni sínum, lyft upp bol sínum svo hann gæti stungið hana og bitið í handklæði, svo hún æpti ekki. Því næst hefði eiginmaður stungið hana einu sinni og borið hana fram og lagt í rúmið við hlið dóttur þeirra.

Þá hefði hún verið með skerta meðvitund um nokkurt skeið, þar til að eiginmaður hennar vakti hana og sagði að komið væri að sér.

Tókst ómögulega að svipta sig lífi

Eiginmaður hennar hefði þá haldið í hönd hennar, til stuðnings, og stungið sig tvívegis. Þær upplýsingar hefði hún frá lögreglu.

Einhverjum tíma síðar hefði eiginmaður hennar vakið hana á ný og þá hefði hann rétt henni rafmagnssnúru, sem hann hefði skorið á. Hann hefði beðið hana um að halda í rafmagnssnúruna og hún héldi að hann hefði með því reynt að svipta þau lífi með raflosti. Það hefði ekkert gengið.

Eftir það hefði hann farið inn á baðherbergið og verið mjög veikburða, fallið við og hún hefði ekki haft mátt til að reisa hann við. Að því sögðu brast hún í grát í fyrsta skiptið. Dómari bauð henni þá að taka hlé en hún afþakkaði það.

Eftir að maður hennar lést hefði hún tekið upp hníf, í fyrsta sinn umrætt kvöld, og reynd að stinga sig til bana með honum. Það hefði ekki gengið. Loks hefði hún reynt að stinga hárblásara í samband og fara með hann í sturtu. Það hefði ekki heldur gengið. Loks hefði hún endað á að hringja í mótttöku hótelsins og tilkynna starfsmönnum það sem hafði gerst. Þeir hefðu ekkert skilið fyrr en hún sagði þeim að hún hefði myrt tvo. Hún hefur síðar dregið þá fullyrðingu til baka en hún sagðist hafa gert það til að vekja athygli hótelstarfsmannanna.

Vildi ekki verða „grænmeti“

Þá var hún spurð út í heilsufar eiginmanns hennar og hún sagði hann hafa verið með alvarlegan nýrnasjúkdóm og þurfa að fara í skilun þrisvar í viku, tvær klukkustundir í senn. Það hefði tekið mikið á hann.

Sjúkdómurinn hefði einnig haft mjög slæm áhrif á hann andlega, borið hefði á minnisleysi og hann ætti erfitt með að einbeita sér. Suma daga hefði hann ekki komist út úr húsi. Þá vissi hann að eftir Íslandsferðina myndi hann ekki geta byrjað aftur í skilun og því ætti hann stutt eftir ólifað.

„Hann vildi ekki verða grænmeti, eins og hann orðaði það, vildi ekki vera upp á aðra kominn.“ Hún hefði verið sammála honum um að hann gæti ekki lifað þannig lengur.

Fengu sér sushi, horfðu á sjónvarpið og gengu svo til verka

Ming Ting sagði að í aðdraganda andlátanna hefði fjölskyldan farið út að borða, nánar tiltekið á veitingastaðinn Sushi Train í Tryggvagötu, farið upp á hótelherbergi, horft þar á sjónvarp í nokkrar klukkustundir og svo gengið til verka við að svipta sig lífi. Þetta hefði verið á föstudagskvöldinu 13. júní. Lík dóttur hennar og eiginmanns fundust að morgni 14. júní.

Sækjandi spurði hana þá nánar út í tímasetningar og benti henni á að síðast hefði sést til þeirra á göngum hótelsins, miðað við öryggismyndavélakerfi þess, miðvikudagskvöldið 11. júní.

Ming Ting í Héraðsdómi Reykjavíkur.Vísir/Vilhelm

Hún sagði þá að það gæti verið að þau hefðu frekar farið út að borða á miðvikudagskvöldinu en henni þætti það ósennilegt, þar sem þau hefðu engan mat haft uppi á herberginu, fyrir utan nokkra snakkpoka.

Sækjandi rakti þá að samkvæmt skýrslu réttarmeinafræðings hefði dóttir hennar látist um klukkan 10 á föstudagsmorgninum og eiginmaðurinn í hádeginu, bæði með fjögurra klukkustunda skekkjumörkum. Þannig mætti ætla að liðlega sólarhringur hefði liði frá því að fjölskyldan kom á hótelið og feðginin létust. Fyrsta frétt Vísis af málinu var skrifuð á ellefta tímanum þann 14. júní en þá voru aðgerðir lögreglu enn í gangi á vettvangi.

Skildi eftir bréf til hótelstarfsmanna

Sækjandi málsins varpaði mynd upp á skjá sem sýndi bréf sem var undirritað af eiginmanni Ming Ting. Á því beindi hann því til þess sem bréfið myndi finna að hafa samband við tiltekinn ættingja ef eitthvað skyldi henda fjölskylduna. 

Þá sagði hann viðkomandi að nota debetkortið á bak við hótelpöntunina til þess að greiða fyrir allan kostnað sem orðið hefði. Hótelið væri frábært og starfsfólks þess væri ekki að nokkru leyti ábyrgt fyrir því sem hafði gerst.

Þá kom fram að þær Ming Ting og dóttir hennar hefðu skrifað erfðaskrá að beiðni eiginmanns hennar, sem hefði einnig ritað erfðaskrá. Þau hefðu tekið erfðaskrárnar með til Íslands og póstlagt þær hér á landi.

Ætlar að ljúka verkefnum áður en hún reynir aftur

Þá spurði sækjandi Ming Ting að því hvort hún væri enn í þeim hugleiðingum að svipta sig lífi, hvort hún ætlaði aftur að reyna sjálfsvíg.

„Fyrst þarf ég að ljúka ýmsum verkefnum,“ sagði hún.

Einn dómaranna þriggja ítrekaði þá spurninguna, ætlaði hún að svipta sig lífi? Hún sagði það ekki augljóst, hún væri ekki viss um að hún réði við það. Þá spurði dómarinn hvað hún ætti við þegar hún sagðist þurfa að sinna verkefnum.

„Nafn mannsins míns hefur verið atað auri og mig langar að sanna að sýna fram á að hann hafi verið vænn maður og að það sem hefur verið borið á hann sé ekki rétt. Það væri gott.“ 

Þar vísar hún til málaferla sem varða erfðadeilur eiginmanns hennar og systur hans.

Aðalmeðferðinni er hvergi nærri lokið enda á eftir að taka skýrslur af öllum vitnum. Samkvæmt dagskrá er reiknað með því að aðalmeðferð haldi áfram á þriðjudag og ljúki sama dag. Karl Ingi Vilbergsson, sækjandi málsins, segir í samtali við Vísi að líklega þurfi fleiri daga.

#andlát #felldi #loks #tár #þegar


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262896739d/felldi-loks-tar-thegar-andlat-eiginmannsins-var-raett

📰 Aðrar fréttir

„Það var ótrúlegt að sjá hversu margir voru með ChatGPT opið í þingsal“ - DV
📅 12.06.2026 👁️ 0
„Það var ótrúlegt að sjá hversu margir voru með ChatGPT opið í þingsal“ - DV
Einar Jóhannes, oddviti Miðflokksins í Kópavogi, ræðir gervigreind, spjaldtölvuvæðingu, djúpfalsanir og gagnsæi í Kópavogsbæ í Gervigreindarklúbbnum. ...
Finnst hart að væna náttúruverndarsamtök um upplýsingaóreiðu
📅 12.06.2026 👁️ 0
Finnst hart að væna náttúruverndarsamtök um upplýsingaóreiðu
Davíð Arnar Stefánsson, varaformaður Landverndar, segir gagnrýni Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hafa komið á óvart...
Danir hafa valið besta danska lag sögunnar – og það er ekki með Kim Larsen
📅 12.06.2026 👁️ 0
Danir hafa valið besta danska lag sögunnar – og það er ekki með Kim Larsen
Lagið Lyse nætter með söngkonunni Alberte Winding var valið besta danska lag allra tíma í sérstakri kosningu danska ríkisútvarpsins.Þessi ljúfa ballað...
Friðarsamningur sagður liggja fyrir
📅 12.06.2026 👁️ 0
Friðarsamningur sagður liggja fyrir
Síðdegis var haft eftir ónafngreindum embættismanni í Hvíta húsinu að helstu atriði í samningnum væru að Íranar hættu kjarnorkuáætlun sinni og eyddu ö...
David Hockney: King leads tributes to late British art 'giant'
📅 12.06.2026 👁️ 0
David Hockney: King leads tributes to late British art 'giant'
The King has joined the art world in paying tribute to David Hockney, one of the UK's most important and popular artists, who has died at the age of 8...
Njósnarar enn í lög­sögunni - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 1
Njósnarar enn í lög­sögunni - Vísir
Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi hjá Landhelgisgæslunni, staðfestir í samtali við Vísi að skipið sé enn í íslensku efnahagslögsögunni en greint v...
Le Monge leggst að bryggju á Akureyri
📅 12.06.2026 👁️ 0
Le Monge leggst að bryggju á Akureyri
Næststærsta herskip franska flotans lagðist að bryggju á Akureyri í dag. Skipið ber nafnið Le Monge og er flokkað sem mælingar- og prófunarskip. Í því...
Hitinn náði yfir tuttugu stig - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 1
Hitinn náði yfir tuttugu stig - Vísir
„Veðrið hefur verið svolítið tvískipt. Blíða hérna hjá okkur fyrir sunnan og vestanlands. Veðrið er almennt bjart og hlýtt, hitinn er búinn að ná yfir...
Stórslasaðist á­tján ára eftir ölvaðan öku­mann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 0
Stórslasaðist á­tján ára eftir ölvaðan öku­mann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ - Vísir
Ryan Reynolds fór í viðtal í vikunni hjá tímaritinu GQ með samstarfsfélaga sínum og meðeiganda í Wrexham AFC, Rob McElhenney, þar sem þeir voru spurði...
Máni baunar á meðvirka „sjálfumglaða hægrisinnaða hælasokka“: „Ekki gert samfélaginu neinn greiða“ - DV
📅 12.06.2026 👁️ 0
Máni baunar á meðvirka „sjálfumglaða hægrisinnaða hælasokka“: „Ekki gert samfélaginu neinn greiða“ - DV
Samfélagsrýnirinn Máni Pétursson segir hlaðvarpara á hægri vængnum meðvirka með Sjálfstæðisflokknum þegar kemur að umbótum á starfsumhverfi einkarekin...
Hafna því að draga þjónustuskerðingu við Grímsey til baka - DV
📅 12.06.2026 👁️ 1
Hafna því að draga þjónustuskerðingu við Grímsey til baka - DV
Vegagerðin hefur hafnað beiðni Akureyrarbæjar um að draga til baka fækkun ferða Grímseyjarferjunnar Sæfara. Kemur raunar fram í minnisblaði Vegagerðar...
Bakkakotsmenn vilja efla óboðið eftirlit á fósturheimilum
📅 12.06.2026 👁️ 0
Bakkakotsmenn vilja efla óboðið eftirlit á fósturheimilum
Menn sem dvöldu á vistheimilinu Bakkakoti sem börn segja mikilvægt að auka óboðað eftirlit á vistheimilum. Brýnt sé að sjá til þess að börn njóti stuð...
Trump accuses Iran of leaking agreement details that 'bear no relation to the truth'
📅 12.06.2026 👁️ 1
Trump accuses Iran of leaking agreement details that 'bear no relation to the truth'
US President Donald Trump says Iranian leaks of details of an alleged deal to end the war have "nothing to do with the terms that were agreed to" and ...
Myndaveisla: Veðrið leikur við í­búa höfuð­borgar­svæðisins - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 0
Myndaveisla: Veðrið leikur við í­búa höfuð­borgar­svæðisins - Vísir
Það er bannað að gleyma sólarvörninni á svona dögum.Vísir/Vilhelm Þessi börn eiga framtíðina fyrir sér í sjósundi.Vísir/Vilhelm Það þarf ekki alltaf a...
Sir Jeffrey Donaldson sex abuse trial: Prosecutor says defendant is 'the only one telling lies''
📅 12.06.2026 👁️ 0
Sir Jeffrey Donaldson sex abuse trial: Prosecutor says defendant is 'the only one telling lies''
Sir Jeffrey Donaldson has been told he has been sinful and deceitful, and is the only person telling lies at his sex abuse trial.The former Democratic...
DV gerir könnun um hvernig Íslendingar munu kjósa 29. ágúst - DV
📅 12.06.2026 👁️ 0
DV gerir könnun um hvernig Íslendingar munu kjósa 29. ágúst - DV
Laugardaginn 29. ágúst næstkomandi fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem spurt verður: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ ...
„Af hverju má ég vera í Hvera­gerði en Grind­víkingar ekki í Grinda­vík?“ - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 0
„Af hverju má ég vera í Hvera­gerði en Grind­víkingar ekki í Grinda­vík?“ - Vísir
Um þrjátíu Grindvíkingar auk nokkurra þingmanna Suðurkjördæmis mættu á mótmæli á Austurvelli í hádeginu sem boðuð höfðu verið með skömmum fyrirvara í ...
Fisherman dies after falling into sea in Gran Canaria
📅 12.06.2026 👁️ 1
Fisherman dies after falling into sea in Gran Canaria
A fisherman has died after falling into the sea while fishing from a remote cliffside area in the north of Gran Canaria this morning (Friday).The inci...
Horfa til hagræðingar í Ráðhúsinu
📅 12.06.2026 👁️ 2
Horfa til hagræðingar í Ráðhúsinu
Stýrihópur um hagræðingu í borgarkerfinu lítur fyrst til Ráðhúss Reykjavíkur, til dæmis breytinga á skrifstofu borgarstjóra, í aðgerðum sínum. „Við ho...
I have a duty to stay on, says PM as he justifies defence spending decisions
📅 12.06.2026 👁️ 0
I have a duty to stay on, says PM as he justifies defence spending decisions
Sir Keir Starmer has told the BBC he has a "duty" to stay on as prime minister as he sought to justify his decisions on defence spending.Speaking the ...
Kemur harkalega niður á ferðaþjónustunni
📅 12.06.2026 👁️ 2
Kemur harkalega niður á ferðaþjónustunni
Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar segist hafa fyrst heyrt af ákvörðun Vegagerðarinnar, um að taka ferjuna Baldur tímabundið úr áætlu...
Sagðist ekki geta útskýrt áverka á hálsi dóttur sinnar
📅 12.06.2026 👁️ 1
Sagðist ekki geta útskýrt áverka á hálsi dóttur sinnar
Athugði: Hér að neðan eru opinskáar lýsingar á ofbeldi sem gætu valdið óhug.Ming Ting Mancel, sem er ákærð fyrir að bana dóttur sinni á Edition-hóteli...
Embættismaður í Hvíta húsinu: Íran samþykkir að hætta með kjarnorkuáætlun sína
📅 12.06.2026 👁️ 0
Embættismaður í Hvíta húsinu: Íran samþykkir að hætta með kjarnorkuáætlun sína
Ónafngreindur embættismaður í Hvíta húsinu hefur gefið helstu fjölmiðlum upplýsingar um innihald samnings Bandaríkjanna og Íran sem er í nokkru ósamræ...
Hittust átta sinnum til að úr­skurða um risaeðlubeinin - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 1
Hittust átta sinnum til að úr­skurða um risaeðlubeinin - Vísir
Fyrr í dag var greint frá ákvörðun borgarráðs um að afþakka risaeðlubein, nánar tiltekið þríhyrnu (triceratops), sem samtökin Leap Lab vildu gefa borg...
Guðni Már svaraði símtali konu: „Þú verður að lifa í þrjú ár í viðbót“ - DV
📅 12.06.2026 👁️ 1
Guðni Már svaraði símtali konu: „Þú verður að lifa í þrjú ár í viðbót“ - DV
Séra Guðni Már Harðarson hefur verið prestur í Lindakirkju í 18 ár og verið afar vinsæll í starfinu þar. Hann yfirgefur söfnuð sinn fljótlega, að minn...
Watch: Four UFO videos newly declassified by US
📅 12.06.2026 👁️ 1
Watch: Four UFO videos newly declassified by US
The eyewitness footage shows bright orbs in the sky over an undisclosed location in the northeastern US.
Facebook lá niðri
📅 12.06.2026 👁️ 2
Facebook lá niðri
Samfélagsmiðlarnir Facebook, Messenger og Instagram lágu niðri fyrr í dag. Miðlarnir, sem allir eru í eigu tæknirisans Meta, virðast þó vera komnir af...
Bólar ekkert á á­lyktun ungra mið­flokks­manna - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 2
Bólar ekkert á á­lyktun ungra mið­flokks­manna - Vísir
Landsþing Ungra miðflokksmanna var haldið á Blönduósi 18.-19. apríl en þetta var fyrsta slíka þingið sem hreyfingin hefur staðið að. Í auglýsingu fyri...
Defence row exposes tensions over how to keep UK safe
📅 12.06.2026 👁️ 2
Defence row exposes tensions over how to keep UK safe
Defending the realm is supposed to be a prime minister's first priority. Yet Sir Keir Starmer is accused by two departing defence ministers of failing...
Kviknaði í raf­tæki - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 1
Kviknaði í raf­tæki - Vísir
Töluverður viðbúnaður var í Elliðaárdalnum. Þrír eða fjórir slökkviliðsbílar og lögregla voru á vettvangi, að sögn fréttamanns á svæðinu. Inni í húsin...
Ís­lenskt brenni­vín hlaut gull­verð­laun - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 2
Ís­lenskt brenni­vín hlaut gull­verð­laun - Vísir
IWSC hefur verið haldin frá árinu 1969 og er talin meðal virtustu alþjóðlegu keppna á sviði vína og sterkra drykkja. Á hverju ári eru þúsundir vara fr...
Brenni­vín hlaut gull­verð­laun - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 2
Brenni­vín hlaut gull­verð­laun - Vísir
IWSC hefur verið haldin frá árinu 1969 og er talin meðal virtustu alþjóðlegu keppna á sviði vína og sterkra drykkja. Á hverju ári eru þúsundir vara fr...
Samgönguáætlun sam­þykkt á Al­þingi - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 1
Samgönguáætlun sam­þykkt á Al­þingi - Vísir
Fréttir bárust af því í morgun að samkomulag hefði náðst milli þingflokkanna um þinglok og má því búast við að þingmál fari næstu daga að renna í gegn...
Rússland er ekki að leita að átökum segir æðsti hershöfðingi NATO
📅 12.06.2026 👁️ 1
Rússland er ekki að leita að átökum segir æðsti hershöfðingi NATO
Rússland er ekki að leita að átökum segir æðsti hershöfðingi NATO Fréttin12. júní 2026ErlentLeave a Comment Alexus G. Grynkewich, yfirmaður herafla NA...
„Símafrí í skólanum leysir ekki það sem gerist fyrir utan skólann“
📅 12.06.2026 👁️ 1
„Símafrí í skólanum leysir ekki það sem gerist fyrir utan skólann“
Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur kynnt til umsagnar drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum. Samkvæmt drögunum verður notkun...
Driver arrested after running from police in Lanzarote
📅 12.06.2026 👁️ 2
Driver arrested after running from police in Lanzarote
A 50-year-old man has been arrested in Arrecife after allegedly attempting to run from Local Police officers and resisting arrest during a routine sto...
Hákon krónprins boðar forföll á ríkisráðsfund vegna heilsu Mette-Marit
📅 12.06.2026 👁️ 2
Hákon krónprins boðar forföll á ríkisráðsfund vegna heilsu Mette-Marit
Hákon krónprins tók ekki þátt í ríkisráðsfundi í Noregi í dag vegna veikinda Mette-Marit eiginkonu sinnar. Vika er síðan tilkynnt var að krónprinsessa...
Stórstjarnan reif sig úr og reif hljóðnema blaðamanns í trylltri sigurvímu - DV
📅 12.06.2026 👁️ 2
Stórstjarnan reif sig úr og reif hljóðnema blaðamanns í trylltri sigurvímu - DV
Leikarinn Timothée Chalamet fagnaði stórkostlega eftir nauman 107-106 sigur New York Knicks á San Antonio Spurs í fjórða leik úrslitakeppninnar í NBA ...
Rannsóknir á mansalsmálum hafa margfaldast á Íslandi á nokkrum árum
📅 12.06.2026 👁️ 2
Rannsóknir á mansalsmálum hafa margfaldast á Íslandi á nokkrum árum
Stærsta mansalsrannsókn sem komið hefur upp á Íslandi hefur nú staðið yfir í meira en tvö ár. Þetta er rannsóknin á meintum brotum víetnamska viðskipt...
Rannsóknir á mansalsmálum margfaldast á Íslandi á nokkrum árum
📅 12.06.2026 👁️ 1
Rannsóknir á mansalsmálum margfaldast á Íslandi á nokkrum árum
Stærsta mansalsrannsókn sem komið hefur upp á Íslandi hefur staðið yfir í meira en tvö ár. Þetta er rannsóknin á meintum brotum víetnamska viðskiptama...
Listamaðurinn David Hockney látinn
📅 12.06.2026 👁️ 2
Listamaðurinn David Hockney látinn
Einn áhrifamesti listamaður samtímans, Bretinn David Hockney, er látinn. Hann lést í gær á heimili sínu 88 ára að aldri og skilur eftir sig maka sinn ...
Dregur um­deildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 1
Dregur um­deildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka - Vísir
Í minnisblaði sem Gabbard sendi út í gær segir að höfundar skýrslnanna tveggja, sem eru frá mars 2023 og janúar 2025, hafi hunsað vísbendingar og sönn...
Trump segir birt samningsdrög ekki rétt
📅 12.06.2026 👁️ 1
Trump segir birt samningsdrög ekki rétt
Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir að efnisatriði samkomulags við Íran sem voru birt í írönskum fjölmiðlum í morgun hafi ekkert að gera með þá s...
Viðhald brúarinnar yfir Jökulsá á Fjöllum dregst á langinn
📅 12.06.2026 👁️ 1
Viðhald brúarinnar yfir Jökulsá á Fjöllum dregst á langinn
Viðhald og málningarvinna við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum hefur tekið lengri tíma en til stóð. Verkið hófst 26. maí og átti að ljúka 16. júní. Mikil ...
Sævar biður fólk um að anda með nefinu: Brottfararstöðvar hvorki óeðlilegar né ómannúðlegar - DV
📅 12.06.2026 👁️ 1
Sævar biður fólk um að anda með nefinu: Brottfararstöðvar hvorki óeðlilegar né ómannúðlegar - DV
„Hér er verið að stíga eðlilegt og nauðsynlegt skref til að tryggja lög og reglu í íslensku samfélagi,“ segir Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður í ...
Stað­festa synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 2
Stað­festa synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ - Vísir
Hann fékk nýlega synjun frá Sjúkratryggingum um greiðsluþátttöku vegna læknismeðferðar erlendis sem gæti lengt lífslíkur hans og var vísað til þess að...
Facebook liggur niðri - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 2
Facebook liggur niðri - Vísir
Þar kemur fram að fólk eigi í vandræðum með að tengjast samfélagsmiðlinum bæði í símaappi og í tölvu. Þá virðist fólk eiga í erfiðleikum með að skrá s...
Facebook lá niðri - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 1
Facebook lá niðri - Vísir
Þar kom fram að fólk ætti í vandræðum með að tengjast samfélagsmiðlinum bæði í símaappi og í tölvu. Fólk átti í erfiðleikum með að skrá sig inn í forr...
Eldur kviknaði í raftæki í Toppstöðinni
📅 12.06.2026 👁️ 1
Eldur kviknaði í raftæki í Toppstöðinni
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi fjölda bíla í útkall í Elliðaárdal upp úr klukkan eitt í dag. Tilkynning hafði borist um reyk við Toppstöðina. L...
Eigi von á tæp­lega 200 þúsund gestum - Vísir
📅 12.06.2026 👁️ 1
Eigi von á tæp­lega 200 þúsund gestum - Vísir
Skipin tvö bera heitin MSC Virtuosa og Norwegian Star. Virtuosa er stærsta skip sem hefur komið til Ísafjarðar en það kom í sína fyrstu heimsókn til Í...