Tónlistarmaðurinn Harry Styles renndi laumulega upp eftir að hafa tekið eftir að hann var með opna buxnaklauf á síðustu tónleikum sínum á Together, Together tónleikaferðalaginu á Wembley leikvanginum á laugardaginn.Í myndskeiði á samfélagsmiðlum má sjá Styles falla á hné á meðan hann flutti lagið As It Was af miklum krafti og tók síðan eftir að hann var að flassa áhorfendur. Hann renndi rennilásnum upp og tók sér nokkrar sekúndur í viðbót til að ná andanum á meðan tugþúsundir aðdáenda öskruðu.
Fataklúður Harry Styles á sviðinu - 90 þúsund sáu næstum „pakkann“