Heildarmat fasteigna fyrir árið 2027 nemur 17,8 þúsund milljörðum sem er 2,1% hækkun frá því í fyrra.
Að raunvirði hefur fasteignamat hins vegar lækkað milli ára. Kólnun á fasteignamarkaði veldur því að fasteignaverð hefur ekki haldið í við verðbólgu og fasteignamat hækkar því minna nú en áður.
Fasteignamat Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar fyrir árið 2027 birtist í dag.
Þú getur skoðað fasteignamat á þinni eign hér.
Matið tekur ekki til eigna í Grindavík þar sem fasteignamat verður kynnt síðar í júní, að því er segir í tilkynningu HMS.
Stofnunin bíður þess að niðurstaða liggi fyrir á Alþingi um að halda fasteignamati óbreyttu þar milli ára til að birta nýtt mat á fasteignum í sveitarfélaginu.
Fasteignamat fjölbýla á höfuðborgarsvæðinu stendur nánast í stað á milli ára. Þvert á tegundir íbúðarhúsnæðis hækkar fasteignamat þar um eitt prósent en það skrifast mest á verðhækkanir á sérbýlum.
Sé litið til ólíkra landshluta er hækkun fasteignamats er mest á Vestfjörðum. Þar hefur fasteignamat hækkað um 4,6%. Í Bolungarvík nemur hækkunin 10,2% og er það mest allra sveitarfélaga.
Atvinnueignir og sumarhús hækka meira en íbúðir
Á landsvísu hækkar fasteignamat íbúða um 1,2% á milli ára en lækkar um 3,8% að raunvirði. Atvinnueignir og sumarhús hækka þó talsvert meira eða um 4,8 og 4,7% og eru nær því að halda í við verðbólgu en íbúðarhúsnæði.
Iðnaðarhúsnæði hækkar mest af atvinnueignum, eða um 5,5%. Verslunarhúsnæði, skrifstofur og geymslur hækka hins vegar minna.
Mikil verðhækkun hefur orðið á seldum sumarhúsum síðustu ár sem hefur hækkað fasteignamat þeirra. HMS gerir ráð fyrir því að verðhækkunin sé knúin áfram af eftirspurn.