Sex manna hópur sem átti flug frá Akureyri til Amsterdam í morgun var skilinn eftir vegna ölvunar þriggja í hópnum.
akureyri.net greinir frá því að upplýsingarnar hafi verið staðfestar og að þetta hafi verið gert að ósk flugfélagsins Transavia sem þau stefndu á að fljúga með.
Nokkur töf varð á brottför vélarinnar vegna þessa, þó ekki mikil, en uppákoman vakti athygli annarra farþega enda mikil ölvun í flugi sjaldgæf í seinni tíð.