Farþegar verða fluttir frá borði skemmtiferðaskipsins Hondius á mánudaginn samkvæmt upplýsingum frá spænska innanríkisráðuneytinu. Átta manns eru ýmist með staðfest hantaveirusmit eða talin hafa smitast af veirunni.
Hondius siglir nú frá Grænhöfðaeyjum til Kanaríeyja. Ráðgert er að skipið komi til hafnar á Tenerife á laugardaginn. Áhöfn og farþegar verða um borð í skipinu til mánudags eða þar til flugvélar sem flytja fólkið burt lenda á eyjunum.
Argentínska heilbrigðisráðuneytið ætlar að rannsaka sýni úr nagdýrum í borginni Ushuaaia í Argentínu. Hantaveiran getur borist úr nagdýrum í menn. Hondius lagði úr höfn í Ushuaaia 1. apríl.
Vísindamenn í Argentínu telja hugsanlegt að hollensk hjón hafi smitast af veirunni við fuglaskoðun á ruslahaug áður en þau komu um borð í skemmtiferðaskipið. Þau gætu þó hafa smitast í Chile eða Úrúgvæ áður en þau komu til Argentínu.
Hjónin eru látin, auk manns sem einnig var farþegi á skemmtiferðaskipinu.
Alls voru 88 farþegar og 59 manna áhöfn af 23 þjóðernum á skipinu þegar það lét úr höfn í Argentínu.
Fréttin hefur verið uppfærð. Í fyrstu var fullyrt að átta væru um borð með staðfest eða grunað smit. Hið rétta er að enginn þessara átta er enn í skipinu.