Sjómannafélag Íslands boðar ótímabundið verkfall bátsmanna og háseta á skipum Eimskips frá hádegi mánudaginn 25. maí. Formaður samninganefndar farmanna segir engan gang í kjaraviðræðunum við Eimskip.
Farmenn boðuðu fyrst verkfall í apríl en Eimskip taldi það ólögmætt. Verkfallið var blásið af og deilunni vísað til ríkissáttasemjara 9. apríl.
„Þetta er búið að vera þrautaganga og ekkert verið að gerast í því sem við viljum ræða við þá þannig við sjáum því miður ekki aðra leið heldur en að boða vinnustöðvun á skip Eimskipafélagsins,“ segir Jónas Garðarsson, formaður samninganefndar farmanna.
„Ekki ósvipað og virðist vera að gerast hjá Icelandair“
Jónas segir helstu ágreiningsefnin milli Sjómannafélagsins og Eimskipafélagsins vera starfsöryggi íslenskra sjómanna hjá Eimskipafélaginu, sem er að hluta skráð í Færeyjum.
„Þetta er nú pínu sérkennilegt því að áhafnirnar eru skráðar á einhver skúffufyrirtæki í Færeyjum og eru því með önnur skattskilyrði en á Íslandi. Það er nú hluti af málinu. Það hefur ekki tekist að loka því á svipuðum nótum og hefur verið gert undanfarin ár,“ segir Jónas.
„Síðan hafa verið ákvæði í samningnum um starfsöryggi íslenskra sjómanna sem núverandi Eimskipafélagsins eru ekki til umræðu um. Þeir eru búnir að setja hluta af sínum skipum í erlend fyrirtæi þar sem önnur laun gilda. Það er ekki ósvipað og virðist vera að gerast hjá Icelandair í dag, þannig að þarna er nú fyrirmyndin.“