Karlmaður á áttræðisaldri fannst látinn í tjaldi í Biskupstungum á Suðurlandi í gær. Kona sem var með honum í tjaldinu var flutt þungt haldin á gjörgæsludeild.Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi. Í tilkynningunni segir að um hádegisbil í gær hafi lögreglu borist tilkynning um tvo meðvitundarlausa einstaklinga í tjaldi á tjaldsvæði í Biskupstungum. Lögregla og sjúkralið hafi þegar verið send á vettvang.
Fannst látinn í Biskupstungum