Föngum sem vísað verður úr landi á grundvelli nýrra laga um fullnustu refsingar munu ekki halda áfram afplánun í heimalandi sínu, samkvæmt Rögnu Bjarnadóttur fangelsismálastjóra.
Undirbúningur fyrir brottvísun tíu erlendra fanga er hafinn. Brottvísunarferlið hefst um leið og lögin, sem Alþingi samþykkti á mánudag, taka gildi. Heimilt verður að veita erlendum föngum sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi reynslulausn þegar einn þriðji hluti refsitímans er liðinn. Þeim verður þá tafalaust vísað úr landi og þeir sæta endurkomubanni eftir það. Aðeins föngum með lítil eða engin tengsl við Ísland verður vísað brott.
Ragna segir að við forgangsröðun fanga verði fyrst og fremst horft til þess hvenær einstaklingur hefur afplánað þriðjung refsitímans. Þó geti spilað inn í myndina hvert á að senda viðkomandi, það geti til dæmis verið flóknara að senda fólk utan Evrópu.
Hún segir að þessi breyting hafi mikil áhrif á fangelsin.
„Þetta eru tugir fangarýma sem munu losna á gildistíma þessara laga og fyrir okkar litla fangelsiskerfi, þar sem við erum með um 180 pláss, þá er þetta hlutfallslega mjög stór hluti rýmanna sem losnar.“
Fangelsin séu yfirfull og því mikilvægt að losa um rýmin þannig að hægt sé að kalla fólk inn í afplánum af löngum boðunarlistum.