Fluglitakóði fyrir Bárðarbungu hefur verið hækkaður upp í gulan.
Þetta gerði Veðurstofan nú laust fyrir klukkan eitt eftir miðnætti, í kjölfar mikillar skjálftahrinu sem hófst í norðanverðri öskju eldstöðvarinnar í kvöld og virðist enn færast í vöxt.
Skjálfti af stærðinni 4,8 varð þar kl. 20.14.
Alls hafa mælar Veðurstofu numið fleiri en 250 jarðskjálfta síðustu sex klukkustundir, þar af ellefu yfir þremur að stærð. Gosóróa hefur ekki orðið vart.
Gulur litur þýðir samkvæmt skilgreiningu Veðurstofu að eldstöðin sýni merki um virkni, umfram venjulegt ástand.
Virðist enn kröftugri
Í tilkynningu frá Veðurstofu segir að hrinan sé ein sú kröftugasta síðan síðustu eldsumbrot urðu í Bárðarbungu á árunum 2014 til 2015 og eldgos varð í Holuhrauni.
Hrinan þyki svipuð annarri hrinu sem varð í öskjunni í janúar á síðasta ári, en að svo virðist sem nú sé hún enn kröftugri.
Sú hrina þótti þá sú mesta sem vart hefði orðið í eldstöðinni frá aðdraganda gossins árið 2014.
Talin sú öflugasta
Síðast gaus úr eldstöðvakerfi Bárðarbungu sumarið 2014. Hafa vísindamenn séð þess skýr merki undanfarin ár að hún búi sig undir annað gos.
Eldstöðin, sem talin hefur verið sú öflugasta á Íslandi, hefur þó áður skolfið svo um munaði án þess að það endaði með gosi.
