Michelin Nordic stjörnurnar verða kynntar í dag með pompi og prakt í tónleikasalnum í Tívolí í Kaupmannahöfn, þar sem athygli alls matargeirans beinist að því hvaða veitingastaðir hljóta eftirsóttu stjörnurnar að þessu sinni. Fyrir marga er þetta einn stærsti viðburður ársins í norrænum veitingaheimi, enda geta Michelin-stjörnur skipt sköpum fyrir orðspor, aðsókn og framtíð veitingastaða.
„Það er alltaf gaman að hitta vini og samstarfsfólk frá Norðurlöndunum á viðburði sem þessum. Spennan magnast og ég hvet alla Íslendinga til að fylgjast vel með framvindunni síðar í dag,“ segir Þráinn Freyr Vigfússon, eigandi ÓX, sem er staddur í Kaupmannahöfn og verður á staðnum þegar stjörnurnar verða kynntar.
Þess má geta að ÓX hlaut grænu Michelin-stjörnuna í fyrra og sína fyrstu Michelin-stjörnu árið 2022.
Litla rauða bókin sem breytti veitingaheiminum
Fáir leiðarvísar í heiminum bera jafnmikla vigt og Michelin-handbókin, þótt upphaf hennar hafi verið mun jarðbundnara en margir gera sér grein fyrir. Handbókin á rætur að rekja til Frakklands árið 1889, þegar bræðurnir André og Édouard Michelin stofnuðu dekkjafyrirtæki sitt í Clermont-Ferrand. Upphaflega var litla rauða bókin hugsuð sem hjálpartæki fyrir ökumenn, með kortum, upplýsingum um dekkjaskipti, eldsneytisstöðvar og gistimöguleika, allt í því skyni að hvetja fleiri til ferðalaga og þar með auka sölu á bílum og dekkjum.
Árið 1926 voru fyrstu Michelin-stjörnurnar veittar
Smám saman þróaðist Michelin-handbókin þó í allt annað og meira. Á þriðja áratug síðustu aldar fór hún að leggja sífellt meiri áherslu á veitingastaði, leynilegir eftirlitsmenn komu til sögunnar og árið 1926 voru fyrstu Michelin-stjörnurnar veittar. Fimm árum síðar var hið þekkta kerfi með einni, tveimur og þremur stjörnum innleitt og síðan þá hefur Michelin orðið eitt áhrifamesta gæðamerki veitingageirans á heimsvísu.
Seinna í dag verður sú saga skrifuð áfram þegar nýjar Michelin-stjörnur fyrir Norðurlöndin verða kynntar við hátíðlega athöfn í tónleikasal Tívolí. Auk stjarnanna verða þar einnig veittar Bib Gourmand-viðurkenningar og sérstök verðlaun, en helstu nöfn norrænnar matargerðar verða á staðnum þegar niðurstöðurnar líta dagsins ljós.
Mun Ísland fá sinn fyrsta tveggja stjörnu Michelin-stað?
Margir telja líklegt að Ísland eignist í dag sinn fyrsta veitingastað með tvær Michelin-stjörnur, annaðhvort ÓX eða Moss, auk þess sem Hosiló gæti hlotið sína fyrstu stjörnu. Stóra spurningin er hvort Gísli Matt sé þegar kominn á radarinn hjá Michelin fyrir Ylju? Og hvað með North á Akureyri? Verður mælt með þeim?
Áhugasamir geta fylgst með viðburðinum hér klukkan fjögur að íslenskum tíma og klukkan sex að dönskum tíma.

