Landsréttur hefur heimilað leigusala í Vestmannaeyjum að bera út leigjanda sinn eftir heilt ár af vanskilum, en áður hafði héraðsdómur hafnað kröfunni. Úrskurðurinn féll í gær.
Málið snerist um leigusamning sem aðilar gerðu með sér í september árið 2022. Þar var tekið fram að leiga yrði 180 þúsund krónur á mánuði en tæki síðar breytingum samkvæmt samkomulagi aðila.
Aðila greindi svo á um framhaldið. Leigusali taldi að leigan hefði í september 2023 hækkað upp í 250 þúsund krónur. Leigjandi hafi greitt þá fjárhæð þar til í apríl 2025. Síðan hafi ekki frekari leigugreiðslur borist og því hafi leigusali ekki haft um annað að velja en að rifta leigusamningi í október á síðasta ári vegna vanskila.
Leigjandinn taldi að leigan hefði ekki tekið breytingum. Þvert á móti hefði leigjandinn ítrekað ofgreitt leigufjárhæð og þar með átt innistæðu vegna meintrar ofgreiðslu. Því hafi leigusala ekki verið heimilt að rifta samningnum enda um engin vanskil að ræða.
Leitaði leigusalinn til Héraðsdóms Suðurlands eftir úrskurði um að bera mætti leigjandann út. Dómari Héraðsdóms tók fram að til að hægt sé að fallast á útburð þurfi umráðaréttur leigusala að vera ljós og réttmæti kröfu hans auðsannað. Hér væri um að ræða ágreining milli aðila um ýmis atriði varðandi leigu á fasteigninni, þá einkum um fjárhæð leigunnar. Þar með væri ekki víst hvort að útburður væri réttmætur og varhugavert að heimila slíkt. Kröfu leigusalans um útburð var því hafnað.
Leitaði leigusalinn þá til Landsréttar en þar taldi dómari ljóst að leigjandi hefði ekki borgað leigu síðan í apríl árið 2025. Samkvæmt samningi aðila hafi frá upphafi verið gert ráð fyrir því að leigan skyldi breytast samkvæmt síðara samkomulagi og óumdeilt sé að frá september 2023 fram til apríl 2025 hafi leigjandinn borgað 250 þúsund krónur í leigu. Taldi dómari skýringu leigjandans um að þarna hafi verið um ofgreiðslu að ræða „afar ólíkindaleg og í málinu er ekkert komið fram sem styður hana“.
Sannað þótti af fyrirliggjandi gögnum að samkomulag hafi náðst um að leiga hækkaði í 250 þúsund krónur á mánuði og þar með hafi leigjandi gerst sekur um vanskil þegar hann hætti að greiða fyrir ári síðan. Væri því ekki varhugavert að aðfaragerð næði fram að ganga.
Leigusala er því heimilt að fá leigjanda sinn borinn út með beinni aðfaragerð ásamt öllu sem leigjandanum tilheyrir. Eins þarf leigjandinn að greiða leigusalanum 500 þúsund krónur í málskostnað.