Jackson Wild-verðlaunin eru verðlaun sem eru veitt árlega þeim sem hafa þótt skara fram úr í kvikmyndagerð sem snýr að náttúru, vísindum og náttúruvernd. Jackson Wilson-samtökin hófu í ár samstarf með viðburðinum Hollywood Climate Summit þannig í ár er tilnefnt í bæði heimildarmyndaflokki og flokki leikinna mynda.
Tilnefningar til verðlaunanna í ár voru kynntar í vikunni en verðlaunahátíðin fer síðan fram 10. nóvember í Los Angeles. Heimildarmyndin Um tímann og vatnið, eða Time and Water á ensku, í leikstjórn verðlaunaleikstjórans Söru Dosa er tilnefnd í þremur flokkum.
Myndin er tilnefnd fyrir bestu handritaskrif, besta þul og í flokknum Pláneta í krísu. Handritshöfundar myndarinnar keppa í fyrstnefnda flokknum meðal annars við heimildarmyndagoðsögnina Werner Herzog og heimildarmynd hans, Ghost Elephants.
Andri Snær keppir sem þulur myndarinnar við tvö stór nöfn í flokki bestu þula. Annars vegar Barack Obama, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, sem er þula Netflix-heimildarþáttaseríunnar Our Oceand: Indian Ocean og hins vegar við Hollywood-leikarann Ryan Reynolds sem er þulur heimildarmyndarinnar Animal Oddballs: Terrible Kids.
„Ég fæ tilnefningu sem þulur myndarinnar en tveir aðrir tilnefndir eru kunnuglegir og báðir með ensku að móðurmáli. Barack Obama og Ryan Reynolds. Ég verð nú að segja að Ragnheiður Steindórs eigi þakkir skildar fyrir raddþjálfun!“ segir Andri Snær um tilnefningu á Facebook.
Um tímann og vatnið verður frumsýnd í Háskólabíói þann 27. ágúst næstkomandi og kemur síðan í sýningar hjá Smárabíói og Bíó Paradís.