Einnig fjöllum við um málefni Konukots sem nú er staðsett í Ármúla. Lögregla var kölluð til vegna atviks þar í síðustu viku. Við ræðum við sviðsstjóra velferðarsviðs hjá Reykjavíkurborg, sem segir lýsingar fyrirtækjaeigenda um ófremdarástand í götunni koma á óvart þar sem reksturinn hafi heilt yfir gengið vel að hennar mati.
Einnig heyrum við í goðsögninni Bubba Morthens sem heillaði aðdáendur sín upp úr skónum á tvennum tónleikum í Laugardalshöll um helgina sem þykja hafa lukkast afar vel.
Í sportinu verður svo fjallað um veikindi danska fótboltamannsins Christians Eriksen sem hneig niður í annað sinn á ferlinum í gær.