Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúð­kaupinu - Vísir

Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúð­kaupinu - Vísir

Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúð­kaupinu - Vísir

Berglind Ósk starfar sem fatahönnuður og rekur merkið Bosk. Árni Kristinn er leiðsögumaður og stefnir á nám í guðfræði í haust. Hjúin eru búin að vera saman í fjögur ár en þau hittust fyrst á 17. júní 2022 og byrjuðu mjög fljótt saman eftir fyrstu kynni.

Blaðamaður ræddi við þau um einstakt sveitabrúðkaup þeirra, ástina, brúðkaupsfötin og fleira.

Árni og Berglind áttu draumadag í Viðey.Aðsend

Hvenær og hvernig trúlofuðust þið?

Við trúlofuðumst 20. október 2024. Árni náði að plata mig í að við værum að fara að aðstoða Kristófer mág hans að undirbúa fyrir afmælisveislu sem hann ætlaði að halda á gistiheimilinu Sel, sem er rekið af foreldrum Árna. 

Ég í blindni trúi því að sjálfsögðu og mæti tilbúin til að hjálpa, nema hvað að þá voru þau öll búin að plana gistingu á hótel Geysi og ég sú eina sem vissi ekkert. 

Árni var búin að plana í langan tíma að biðja mín þarna og það var yndislegt að vera umkringd fjölskyldunni, en hann fékk líka mömmu mína og pabba til þess að koma og áttum við yndislega kvöldstund saman í góðum mat og drykk.

Árni bað Berglindar árið 2024.Aðsend

Hvað voruð þið búin að vera lengi að skipuleggja stóra daginn?

Við fórum að plana af alvöru fyrir rétt rúmlega ári. Við bókuðum Viðeyjarstofu í maí 2025 og svo allt annað sem þurfti að panta og bóka í kjölfarið.

Veðrið lék við gesti í Viðey 20. júní.Aðsend

Hvernig var brúðkaupsdagurinn?

17. júní hófst með morgunmat og undirbúningi fyrir kaffiboðið sem var eftir hjónavígsluna, síðan komu vinir okkar og vinkonur og við vorum með GMT (gera okkur til) partí í sitt hvoru herberginu. Það var ekkert smá dýrmætt að eiga þessa stund með fólkinu okkar fyrir athöfnina.

Karítas Óðinsdóttir söng í kirkjunni, Kristín Þórunn gaf okkur saman og það var ekki þurrt auga í kirkjunni eftir athöfnina! Eftir á héldum við kaffiboð á Seli þar sem við skáluðum saman og borðuðum sætindi með gestunum okkar. Eftir allt þetta áttum við Árni huggulega stund í pottinum þar sem við drukkum eina freyðivín og horfðum á HM í spennufalli.

Freyðivín í pottinum ásamt góðum rakamaska og HM í spennufalli. Aðsend

Þann 20. júní vorum við aðeins rólegri fyrir deginum og gerðum okkur til saman á heimili okkar, Elma Rún kom og farðaði mig og Sól kom til að aðstoða mig við dressið. Við hittum Villa og Fjölni niðri á höfn og fórum saman út í Viðey og eftir það vorum við bara að njóta.

Sissó grín-gaf okkur saman í einni fallegustu athöfn sem menn hafa orðið vitni af, aftur ekki þurrt auga á staðnum, en við vorum úti með Esjuna í bakgrunni og eftir það hófust veisluhöld, frábær matur frá Flóru veitingaþjónustu og mögulega besta veður sem hægt var að hugsa sér, sem við að sjálfsögðu pöntuðum með miklum fyrirvara.

Gleðin var við völd í Viðey.Aðsend

Voruð þið með einhverja viðburði dagana í kringum brúðkaupið?

Við vorum kannski ekki beint með viðburði í kringum brúðkaupið en við ákváðum snemma að við vildum gifta okkur í Mosfellskirkju í Grímsnesi og svo vildum við halda veisluna í Viðey. 

Mosfellskirkja er lítil sveitakirkja sem er rétt hjá bænum þar sem Árni ólst upp á, en mamma hans er jarðsett þar og þetta var okkar leið til þess að hafa hana með okkur á brúðkaupsdaginn. 
Mosfellskirkja á sérstakan stað í hjörtum brúðhjónanna.Aðsend

Við vildum halda stressi og tímapressu í kringum daginn í algjöru lágmarki svo við ákváðum að splitta þessu í tvennt, giftingin sjálf 17. júní og veislan var svo 20. júní. Með því náðum við lengja gleðina og stuðið í kringum það að giftast hvort öðru.

Hjónin náðu sannarlega að njóta þess að giftast hvor öðru.Aðsend

Voruð þið sammála í skipulaginu?

Já við vorum oftast sammála. Við grínumst mikið með að við hefðum verið að hnakkrífast yfir hvaða lög yrðu sungin í kirkjunni, en það var kannski það helsta sem við rökræddum á milli, hvaða Bon Iver lag skyldi vera sungið þegar ég gengi inn. Við vorum samt fljót að leysa úr þeirri deilu enda oftast mjög samstíga.

Hjónin voru frekar samstíga í öllu skipulagi.Aðsend

Hvað fannst ykkur mikilvægast í skipulaginu?

Okkur fannst mikilvægt að hafa góða yfirsýn yfir kostnað á öllu og þá helst mælum við með að skjóta vel yfir í kostnaðaráætluninni, búast við að allt sé dýrara en það svo er. Þá fær maður ekki leiðinlegt peningasjokk eftir á.

Hjúin mæla með að gera frekar ráð fyrir meiri kostnaði en minni svo það komi ekki sjokk eftir á.Aðsend

Hvaðan sóttuð þið innblástur?

Við höfum farið í nokkur alveg frábær vinabrúðkaup síðustu ár og það var 100 prósent innblástur fyrir okkur, gott að eiga gott fólk að sem hefur gert þetta áður og gat gefið góð ráð varðandi skipulag og fjárhagsáætlun og svona praktíska hluti. 

Annars get ég alveg viðurkennt að ég eyddi ófáum kvöldum á TikTok að skoða hvað fólk væri að gera, fá hugmyndir af hlutum sem ég vildi gera og kannski líka sjá hvað mig langaði alls ekki að gera. Það er rosa mikill óþarfi sem er oft í kringum brúðkaup!

Hópurinn siglir inn í Viðey. Berglind lærði ýmislegt af TikTok, þar á meðal hvað hún vildi ekki gera.Aðsend

Hvað stendur upp úr?

Það er mjög erfitt að velja hvað stendur upp úr, allt var eitthvað svo fullkomið og fallegt. Ég gæti nefnt stundina þar sem Sissó lætur okkur festa flugu á þæft hjarta í stað þess að setja upp hringa í lok athafnarinnar í Viðey þar sem við settum þá upp í kirkjunni þrem dögum áður. 

Það var virkilega falleg og óvænt stund, við vissum ekki af þessu og höfðum treyst honum í blindni fyrir að halda fallega athöfn, sem hann og gerði.

Sissó vinkona hjónanna lét þau festa flugu á þæft hjarta í stað þess að setja upp hringa í lok athafnarinnar.Aðsend

Sáu einhverjir um veislustjórn og voru skemmtiatriði?

Já aldeilis! Villi Neto og Fjölnir Gísla voru veislustjórar og þeir eru svo miklir fagmenn, þetta hefði ekki getað verið betra! Þeir bjuggu til lag um sögu okkar Árna, héldu utan um allar fallegu ræðurnar og skemmtilegu leikina sem fólkið okkar bauð okkur upp á og voru almennt bara ótrúlega fyndnir. 

Vert er að minnast á að vinkona okkar, Rebecca Scott Lord, skrifaði litla erótíska skáldsögu um fyrstu kynni okkar Árna og það sátu allir límdir við hlustir. Fjórir kaflar, í brúðkaupsveislu og þau voru öll að hlusta!
Gestir hlustuðu ásamt brúðhjónunum á erótíska skáldsögu um fyrstu kynni hjónanna.Villi Neto

Var eitthvað sem kom ykkur á óvart?

Hvað það er ótrúlega gaman að gifta sig, við værum til í að gera þetta aftur! En vonandi kemur nú ekki til þess.

Brúðkaup er gjarnan einn eftirminnilegasti dagur í lífi fólks. Aðsend

Hvað voru margir gestir?

Úff, við hefðum auðveldlega geta boðið 200 manns en vegna stærðar á salnum þurftum við að fækka upprunalega gestalistanum allsvakalega og enduðum á að vera með áttatíu manns í veislunni sem var bara fullkominn fjöldi. 

Við náðum að vera eitthvað með öllum og svo var extra gaman að flest öll höfðu þau hist í gæsunar og steggjunar partýunum okkar.

Gestirnir voru farnir að þekkjast vel þegar það kom að brúðkaupinu.Aðsend

Hvernig gekk að velja brúðkaupsfötin og hvaðan sóttirðu innblásturinn fyrir það?

Árni fékk sér sérsaumuð jakkaföt í góðu skosku tweed-i og var með bolo bindi sem vinkona okkar Rebekka Ashley fann út í Kaupmannahöfn fyrir hann.

Árni í sérsaumuðum jakkafötum.Aðsend

Ég fékk vinkonu okkar fatahönnuðinn Sól Hansdóttir til þess að sauma á mig kjól og aukahluti ásamt því að ég saumaði partýkjólinn og mamma mín prjónaði á mig jakka. 

Ég vildi ekki endilega vera í hefðbundnum brúðarkjól og við Sól spjölluðum lengi og vel um hvernig þetta ætti að vera, því ég vildi líka að kjóllinn væri hennar hönnun.

Ég elska að vera í lögum af fötum (e. layers) og þá datt okkur í hug að hafa nokkur mismunandi lög af flíkum sem hægt væri að klæða upp og niður og væri þá líka hægt að nota það áfram eftir brúðkaupið. Síðan kíkti ég til hennar til London og þá negldum við niður loka pælinguna og fundum til efni, en við völdum fjögur til fimm mismunandi efni.

Mig langaði líka að bæta við smá lit inn í lúkkið og mér fannst rauður meika mikið sens, svo jakkinn sem mamma prjónaði var rauður ásamt því að tabi skórnir mínir voru rauðir.

Sól Hansdóttir hannaði kjólinn með Berglindi og móðir Berglindar prjónaði rauðan jakka.Aðsend

Þar sem við vorum með tvo daga þá nýtti ég tækifærið og klæddi kjólinn upp með mismunandi fylgihlutum. Fyrir 17. júní prjónaði ég peysu til að vera í yfir kjólinn, fann slör á nytjamarkaðnum á Hvammstanga fimm dögum fyrir og var í hvítum Kalda skóm sem ég fann í Rauða krossinum, „iconic thrift find“. 

Berglind glæsileg í kjólnum og rauðum Tabi skóm. Hún skipti svo yfir í partý kjól og hvíta Kalda skó.Aðsend

20. júní var ég svo í Sól Hansdóttir dressinu, partýkjólnum um kvöldið og að sjálfsögðu með hvíta bosk tösku.

Berglind heklaði líka peysu yfir kjólinn.Aðsend

Ertu með eitthvað gullið ráð fyrir verðandi hjón sem eru að skipuleggja brúðkaup?

Já kannski bara að allt í kringum brúðkaup og það sem tilheyrir á að vera ykkar, það þarf ekki að fylgja einhverjum hefðum frekar en þið viljið og að þetta er dagurinn YKKAR! 

Því er mikilvægt að fá gott fólk í allar stöður svo þið getið notið í botn og ekki þurft að pæla neitt í skipulagi og þess háttar.

Berglind segir mikilvægt fyrir hjón að muna að þetta sé dagurinn þeirra. Því er gott að hafa gott fólk í skipulaginu.Aðsend

Hvernig er tilfinningin að lenda eftir svona veislu?

Léttir, þakklæti og ójarðnesk tilfinning að finna fyrir hvað maður er elskaður og elskar mikið, bæði á milli okkar Árna en líka ástin sem við fundum frá fólkinu okkar.

Ástin var alltumlykjandi.Villi Neto
#erótísk #fyrstu #kynni #lesin #saga


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262906163d/erotisk-saga-um-fyrstu-kynni-lesin-upp-i-brud-kaupinu

📰 Aðrar fréttir

Flugfreyja hjá Icelandair vill að flugdólgur greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
📅 07.10.2026 👁️ 0
Flugfreyja hjá Icelandair vill að flugdólgur greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært mann fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn loftferðum. Í ákæru segir að brotin hafi verið framin í flugi Ice...
Boots sold in $8.9bn deal to Canadian billionaire family
📅 07.10.2026 👁️ 0
Boots sold in $8.9bn deal to Canadian billionaire family
The sale of the High Street chain was announced on Wednesday.
Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin - Vísir
Ásgeir var í viðtali við fréttastofu spurður hvernig fyrirtæki og sveitarfélög gætu staðið við loforð um að hækka verð og gjaldskrár ekki umfram 2,5 p...
„Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
📅 07.10.2026 👁️ 1
„Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
„Það gengur ótrúlega vel hjá mér og nýju kærustunni minni, sambandið er frábært og við pössum svo vel saman. Eina vandamálið er að hún er kannski syst...
Einn frægasti líkamsræktaráhrifavaldur heims fluttur í skyndi á sjúkrahús vegna hjartavandamála
📅 07.10.2026 👁️ 1
Einn frægasti líkamsræktaráhrifavaldur heims fluttur í skyndi á sjúkrahús vegna hjartavandamála
Joey Swoll, einn þekktasti líkamsræktaráhrifavaldur heims, tilkynnti að hann hafi verið fluttur í skyndi á sjúkrahús á laugardagsmorgun vegna hjartava...
Flugfreyja hjá Icelandair vill að aldraður læknir greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
📅 07.10.2026 👁️ 1
Flugfreyja hjá Icelandair vill að aldraður læknir greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært mann fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn loftferðum. Samkvæmt frétt Vísis er ákærði íslenskur læknir á nír...
Krefst skýringa á því hvers vegna annað eigi að gilda um Aþenu en önnur íþróttafélög í Reykjavík - „Hvar eru þau gögn?“
📅 07.10.2026 👁️ 1
Krefst skýringa á því hvers vegna annað eigi að gilda um Aþenu en önnur íþróttafélög í Reykjavík - „Hvar eru þau gögn?“
Töluvert hefur verið deilt um aðstæður körfuboltafélagsins Aþenu í Efra-Breiðholti. Brynjar Karl Sigurðsson þjálfari og einn helsti forvígismaður féla...
Sjúkt dýraklám fannst hjá Andrew Tate – Sýndi manneskjur í samförum við tvær dýrategundir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sjúkt dýraklám fannst hjá Andrew Tate – Sýndi manneskjur í samförum við tvær dýrategundir
Áhrifavaldurinn Andrew Tate, sem er grunaður um kynferðisbrot og var framseldur til Bretlands, var með dýraklám í símanum sínum. Hann tók einnig upp k...
Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tón­list í pólitískum á­róðri - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tón­list í pólitískum á­róðri - Vísir
Sverrir er einn þekktasti tónlistarmaður landsins og situr á þingi fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi. Hann tók sæti sem varaþingmaður fyrir Víði Rey...
Gera þarf kennara að stórstjörnum
📅 07.10.2026 👁️ 1
Gera þarf kennara að stórstjörnum
Einn helsti sérfræðingur OECD í Pisa-prófunum telur að Íslendingar geti bætt sig verulega með því að sýna kennurum og menntun meiri virðingu. Hann seg...
Nóbelsverðlaun fyrir að skilja að sameindir – markaði tímamót í lyfjaframleiðslu
📅 07.10.2026 👁️ 0
Nóbelsverðlaun fyrir að skilja að sameindir – markaði tímamót í lyfjaframleiðslu
Efnafræðingarnir Henri Kagan frá Frakklandi og Kenso Soai frá Japan fengu í morgun Nóbelsverðlaunin í efnafræði fyrir að uppgötva aðferð til að aðskil...
Geta ekki hafnað viðurkenningu á staðgöngumæðrun
📅 07.10.2026 👁️ 1
Geta ekki hafnað viðurkenningu á staðgöngumæðrun
EFTA-dómstóllinn komst í dag að þeirri niðurstöðu að íslensk stjórnvöld gætu hafa brotið gegn rétti barns með því að viðurkenna það ekki sem barn föðu...
Ru­bio hafi stað­fest varnar­skuld­bindingar gagn­vart Ís­landi - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Ru­bio hafi stað­fest varnar­skuld­bindingar gagn­vart Ís­landi - Vísir
Heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hingað til lands lauk í gær eftir fundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og...
Breyti mynd­böndum af börnum að borða og dansa í barnaníðs­efni - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Breyti mynd­böndum af börnum að borða og dansa í barnaníðs­efni - Vísir
Guðný var til viðtals í Bítinu en fyrr í vikunni var greint frá því að tilkynnt um kynferðisbrot til lögreglu á fyrri árshelmingi hafi ekki verið flei...
Bein út­sending: Kennarar boða til tíðinda - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Kennarar boða til tíðinda - Vísir
Í tilkynningu frá KÍ segir að þetta sé í fyrsta sinn sem sambandið leggi fram sína sýn á þennan hátt.  Þar er einnig skrifað að íslenskt menntakerfi s...
Five arrested for inciting racial hatred outside Jewish group's headquarters, says Met
📅 07.10.2026 👁️ 0
Five arrested for inciting racial hatred outside Jewish group's headquarters, says Met
The Met Police say a "spontaneous protest" was staged outside the office of the Board of Deputies.
Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu - Vísir
Áður hefur verið greint frá því að tugir manna hafi verið settir í sóttkví í Síberíu í Rússlandi eftir að starfsmaður rannsóknarstofu sem hefur það að...
France protests: Use of stun grenades suspended
📅 07.10.2026 👁️ 0
France protests: Use of stun grenades suspended
France has halted the use of stun grenades after a 15-year-old boys hand was blown off during student protests.
Kona stungin til bana við mat­vöru­verslun í Malmö - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Kona stungin til bana við mat­vöru­verslun í Malmö - Vísir
Árásin átti sér stað í Bellevuegården-hverfi í Malmö um klukkan tíu í morgun að sænskum tíma, að því er kemur fram í frétt sænska ríkisútvarpsins. Kon...
Man who murdered ex-partner after his prison release is jailed
📅 07.10.2026 👁️ 0
Man who murdered ex-partner after his prison release is jailed
Robert Sabat is given a 17-year-minimum jail term for the fatal stabbing of his former partner.
Rob Burrow would be 'laughing but proud' about knighthood - Sinfield
📅 07.10.2026 👁️ 0
Rob Burrow would be 'laughing but proud' about knighthood - Sinfield
Sir Kevin Sinfield is knighted by the Prince of Wales at Windsor Castle.
Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin - Vísir
Ásgeir var spurður um stöðu kjarasamninga og afstöðu Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, til sambands launa og verðbólgu að loknum kynningarfundi Seðlab...
Sagði upp fimm konum þegar hún gaf honum úrslitakosti
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sagði upp fimm konum þegar hún gaf honum úrslitakosti
Leikarinn Michael Douglas lætur allt flakka í nýrri sjálfsævisögu, One Helluva Ride.Hann segir meðal annars frá upphafi sambands hans og eiginkonu sin...
Katrín Lóa opnar sig um óhugnanlega upplifun í Liverpool
📅 07.10.2026 👁️ 1
Katrín Lóa opnar sig um óhugnanlega upplifun í Liverpool
Katrín Lóa Kristrúnardóttir varð fyrir alvarlegri áreitni á bar í Liverpool á Englandi um helgina, þegar hún sagði dyraverðinum hvað gerðist vildi han...
Sambandið með nýju kærustunni frábært – „Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sambandið með nýju kærustunni frábært – „Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
„Það gengur ótrúlega vel hjá mér og nýju kærustunni minni, sambandið er frábært og við pössum svo vel saman. Eina vandamálið er að hún er kannski syst...
Getur tekið heilu kynslóðirnar að ná jafnvægi eftir sameiningu
📅 07.10.2026 👁️ 1
Getur tekið heilu kynslóðirnar að ná jafnvægi eftir sameiningu
Það getur tekið heilu kynslóðirnar að sníða vankantana af sameiningu sveitarfélaga og ágreiningsefnin geta verið afar fjölbreytt, segir Eva Marín Hlyn...
Sex at­vinnu­lausir um hvert laust starf - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sex at­vinnu­lausir um hvert laust starf - Vísir
Þróunin á vinnumarkaði var meðal þess sem Seðlabankinn fjallaði um á kynningarfundi í morgun eftir að peningastefnunefnd ákvað að halda meginvöxtum ób...
500 krónur mun kosta að aka yfir nýja Ölfusárbrú
📅 07.10.2026 👁️ 1
500 krónur mun kosta að aka yfir nýja Ölfusárbrú
Um 80 manns vinna við smíði Ölfusárbrúarinnar og er verkið töluvert á undan áætlun. Brúin verður um tvö þúsund tonn að þyngd.Það er allt á fullu við b...
Tékkland tekur ekki þátt í Eurovision
📅 07.10.2026 👁️ 1
Tékkland tekur ekki þátt í Eurovision
Tékkneska ríkisútvarpið tilkynnti í dag að Tékkland verði ekki meðal þátttakenda í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, eða Eurovision, á næsta ári...
Hefur áhyggjur af því að félög sem sömdu ekki í gær reyni að heimta meira
📅 07.10.2026 👁️ 1
Hefur áhyggjur af því að félög sem sömdu ekki í gær reyni að heimta meira
Hagkerfið er byrjað að kólna; hagvöxtur minnkar og atvinnuleysi eykst, og von er til þess að verðbólga fari minnkandi á næsta ári þar sem áhrif olíuve...
Police rescue young woman from sea in Playa de las Américas
📅 07.10.2026 👁️ 1
Police rescue young woman from sea in Playa de las Américas
National Police officers have rescued a 24-year-old woman who was struggling to stay afloat in the sea off Playa de las Américas in South TenerifeThe ...
Raflína í Moldóvu nefnd eftir Trump
📅 07.10.2026 👁️ 1
Raflína í Moldóvu nefnd eftir Trump
Ný raflína sem tengja á Moldóvu við Rúmeníu verður nefnd eftir Donald Trump Bandaríkjaforseta og mun bera nafnið „Trump Liberty Line“.Bandaríkin leggj...
Bein út­sending: Á­skoranir á norður­slóðum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Á­skoranir á norður­slóðum - Vísir
„Norðurslóðir standa nú frammi fyrir töluverðum áskorunum. Loftslagsbreytingar eru að endurmóta vistkerfi með áður óþekktum hraða, á sama tíma og auki...
Samfylking og Framsókn ræða meirihlutamyndun í Suðurnesjabæ
📅 07.10.2026 👁️ 1
Samfylking og Framsókn ræða meirihlutamyndun í Suðurnesjabæ
Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn í Suðurnesjabær eiga í óformlegum samtölum um myndun nýs meirihluta. Meirihluti Samfylkingar og D-listans sprakk ...
Banda­rískir her­menn í út­göngu­banni eftir morð - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Banda­rískir her­menn í út­göngu­banni eftir morð - Vísir
Devin Jacob Ballard, tuttugu ára liðþjálfi í bandaríska hernum, er grunaður um að hafa orðið Önna Yagi, 39 ára japanskri konu, að bana á hóteli í borg...
Plans to limit peak-season flight prices in the Canary Islands
📅 07.10.2026 👁️ 1
Plans to limit peak-season flight prices in the Canary Islands
Temporary price caps on flights between the Canary Islands and mainland Spain are being considered to help residents facing soaring fares during Chris...
Glap­ræði að hafna væntan­legri launa­hækkun - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Glap­ræði að hafna væntan­legri launa­hækkun - Vísir
Í gær undirritaði Breiðfylkingin, sem samanstendur af Starfsgreinasambandinu, Eflingu, Samiðn og Byggiðn, undir framlengingu kjarasamninga. Aðspurð hv...
Brynhildur fagnaði 26 árum í Sykursalnum
📅 07.10.2026 👁️ 2
Brynhildur fagnaði 26 árum í Sykursalnum
Áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaugsdóttir fagnaði 26 ára afmæli sínu í Sykursalnum í Grósku.Hún hélt heljarinnar búningapartí og var klædd sem poppdí...
Vin­sældirnar skipti miklu máli fyrir arf­leifð Johns Snorra - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Vin­sældirnar skipti miklu máli fyrir arf­leifð Johns Snorra - Vísir
Heimildarmynd um hinstu för íslenska fjallgöngugarpsins Johns Snorra upp á tind fjallsins K2 að vetri til árið 2021 kom út á dögunum á streymisveitu A...
Segja bók um Guðmund Elíasson vera furðuverk uppfullt af rangfærslum – Systkinum hans fækkað úr fimm í þrjú
📅 07.10.2026 👁️ 2
Segja bók um Guðmund Elíasson vera furðuverk uppfullt af rangfærslum – Systkinum hans fækkað úr fimm í þrjú
Þau Örn Ólafsson, Ingibjörg Ólafsdóttir og Pjetur Hafstein Lárusson gera alvarlegar athugasemdir við nýja bók um Guðmund Elíasson myndhöggvara. Bókin ...
Christa Pike framdi annan hrottalegan glæp í fangelsinu
📅 07.10.2026 👁️ 2
Christa Pike framdi annan hrottalegan glæp í fangelsinu
Christa Pike, hinn dauðadæmdi fangi í Tennessee sem lifði af aftökutilraun í lok síðasta mánaðar, er vöknuð úr dái. Ekki eru allir á einu máli um hvað...
Kjara­bar­átta kennara bitni á námi barnanna - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Kjara­bar­átta kennara bitni á námi barnanna - Vísir
„Það vakti verðskuldaða athygli í upphafi árs þegar Inga Sæland, nýr mennta- og barnamálaráðherra, gekk vasklega fram með aðgerðir til að bæta íslensk...
Ex-bankers jailed for rigging rates have convictions quashed
📅 07.10.2026 👁️ 2
Ex-bankers jailed for rigging rates have convictions quashed
Jay Merchant, Jonathan Mathew, Philippe Moryoussef, Alex Pabon, Colin Bermingham had their convictions overturned by the Court of Appeal.
Sól­veig Anna segir glap­ræði að segja upp samningum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Sól­veig Anna segir glap­ræði að segja upp samningum - Vísir
Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. Seðlabankastjóri sér ekki fram á vaxtalækkun fyrir áramót og segir skammsýni að legg...
Átta særð í hnífaárás í pólskum skóla
📅 07.10.2026 👁️ 2
Átta særð í hnífaárás í pólskum skóla
Átta hið minnsta eru særð eftir hnífaárás í borginni Ostrołęka í Póllandi í morgun. Samkvæmt frétt pólska ríkisútvarpsins eru fimm hinna særðu á barns...
Lækna-Tómas og Ár­mann skemmtu sér á safninu - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Lækna-Tómas og Ár­mann skemmtu sér á safninu - Vísir
Það var líf og fjör á þessari tvöföldu sýningaropnun. Sigurður Guðjónsson sýnir Hulu, seiðmagnað myndbandsverk sem er tekið í einni samfelldri, sextíu...
Fjögur börn meðal ní­tján látinna í á­rásum á af­mælis­degi Pútíns - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Fjögur börn meðal ní­tján látinna í á­rásum á af­mælis­degi Pútíns - Vísir
Auk þeirra látnu eru að minnsta kosti sextíu aðrir sárir eftir árásir næturinnar, að sögn úkraínskra yfirvalda. Börnin fjögur voru á meðal þrettán man...
Leigubremsan „aug­ljós­lega mjög heimsku­leg“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Leigubremsan „aug­ljós­lega mjög heimsku­leg“ - Vísir
Ásgeir lét ummælin falla á blaðamannafundi vegna vaxtaákvörðunar peningastefnunefndar í morgun. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, sp...
Hús­gagna­dagar hafnir í JYSK með allt að 40% af­slætti - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Hús­gagna­dagar hafnir í JYSK með allt að 40% af­slætti - Vísir
Björgvin Þór Smárason, verslunarstjóri JYSK á Selfossi, segir úrvalið og samspil verðs og gæða vera meðal helstu styrkleika fyrirtækisins. „Við erum m...
Miður að opinberir starfsmenn hafi ekki fengið að koma að borðinu
📅 07.10.2026 👁️ 4
Miður að opinberir starfsmenn hafi ekki fengið að koma að borðinu
Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB segir að stýrivaxtaákvörðun morgunsins komi ekki á óvart og sé í takt við spár. Peningastefnunefnd Seðlabanka Ís...