Erla Björg Gunnarsdóttir hefur verið ráðin í nýtt starf menningarritstjóra RÚV.
Erla Björg lét af störfum sem ritstjóri fréttastofu Sýnar í janúar en hún hafði starfað við fjölmiðlun hjá fyrirtækinu frá 2014. Erla Björg er með meistaragráðu í menningar- og fagurfræði frá Háskólanum í Árósum og BA gráðu í stjórnmála- og bókmenntafræði frá Háskóla Íslands.
Starfið var auglýst fyrr á árinu, alls sóttu 48 um.