Myndband af hættulegum framúrakstri sem birt var í Facebook hópnum Fávitar í umferðinni hefur vakið töluverð viðbrögð. Sá sem birti myndbandið sagði tilganginn vera að vekja athygli á þeirri hættu sem skapast þegar tekið er fram úr við erfiðar aðstæður, en ökumaðurinn sem sést á upptökunni steig sjálfur fram undir nafni, viðurkenndi mistök sín og baðst afsökunar.
Í athugasemd við færsluna sagði ökumaðurinn að hann hefði tekið fram úr á brotinni miðlínu og talið sig hafa næga yfirsýn yfir veginn. Hann sagði hins vegar að sú ályktun hefði reynst röng.
„Bjóst við að geta séð umferðina á móti en svo var því miður ekki. Þetta var óheppilegt og bið ykkur innilega afsökunar á þessu,“ skrifaði hann.
Segir þetta hafa verið dýra lexíu
Í frekari samskiptum sagðist ökumaðurinn vera meiraprófsbílstjóri sem tæki ábyrgð sína í umferðinni alvarlega, en viðurkenndi jafnframt að hann hefði lært mikilvæga lexíu.
Hann sagði að þrátt fyrir brotna miðlínu væri ekki hægt að treysta því að yfirsýn væri næg og að sem betur fer hefði ekkert alvarlegt gerst.
Sá sem birti myndbandið tók afsökunarbeiðninni vel en ítrekaði jafnframt að slíkur framúrakstur gæti auðveldlega endað með hörmulegum afleiðingum. Hann sagði ökumenn ættu aðeins að treysta því sem þeir sæju sjálfir fram undan en ekki bara vegmerkingum.
Skiptar skoðanir í athugasemdum
Viðbrögð annarra voru nokkuð fjölbreytt. Nokkrir hrósuðu ökumanninum fyrir að stíga fram undir nafni, viðurkenna mistök sín og biðjast afsökunar í stað þess að reyna að réttlæta aksturinn.
Aðrir töldu háttsemina engu að síður hafa verið svo hættulega að afsökunarbeiðni breytti ekki alvarleika málsins og bentu á að slík mistök gætu kostað mannslíf.
Einn þátttakandi hvatti ökumanninn til að kæra birtinguna en aðrir töldu ekki tilefni til þess og sögðu tilgang myndbandsins fyrst og fremst vera að minna fólk á hætturnar sem fylgja glæfralegum framúrakstri auk þess sem myndin hafi verið tekin á almannafæri.