Dómur féll í Edition-málinu svokallaða í dag. Ming Ting Mancel hlaut tólf ára fangelsisdóm.
Hún var ákærð fyrir manndráp í samverknaði við eiginmann sinn og brot í nánu sambandi. Forsendur dómsins liggja ekki fyrir þar til hann hefur verið birtur.
Verjandi Mancel, Ómar Örn Bjarnþórsson, segir dóminn þyngri en hann hafi búist við. Mancel hafi strax ákveðið að áfrýja honum.
Hann segir Mancel hafa yfirgefið dómshúsið að uppkvaðningu lokinni. Hún sé eins og er hvorki í gæsluvarðhaldi né í farbanni.
„Það kæmi mér ekkert á óvart ef það yrði farið fram á gæsluvarðhald á meðan á áfrýjunarfresti stendur en sækjandi tekur ákvörðun um það.
Ítarlega var fjallað um dularfullan harmleik Mancel-fjölskyldunnar í þættinum Sögur úr raunveruleikanum sem má hlusta á í spilaranum hér að neðan.