Þá segjum við frá fjöldauppsögnum á Hilton og Natura hótelunum sem tilkynnt var um í gær og heyrum í Forstjóra Íslandshótela sem gerir ekki ráð fyrir öðru en að allir verði ráðnir aftur til starfa þegar hans fyrirtæki tekur við rekstrinum.
Gistiskýli Rauða krossins í Borgartúni var lokað í dag og allir sem þar dvöldu fluttir í húsnæði Útlendingastofnunar í Bæjarhrauni. Heimferða- og fylgdardeild Rikislögreglustjóra mun nú þjónustua hópinn.
Í sportinu segjum við frá tíðindum úr enska boltanum þar sem Michael Carrick hefur verið ráðinn til frambúðar hjá United og heyrum í Lárusi Orra þjálfara Skagamanna eftir jafnteflið við ÍBV í gær.