Heitavatnslaust er í hluta Kópavogs, meðal annars í Smárahverfi, og hefur verið frá því í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá Veitum orsakast vatnsleysið af bilun í brunni sem þurfti að tæma til að gera við.
Heitavatnslaust var á Kársnesi fyrr í dag en á ellefta tímanum var hverfið tengt við hitaveitu frá öðru svæði.
Að sögn Silju Ingólfsdóttur, upplýsingafulltrúa Veitna, er unnið að viðgerð og búist við að hún standi fram eftir degi. Ekki er hægt að fullyrða um hvenær heitt vatn kemur aftur á.
Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju.