Borgarstjóri segir engum verkefnum upplýsingafulltrúa hafa verið útvistað eftir uppsagnir í síðustu viku. Hún hafi notið liðsinnis annars eigenda ráðgjafarskrifstofunnar Athygli, sem er varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, við skrif fréttatilkynningu.
Engir upplýsingafulltrúar hafi verið ráðnir aftur en samið hafi verið við tvo starfsmenn um að vinna fram að áramótum á meðan unnið sé að nýju fyrirkomulagi.
Fulltrúar Samfylkingarinnar í borgarráði lögðu fram fyrirspurn á fundi borgarráðs í gær og óskuðu eftir svörum um hvernig upplýsingamálum hafi verið og verði háttað í kjölfar uppsagna á skrifstofu samskipta og viðburða í síðustu viku.
Ekkert sem greitt var fyrir
Samskiptastjóra og öllum sex upplýsingafulltrúum borgarinnar var sagt upp. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir samskiptamál hafa verið snúin eftir uppsagnirnar.
Hún hafi því notið liðsinnis félaga síns Más Másonar, varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og annars eigenda ráðgjafarskrifstofunnar Athygli við skrif fréttatilkynningar um uppsagnirnar. Það hafi verið vinagreiði sem ekki verði greitt fyrir. Engum upplýsinga- og samskiptaverkefnum hafi verið útvistað.
Ég hélt á þessum málum í meginatriðum sjálf. Ég leitaði mér ráðgjafar fólks í kringum mig en það voru bara vinagreiðar og ekkert sem greitt er fyrir.
Ekki ákveðið hvort verkefnum verði útvistað
Borgarstjórn ætli að kynna það innan tíðar. Ekki hafi verið ákveðið hvort viðskiptum verði útvistað til fyrirtækja.
„Skrifstofa borgarstjóra og borgaritara hefur í gegnum árin útvistað ýmsum verkefnum við ráðgjöf og stefnumótun og annað. Það hafa forverar mínir í starfi gert og eflaust munum við gera það að einhverju leyti líka en það hefur ekkert komið til skoðunar ennþá.“
Kæmi Athygli til greina í framhaldinu?
„Við þurftum bara að skoða það að það fer auðvitað eftir verkefnum hvaða stofur hæfa hverju sinni enda hefur ekki verið rætt og engar svona ákvarðanir verið teknar,“ svarar Hildur.
Mágkona borgarstjóra Ólöf Skaftadóttir starfar hjá fyrirtækinu. Spurð hvort það kunni að vera tortryggilegt í þessu samhengi segist hún ekki hafa leitt hugann að því enda hafi það ekki komið til skoðunar..
„Við myndum auðvitað alltaf gæta að svona málum og að eðlilega sé staðið að þeim en eins og ég segi þá er Már varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og í mínu ráðgjafateymi og hefur verið í gegnum árin og það hefur ekkert verið greitt fyrir þá vinnu.“