Sveitarfélagið Skagafjörður greindi frá því á Facebook-síðu sinni í gær að útlit væri fyrir að skaðleg efni hefðu komist í Sauðá, sem rennur um Sauðárkrók. Fólk var beðið að sýna aðgát og forðast snertingu við vatnið. Heilbrigðisfulltrúi vaktaði hana frá því í gærkvöld og nú er hún aftur orðin hrein og tær.
„Sem betur fer er áin bara búin að hreinsa sig. Svo um leið og sjávarföllin – svo byrjaði að rigna, það er ekki oft sem ég fagna rigningunni en nú finnst mér rigningin góð – þá náði hún að koma með vatn sem er í þessu fráveitukerfi til þess að ýta þessu rólega í burtu,“ segir Svavar Sigurðsson, fulltrúi Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.
Líklega málning sem var hellt í niðurfall
Líklegast er talið að einhver á Sauðárkróki hafi misst eða hellt málningu í niðurfall sem liggur út í ána. Ekki er talin hætta á varanlegum skaða á lífríkinu, segir Svavar. Ekki voru tekin sýni heldur var staðan metin þannig að þetta væri plastmálning og sýnataka gerði ekki gagn. Ekki sást olíubrák eftir málninguna né önnur merki um spilliefni.
„Já, svona hvít málning getur gefið alveg ótrúlega mikinn lit. Við höldum að þetta sé ekkert rosalegt magn en þetta eru nokkrir lítrar sem hafa farið þarna niður,“ segir Svavar.
Hann segir mikilvægt að bæjarbúar geri sér grein fyrir því að mörg niðurföll renni í ána. Hann hvetur fólk til að fara með spilliefni í þar til gerðar flokkunarstöðvar.
„Þannig að, endilega, góðir samborgarar farið með það sem þarf að fara með í þessa fínu flokkunarstöð sem við eigum en alls ekki setja í niðurföllin. En auðvitað getur þetta verið óhapp.“