Frá 16. ágúst er enginn dýralæknir að störfum frá Breiðdalsvík í austri, að Kirkjubæjarklaustri í suðri. Staðan er grafalvarleg, segir kúabóndi á svæðinu.
„Við erum náttúrulega bara háð því, við og aðrir bændur, að geta leitað dýralækninga þegar dýrin eru veik. Það er náttúrulega grafalvarleg staða gagnvart dýrunum að geta ekki fengið læknisþjónustu eins og við,“ segir Birgir Freyr Ragnarsson, kúabóndi í Flatey á Mýrum í Hornafirði.
Hann segir að bændum sé bent á að leita til dýralækna uppi á Héraði eða á Suðurlandi. Birgir er með ríflega 200 kýr á bænum. Hann segir mikinn landbúnað og mörg gæludýr á svæðinu. Þessi óvissa sé mjög óþægileg fyrir íbúa.
Sextán þúsund fyrir sextán tíma
Staðan kemur ekki á óvart, segir Bára Eyfjörð Heimisdóttir, formaður Dýralæknafélags Íslands. Kerfið var stokkað upp fyrir nokkru síðan og það voru mistök að hennar mati. Svæði dýralækna séu of stór og of lítið sé greitt fyrir bakvaktir.
Sem dæmi segir hún að dýralæknir á sextán klukkustunda bakvakt fái kannski sextán þúsund krónur í vasann.
„Þar er ástandið bara verulega vont, ég myndi lýsa því þannig. Það hefur ekki tekist að fá dýralækni inn á þetta svæði þrátt fyrir að ítrekað hafi verið auglýst. Ástæða þess er fyrst og fremst að svæðið er allt, allt of stórt. Það þarf að endurskoða þetta kerfi frá grunni því það er handónýtt eins og staðan er í dag,“ segir Bára.
Matvælastofnun tekur undir áhyggjur Dýralæknafélagsins
Matvælastofnun hefur séð um að auglýsa eftir dýralæknum og skipuleggja vaktir í samráði við þá. Samningur sem var gerður um kaup og kjör við bakvaktir dýralækna er löngu útrunninn og ekki hefur verið gerður nýr.
Dýralæknafélagið sendi ráðherra bréf í síðustu viku til að vekja athygli á stöðunni en engin svör hafa borist.
„Yfirdýralæknir og DÍ vinna saman að því að knýja á úrlausn mála. Stjórnvöld verða hins vegar að koma að borði til að leysa úr þessari stöðu sem við erum komin í og án nýrra samninga sjáum við ekki lausn í sjónmáli,“ segir í skriflegu svari MAST til fréttastofu.
Vilja ná eyrum stjórnvalda
Að mati Báru má engan tíma missa í þeirri stöðu sem upp er komin. Að hennar sögn stendur til að stofna starfshóp um málið hjá ráðuneytinu en slíkt getur verið tímafrekt, bæði að stofna og skipa í hópinn og síðan að hópurinn taki til starfa. Þörf sé á aðgerðum núna.
Við verðum að ná eyrum atvinnuvegaráðherra og ráðuneytisins sem allra fyrst þannig að við getum sest niður og fundið lausn á þessu. Lausnin er hjá stjórnvöldum.