Eldur kviknaði í vélarrúmi fiskibáts á Breiðafirði í dag þar sem einn maður var um borð.
Landhelgisgæslunni barst tilkynning um atvikið á tólfta tímanum en skömmu eftir að eldurinn kviknaði var búið að loka vélarrúmi bátsins og ræsa slökkvikerfi.
„Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þegar í stað kölluð út á mesta forgangi ásamt áhöfn Bjargar, björgunarskips Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Rifi. Einnig voru skip og bátar í grenndinni beðin um að halda á vettvang,“ segir í tilkynningu.
Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir við fréttastofu að skipverjanum heilsist vel og ekki hafi verið þörf á því að flytja hann með þyrlunni. Hann varð fyrir óhappi eftir að eldurinn kom upp og því þurfti að huga að honum.
„Það var tekin ákvörðun um að hann færi á björgunarskipinu sem er með bátinn í togi á Rif. Þar mun slökkviliðið taka á móti þeim,“ segir Ásgeir.
Gert er ráð fyrir að skipið komi að Rifi laust fyrir klukkan fjögur.
Ásgeir segir að enn eigi eftir að meta ástand bátsins. Skemmdir þegar eldur kemur upp í bátum sem þessum eru alltaf töluverðar en Ásgeir segir mildi að ekki fór verr.
„Þegar eldur kemur upp í litlum fiskibátum geta hlutir gerst mjög hratt. Þess vegna þarf viðbragð að vera hratt. Sem betur fer virðist maðurinn hafa náð að gera allt rétt, loka vélarrýminu og tæma úr slökkvikerfinu.“
Ekki liggur fyrir hver orsök eldsins var.