Brunavarnir Árnessýslu fengu útkall á tíunda tímanum í kvöld vegna elds í sumarbústað við Þingvallavatn.
Lárus Kristinn Guðmundsson, settur slökkvistjóri Brunavarna Árnessýslu, segir að bústaðurinn hafi verið alelda þegar slökkvilið frá Laugavatni og Selfossi komu á staðinn.
Hann segir að fólk hafi verið í bústaðnum þegar eldurinn kom upp en enginn sé slasaður. Hann segir reyk leggja um bústaðarhverfið en slökkvilið hefur náð stjórn á eldinum og nærliggjandi bústaðir séu ekki í hættu.
Slökkvistarf stendur enn yfir.