Úrvalsvísitala aðallista Kauphallar Íslands hefur lækkað um 6,85% það sem af er degi.
Líklegt er að það tengist lækkun hlutabréfa í íslenska lyfjafyrirtækinu Oculis við opnun markaða í morgun um 51,78 prósent en lítil viðskipti eru þó á bak við lækkunina.
Það sem af er degi er næstmesta lækkunin í kauphöllinni hjá Sjóvá, eða um 5,29%. Þar á eftir koma Amaroq Minerals með 4,38% lækkun og Iceland Seafood International með 3,56% lækkun.
Á meðal stærri félaga á markaði hefur Festi lækkað um 2,76%, Alvotech um 2,59%, Reitir um 2,48%, Icelandair um 2,25% og Hagar um 1,59%.