Eldingu laust niður í væng flugvélar

Eldingin fræga
Mynd: Skjáskot
Farþegar um borð í farþegaflugvél mexíkóska flugfélagsins Viva Airlines upplifðu skelfilegt augnablik þegar eldingu laust niður í væng vélarinnar á flugi til Mexíkóborgar.
Samkvæmt myndskeiðum frá farþegum sást skær ljósblossi þegar eldingu laust í vinstri væng vélarinnar. Í kjölfarið virtist hluti vængsins glóa vegna hitans sem myndaðist eftir á.
Farþegar um borð brugðust margir hverjir óttaslegnir við og heyra mátti öskur í vélinni þegar eldingin reið yfir. Sumir óttuðust að alvarlegt slys væri yfirvofandi.
Flugfélagið sagði hins vegar í yfirlýsingu til staðbundinna fjölmiðla að farþegar hefðu aldrei verið í hættu og að flugvélin hafi lent heilu og höldnu án vandkvæða.
Watch full video on TMZ