Ekkjan í plastbarkamálinu segir málið sársaukafullt og erfitt
Ekkja manns sem lést eftir að plastbarki var þræddur í hann, hefur barist í um 12 ár fyrir réttlæti manns síns. Hún lagði íslenska ríkið í skaðabótamáli þar sem kemur fram að framganga læknisins Tómasar Guðbjartssonar hafi verið ámælisverð og saknæm.
„Ég var afar fegin að fá fregnir af úrskurði héraðsdóms í þessu máli en veikindaferli eiginmanns míns Andemariams Beyene var bæði afar sársaukafullt og erfitt,“ segir í yfirlýsingu frá Merhawit Baryamikael Tesfaslase, ekkju Andemariams, sem lést eftir að í hann var græddur plastbarki. Málið hefur vakið heimsathygli en nýjasti kaflinn í þessu einstaka hneykslismáli er nýfallinn dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem bótaskylda íslenska ríkisins hefur verið viðurkennd.
Ástæðan er aðild Tómasar Guðbjartssonar að málinu sem byggir á svikum Paolo Macchiarini, þá skurðlæknis við Karólínska sjúkrahúsið í Svíþjóð. Tómas er fundinn sekur um stórfellt gáleysi sem leiddi til tjóns og andláts Andemariams, sem lést þremur árum eftir að barkinn var þræddur í hann. Andemariam var með hægvaxandi æxli en þó ekki dauðvona. Fram kemur í dómi að Tómas hafi sett af stað atburðarrás sem leiddi með beinum …