Rífa á stóran hluta áhorfendastúkunnar við Laugardalslaug í Reykjavík sem telst hættuleg í nýju áhættumati. Margir harma það því stúkan hefur verið eitt helsta kennileitið í Laugardal síðan 1968. Steinþór Kári Kárason, arkitekt og eigandi arkitektastofunnar Kurt og pí, er einn þeirra. Hann var gestur Fram undan á Rás 2 í morgun.
„Mér finnst dapurlegt að við leyfum þessu að gerast. Þetta er mjög fallegt og áhugavert mannvirki.“
Steinþór segir að viðhaldsleysi sé áberandi í borginni og birtist meðal annars í myglu og öðrum skemmdum. Mikilvægt sé að snúa þeirri þróun við og þarna sé tækifæri til að setja fordæmi. Nú er tvennt í stöðunni að hans mati.
„Það er hægt að laga stúkuna. Ég veit að það er hægt en þetta snýst auðvitað um kostnað. Hitt, sem er kannski áhugaverðara, er hvað á að gera í staðinn? Hvert er næsta skref? Það er ekki nóg bara að rífa þetta.“
Steinþór man ekki eftir mörgum dæmum um svo umfangsmikið niðurrif.
„Það eru til alls konar kerfi og ferlar um hvernig eigi að byggja sjálfbært og umhverfisvænt í dag en þú byggir ekki umhverfisvænni byggingu en bygginguna sem þú ert í í dag. Ef þú ætlar að byrja á að rífa mörg þúsund fermetra til byggja eitthvað nýtt ertu að byrja á vitlausum enda, ef þú spyrð mig.“
Mikilvægt að byggingar geti lifað áfram og fengið nýtt hlutverk
Steinþór segir að aðstæður eins og í stúkunni í Laugardalslaug séu bara byrjunin á því sem búast má við á næstu árum.
„Við búum í ungri borg og þessi prósess er bara rétt að byrja hjá okkur. Við erum í ungum byggingum og það er á okkar ábyrgð að viðhalda þeim þannig að þær geti lifað áfram og þjónað sínu hlutverki í breyttu umhverfi og breyttu samfélagi.“
Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.