Ekki er öll vitleysan eins

Jón Magnússon skrifar:
Pistlahöfundurinn Michael Deacon segir að engin skyni borinn einstaklingur gæti trúað þeirri staðhæfingu sem kom fram í heimsblaðinu New York Times í næstsíðustu viku, að Ísrael væri að þjálfa hunda til að „nauðga" Palestínumönnum.
Svona bull hefur komið fram áður. Árið 2015 tilkynnti Hamas, að Ísrael hefði þjálfað höfrung til að vera njósnari og hann væri að störfum. Michael segir að sjálfsögðu sé ekki hægt að efast um þetta frekar en sannleiksgildi annars sem frá Hamas kemur. Samt segist hann hafa efasemdir um að höfrungur sé góður njósnari alla vega mundi hann lenda í vanda með að komast inn í byggingar og ná í leyniskjöl ekki síst vegna þess að öryggisverðir gætu hugsanlega séð í gegnum dulargervi hans. sbr.
„Uss Múhameð ég held að það sé njósnari á meðal okkar. Sjáðu þarna" „Áttu við litla manninn í jakkafötunum með sólgleraugun?" „Nei stóra gráa spendýrið með falska yfirskeggið." „Góður Ahmed, hvernig vissir þú þetta? "Grunsemdir mínar vöknuðu fyrst vegna litla rauða boltans sem hann er með í jafnvægi á nefinu."
Höfrungar eru sagðir mjög gáfðaðir og það er sjálfsagt hægt að þjálfa þá til ýmissa verka, en þeir fara tæpast í spor James Bond.
Höfrungar eru ekki einu dýrin sem hafa verið sökuð um að njósna fyrir Netanyahu. Önnur dýr m.a. ernir, eðlur og jafnvel kýr eru í þeim hópi.
Það væri allra hluta vegna athyglisvert að heyra, þegar leyniþjónusta Ísrael, Mossad tekur skýrslur af þessum njósnurum eins og kýrinni Auðhumlu. "Jæja Auðhumla. Hvað getur þú sagt okkur um síðustu áætlanir Hamas um að ráðast á okkur? “Mu mu.”
Svo telur stór hópur Vesturlandabúa, að fréttir frá Hamas séu áreiðanlegar.