Ekki 270 fer­kíló­metrar heldur 26 - Vísir

Ekki 270 fer­kíló­metrar heldur 26 - Vísir

Ekki 270 fer­kíló­metrar heldur 26 - Vísir

Þá viðurkenndi Pútín í morgun að árásir Úkraínumanna í Rússlandi hefðu valdið skaða og sagði úkraínska sjálfsprengidróna sérstaklega mikið vandamál.

Hann hélt því einnig fram að varnir Úkraínumanna væru að hruni komnar, þar sem meiri hraði væri á framsókn Rússa en áður og að orðrómur um yfirvofandi herkvaðningu í Rússlandi væri „alger vitleysa“.

Þetta er meðal þess sem rússneski forsetinn sagði við blaðamenn þegar hann lauk tveggja daga fundarhöldum í Kirgistan. Þar hélt hann því fram að Rússar væru að vinna stríðið gegn Úkraínu.

Sjá einnig: Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið

Hann talaði einnig um að hann hefði skipað hernum að auka umfang árása á orkuinnviði í Úkraínu fyrir haustið.

Þá hafa Rússar verið að gera ítrekaðar og umfangsmiklar árásir á Kænugarð og nærliggjandi svæðum með skotflaugum og þotuknúnum sjálfsprengidrónum.

Leggur áherslu á Donbas

Á undanförnu ári hefur hægt verulega á sókn Rússa í austurhluta Úkraínu. Mestan kraft setja Rússar í að hernema restina af Dónetsk-héraði og hefur sókn Rússa gengið hvað best á því svæði þar sem þeir hafa sótt fram að borgunum Slóvíansk og Kramatorsk.

Þessi sókn er til marks um þá áherslu Pútíns að ná fullum yfirráðum á Donbas-svæðinu svokallaða, sem myndað er af Dónetsk og Lúhansk. Úkraínumenn stjórna enn tiltölulega umfangsmiklu svæði í Dónetsk en það eru þeir sagðir hafa víggirt mjög á undanförnum árum og er svæðið kallað „Virkisbeltið“.

Economist sagði frá því á dögunum að Pútín hefði sagt ráðgjöfum sínum að hann gæti ómögulega bundið enda á stríðið án þess að ná tökum á Donbas. Hann yrði líklega ráðinn af dögum ef hann reyndi það og þess vegna ætlaði hann að setja meira púður í stríðsreksturinn

Slóvíansk er ein stærsta borgin á þessu svæði en þar þykir ástandið hafa versnað fyrir Úkraínumenn. Rússar eru sagðir komnir í um tíu kílómetra vegalengd frá borginni og geta gert árásir á hana með stórskotaliði.

Í viðtali við úkraínska miðilinn Hromadske segja yfirmenn úkraínska hersins á svæðinu að Rússar hafi sent liðsauka þangað og að þeir geti farið að ógna birgðalínum Úkraínumanna.

Rússar hafa þó á undanförnum árum ítrekað átt í basli með að leggja undir sig borgir sem Úkraínumenn halda. Til marks um það má benda á borgina Pokrovsk, sem er suður af Slóvíansk. Hana lögðu Rússar sérstaklega mikla áherslu á en þrátt fyrir það tók rúmlega tvö ár að reka Úkraínumenn á brott þaðan.

Í grein New York Times segir að á blaðamannafundinum í Kirgistan hafi Pútín sagt að rússneskir hermenn hafi lagt undir sig 270 ferkílómetra í Dónetsk-héraði í ágúst. Úkraínskur hópur sem fylgist náið með víglínunni í Úkraínu og hefur lengi þótt áreiðanlegur, Deep State, segir að í rauninni hafi Rússar lagt undir sig um 26 ferkílómetra í héraðinu í ágúst.

Áhugasamir geta skoðað stöðuna á korti Deep State hér. Þar er til að mynda hægt að flakka aftur í tímann og skoða hvernig breytingar hafa orðið á víglínunni og „gráa svæðinu“ svokallaða, sem enginn stjórnar í rauninni.

Pútín hélt því fram að þúsundir úkraínskra hermanna væru umkringdir í austurhluta Úkraínu en það er eitthvað sem ráðamenn í Rússlandi hafa ítrekað haldið fram í gegnum árin og í flestum tilfellum hefur það reynst ósatt.

Ræðir ekki við „hryðjuverkamenn“ en vill tala við Kushner og Witkoff

Hvað varðar viðræður sagði Pútín að ekki kæmi til greina að tala við „hryðjuverkamenn“ í Kænugarði en hann sagðist þó tilbúinn til að ræða frekar við þá Jared Kushner, tengdason Donalds Trump, og Steve Witkoff, vin Trumps, en þeir hafa lengi starfað sem sérstakir erindrekar bandaríska forsetans.

Hvernig þeir, og þá sérstaklega Witkoff, hafa haldið á spöðunum hvað varðar stríðið í Úkraínu hefur þó lengi verið gagnrýnt af ráðamönnum í Evrópu og öðrum.

Pútín sagði að hann og hans menn gætu hæglega unnið með fólki sem þeir „þekkja vel og treysta“. Var hann þar að tala um Kushner og Witkoff.

Keith Kellogg, sem var sérstakur erindreki Trumps gagnvart Úkraínu, sagði í viðtali á dögunum að Kushner og Witkoff væru ef til vill góðir að sýsla með fasteignir en þeir skildu ekki stríð né Rússland. Það hefðu verið mistök að leggja það á herðar þeirra að reyna að binda enda á stríðið.

Þegar Pútín og ráðamenn hans hafa áður talað um frið til langs tíma eða „rætur átakanna“, eins og forsetinn gerði í morgun, hafa þeir verið að vísa til krafna Rússa um að ríkjum Austur-Evrópu verði í raun vísað úr Atlantshafsbandalaginu. Það eru kröfurnar sem þeir lögðu fram fyrir innrásina 2022.

Það er fátt sem bendir til þess að Pútín hafi á einhverjum tímapunkti látið af markmiðum sínum með innrásinni í Úkraínu. Þau eru að útiloka alfarið aðild ríkisins að Atlantshafsbandalaginu (NATO), að takmarka verulega stærð herafla landsins og það að NATO hörfi alfarið frá Austur-Evrópu, eins og Pútín gerði ljóst í aðdraganda innrásarinnar.

Engin herkvaðning í kortunum

Samhliða hægagangi Rússa á víglínunni hafa áhyggjur Úkraínumanna af herkvaðningu í Rússlandi aukist að undanförnu. Ráðamenn í Úkraínu hafa sagt að ummerki um herkvaðningu hafi verið sýnileg í Rússlandi og hefur almenningur í Rússlandi einnig áhyggjur af því.

Þessar áhyggjur hafa verið ræddar á samfélagsmiðlum í Rússlandi þar sem Rússar hafa meðal annars rætt sín á milli hvernig best sé að komast hjá því að vera kvaddur í herinn.

Fregnir hafa einnig borist af því að leiguverð í Armeníu hafi hækkað verulega en þangað ferðuðust þúsundir Rússa í upphafi innrásarinnar í Úkraínu og þegar farið var í herkvaðningu seinna árið 2022.

Pútín sagði á fundinum í morgun að þessar áhyggjur væru vitleysa. Engin herkvaðning væri í kortunum og um væri að ræða upplýsingaóreiðu sem beindist gegn Rússlandi.

Forsetinn boðaði til herkvaðningar skömmu eftir innrásina árið 2022 en eins og bent er á í grein Moscow Times staðhæfðu ráðamenn í Rússlandi einnig þá að fregnir af slíku væru þvættingur.

Sú herkvaðning er tæknilega séð enn í gildi. Heimildarmenn blaðamanna Economist sögðu að til stæði að nota hana til að fjölga hermönnum.

#ekki #ferkílómetrar #heldur #vísir

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262929414d/ekki-270-ferkilometrar-heldur-26

📰 Aðrar fréttir

Segir Trump ætla að kanna áhrif þess að gera hlé á viðskiptaþvingunum
📅 18.10.2026 👁️ 0
Segir Trump ætla að kanna áhrif þess að gera hlé á viðskiptaþvingunum
Donald Trump Bandaríkjaforseti setti viðskiptaþvinganir gegn Rússlandi á ís til að kanna hvaða afleiðingar það myndi hafa fyrir efnahag Bandaríkjanna ...
Watch: Moment historic French town hall spire collapses in flames amid protests
📅 18.10.2026 👁️ 1
Watch: Moment historic French town hall spire collapses in flames amid protests
An historic town hall in the southern French city of Limoges was set ablaze during national protests.
Three takeaways from Elon Musk's latest political donations
📅 18.10.2026 👁️ 1
Three takeaways from Elon Musk's latest political donations
New filings show the world's richest person spent this summer again trying to help Republicans win office, with most of his focus on one candidate.
There's a crackdown on sports piracy - but is it already out of control?
📅 18.10.2026 👁️ 1
There's a crackdown on sports piracy - but is it already out of control?
The sports industry's lucrative business model is being undermined by dodgy TV sticks and illegal streaming links, writes Theo Leggett.
Siggi Bond og Birta Huld trú­lofuð - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 2
Siggi Bond og Birta Huld trú­lofuð - Vísir
Þau greina frá tíðindunum í færslu á Instagram.  „Hún sagði JÁ,“ skrifar Sigurður, yfirleitt kallaður Siggi Bond. Birta Huld er hársnyrtir hjá Session...
Newspaper headlines: 'French protests become violent' and SAS men 'arrested for murder'
📅 17.10.2026 👁️ 2
Newspaper headlines: 'French protests become violent' and SAS men 'arrested for murder'
The Times reports soldiers accused of murder were sent into war zones while still under police investigation.
The Diane Watson playground murder: Trauma, loss and a love that endured
📅 17.10.2026 👁️ 4
The Diane Watson playground murder: Trauma, loss and a love that endured
Diane Watson's best friend Pauline recalls a shocking school murder and its lasting legacy.
Grímur biður Jón afsökunar á ummælum sínum
📅 17.10.2026 👁️ 4
Grímur biður Jón afsökunar á ummælum sínum
Grímur Grímsson þingmaður Viðreisnar bað í kvöld Jón Gnarr afsökunar á ummælum sem hann lét falla í útvarpsþættinum Vikulokum í dag. Grímur segist haf...
Grímur biðst afsökunar á klaufalegum svörum sem Jón Gnarr upplifði sem persónuárás
📅 17.10.2026 👁️ 4
Grímur biðst afsökunar á klaufalegum svörum sem Jón Gnarr upplifði sem persónuárás
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, hefur beðið fyrrum kollega sinn úr þingflokknum afsökunar á ummælum sem féllu í Vikulokunum á Rás 1 í morgun.Þa...
Barn og full­orðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knatt­spyrnu­völl - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Barn og full­orðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knatt­spyrnu­völl - Vísir
Bandaríska sjónvarpsstöðin KWCH hefur eftir lögreglumanninum Aaron Moses að ökumaðurinn sé í gæsluvarðhaldi og að engum stafi lengur ógn af ökumanninu...
Kona sem var skotin í íþróttahöll í gær lést af sárum sínum
📅 17.10.2026 👁️ 4
Kona sem var skotin í íþróttahöll í gær lést af sárum sínum
Kona á þrítugsaldri sem var skotin í íþróttahöll í Suður-Stokkhólmi í gærkvöld er látin. Hún var flutt á sjúkrahús með alvarlega áverka í gærkvöldi og...
Landtökumenn réðust á evrópska erind­reka - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Landtökumenn réðust á evrópska erind­reka - Vísir
Breska ríkisútvarpið greinir frá þessu og segir að belgísk stjórnvöld hafi fordæmt árásina, sem beindist meðal annars að aðalræðismanni Belgíu í Ísrae...
North Korea: What satellite images reveal about Kim Jong Un's summer retreat
📅 17.10.2026 👁️ 2
North Korea: What satellite images reveal about Kim Jong Un's summer retreat
Satellite images give clues about how Kim spends his holidays - something far out of reach for most North Koreans.
Biður Jón af­sökunar - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Biður Jón af­sökunar - Vísir
Grímur sagði í Vikulokunum á Rás 1 í dag að þingnefnd um málefni barna með fjölþættar stuðningsþarfir, sem Jón fór fyrir, hefði ekki komið saman undan...
Dubois vs Wardley 2: Londoner retains title with dominant second-round stoppage
📅 17.10.2026 👁️ 4
Dubois vs Wardley 2: Londoner retains title with dominant second-round stoppage
WBO world champion Daniel Dubois underlines his status as Britain's leading heavyweight with a devastating second-round stoppage of Fabio Wardley.
How day of protests unfolded as disorder breaks out across France
📅 17.10.2026 👁️ 4
How day of protests unfolded as disorder breaks out across France
Demonstrations across the country turned violent, with cars and buildings set alight and shops ransacked.
Fögnuðu 100 ára afmæli Ísaksskóla: „Maður lærir að vera góður og kurteis“
📅 17.10.2026 👁️ 4
Fögnuðu 100 ára afmæli Ísaksskóla: „Maður lærir að vera góður og kurteis“
Nemendur, foreldrar og kennarar fjölmenntu í Ísaksskóla í dag í tilefni 100 ára afmælis skólans. Veggir voru fagurlega skreyttir með listaverkum nemen...
Ummæli Gríms flokkist sem persónuárás
📅 17.10.2026 👁️ 4
Ummæli Gríms flokkist sem persónuárás
„Ég var nú eiginlega bara mjög hissa,“ segir Jón Gnarr, fyrrum þingmaður Viðreisnar, um ummæli Gríms Grímssonar, þingmanns Viðreisnar. Grímur sagði í ...
Anti-government protesters battle with police in Albania
📅 17.10.2026 👁️ 4
Anti-government protesters battle with police in Albania
There were violent clashes between demonstrators and riot police throughout Saturday in the capital Tirana.
Hálf milljón tók þátt í mótmælunum í dag
📅 17.10.2026 👁️ 4
Hálf milljón tók þátt í mótmælunum í dag
Rúm hálf milljón tók þátt í mótmælunum í Frakklandi í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu innanríkisráðuneytis Frakklands. Af þeim 550.000 sem mótmælt...
„Verið að spila með líf fólks“
📅 17.10.2026 👁️ 4
„Verið að spila með líf fólks“
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir Seðlabankann hafa gengið of langt með því að skapa viljandi efnahagsaðstæður sem auka at...
„Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
„Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ - Vísir
„Það er mikið dómsdagstal því það eru átök svo víða og mannréttindi eru brotin í stórum stíl. Við sjáum þessa nýju tilhneigingu til þess að valdamikli...
Komi til greina að nýta gervi­greind í námsgagnagerð - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Komi til greina að nýta gervi­greind í námsgagnagerð - Vísir
Þegar niðurstöður Pisa-rannsóknarinnar voru kynntar í byrjun september greindi Inga Sæland barna- og menntamálaráðherra frá því að verja ætti fjögur h...
Hótaði ólögráða barni með trjádrumb
📅 17.10.2026 👁️ 4
Hótaði ólögráða barni með trjádrumb
Karlmaður hefur verið dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir hótun og barnaverndarbrot samkvæmt dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra sem féll þa...
Ari nýr for­maður Ungra vinstri grænna - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Ari nýr for­maður Ungra vinstri grænna - Vísir
Ari tekur við af Illuga Gunnarssyni sem hefur gegnt formennsku frá því í febrúar á þessu ári. Í stjórn voru einnig kjörin Elísabet Freyja Úlfarsdóttir...
Lög­reglan skarst í leikinn á mót­mælum í Kaup­manna­höfn - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Lög­reglan skarst í leikinn á mót­mælum í Kaup­manna­höfn - Vísir
Jakob Hansen aðstoðaryfirlögregluþjónn í Kaupmannahöfn segir við danska ríkisútvarpið að lögreglumenn hafi handtekið tvo hvorn í sínum mótmælum við Kó...
Ungir strákar í haldi vegna skotárásar í Svíþjóð
📅 17.10.2026 👁️ 4
Ungir strákar í haldi vegna skotárásar í Svíþjóð
Tveir drengir undir 18 ára að aldri eru í haldi grunaðir um tilraun til manndráps eftir að ung kona var skotin í Stokkhólmi í gærkvöldi. Sænska ríkisú...
Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Au pair
📅 17.10.2026 👁️ 4
Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Au pair
Au pair er franska og gæti sem best þýtt jafningi á íslensku. Hugtakið er notað yfir ungt fólk, aðallega konur, sem sækjast eftir vist hjá fjölskyldum...
France protests: Violent clashes, looting and buildings ablaze as over 1,000 arrested
📅 17.10.2026 👁️ 3
France protests: Violent clashes, looting and buildings ablaze as over 1,000 arrested
Disorder broke out in cities across the country on a day in which more than half a million joined cost of living protests.
European diplomats attacked by Israeli settlers in West Bank
📅 17.10.2026 👁️ 4
European diplomats attacked by Israeli settlers in West Bank
The Israeli military condemns the violence but the prime minister's office says it is part of a "smear" campaign.
Bresk TikTok-stjarna á yfir höfði sér dauðarefsingu í Dúbaí – segist hafa verið að verja sig
📅 17.10.2026 👁️ 4
Bresk TikTok-stjarna á yfir höfði sér dauðarefsingu í Dúbaí – segist hafa verið að verja sig
Bresk TikTok-stjarna á yfir höfði sér dauðarefsingu í Dúbaí – segist hafa verið að verja sig Fréttin17. október 2026Dómsmál, ErlentLeave a Comment Bro...
Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sér­stakt heldur“ - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sér­stakt heldur“ - Vísir
„Já, það er mjög hvasst hérna og líka byrjað að rigna. Þetta er nánast orðið að stormi,“ sagði Marim, starfsmaður á veitingastaðnum Sker í Ólafsvík. H...
Swinney's emotional explanation for his commitment to independence
📅 17.10.2026 👁️ 4
Swinney's emotional explanation for his commitment to independence
BBC Scotland's political editor Glenn Campbell reflects on John Swinney's SNP conference speech.
Lést í slysi á hálendinu í gærkvöldi
📅 17.10.2026 👁️ 4
Lést í slysi á hálendinu í gærkvöldi
Lögreglunni á Norðurlandi eystra barst á níunda tímanum í gær tilkynning um slys á hálendinu norðan Vatnajökuls, á Gæsavatnaleið. Fjölmennt lið viðbra...
Landtökufólk á Vesturbakkanum réðst á franskan bæjarstjóra
📅 17.10.2026 👁️ 4
Landtökufólk á Vesturbakkanum réðst á franskan bæjarstjóra
Ísraelskt landtökufólk á Vesturbakkanum réðst á franskan bæjarstjóra í þorpinu Taybeh í dag. Landtökufólk herjar reglulega á íbúa í þorpinu. Bernard B...
Karlmaður á fimmtugsaldri lést í slysinu á Gæsavatnaleið
📅 17.10.2026 👁️ 4
Karlmaður á fimmtugsaldri lést í slysinu á Gæsavatnaleið
Karlmaður á fimmtugsaldri var úrskurðaður látinn á vettvangi eftir alvarlegt slys á hálendinu norðan Vatnajökuls á Gæsavatnaleið í gærkvöldi. Slysið á...
Lést eftir al­var­legt slys á Gæsavatnaleið - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Lést eftir al­var­legt slys á Gæsavatnaleið - Vísir
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á níunda tímanum í gærkvöldi að beiðni lögreglunnar á Norðurlandi eystra eftir að tilkynning hafði borist um s...
Engin yfir­sýn hvort það séu Tik Tok-mynd­bönd eða klám sem eigi að geyma - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Engin yfir­sýn hvort það séu Tik Tok-mynd­bönd eða klám sem eigi að geyma - Vísir
Í grein sinni bendir Björg Eva til að byrja með á að gagnaverið At-north á Íslandi hafi nýlega birt leikna auglýsingu um starfsemi sína, þar sem gagna...
Orðið á götunni: Marta María hittir naglann á höfuðið – hvernig er ástandið heima hjá þeim?
📅 17.10.2026 👁️ 4
Orðið á götunni: Marta María hittir naglann á höfuðið – hvernig er ástandið heima hjá þeim?
Orðið á götunni er að Marta María Winkel í Smartlandi Morgunblaðsins hafi hitt naglann á höfuðið er hún skrifaði um sundferð fimm þingmanna stjórnaran...
Leggi línuna að sam­þykki veiti rétt til að stór­skaða fólk - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Leggi línuna að sam­þykki veiti rétt til að stór­skaða fólk - Vísir
Umræddur dómur var kveðinn upp í Landsrétti í gær. Karlmaður, sem áður hefur verið dæmdur fyrir nauðgun, var ákærður í annað sinn fyrir nauðgun og dæm...
Annar mótmælandi missti hönd í Frakklandi
📅 17.10.2026 👁️ 5
Annar mótmælandi missti hönd í Frakklandi
Franskur mótmælandi missti aðra höndina í borginni Saint-Etienne í dag. Þetta var annar mótmælandinn til að missa hönd í álíka aðstæðum í miklum mótmæ...
Vara við „perra­gler­augum“ - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Vara við „perra­gler­augum“ - Vísir
Persónuvernd vekur athygli á yfirlýsingunni í tilkynningu á vef sínum. Þar segir að gleraugun geti verið búin myndavélum og hljóðnemum sem gera notend...
Hvað er hlaupsekúnda og af hverju verður hún afnumin?
📅 17.10.2026 👁️ 4
Hvað er hlaupsekúnda og af hverju verður hún afnumin?
Frá árinu 1972 hefur hlaupsekúndu verið bætt við klukkuna 27 sinnum. Nú hafa alþjóðleg samtök um mælieiningar ákveðið að afnema hana og taka upp hlaup...
Segir samfélagið gera fáránlegar kröfur til karlmanna en gagnrýni á konur sé bönnuð
📅 17.10.2026 👁️ 4
Segir samfélagið gera fáránlegar kröfur til karlmanna en gagnrýni á konur sé bönnuð
Fjölmiðlafræðingurinn Íris Erlendsdóttir segir samfélagið okkar gera fáránlegar kröfur til karlmanna, þeir megi varla segja nokkuð sem gæti mögulega s...
Emi Martinez injury mars first Chelsea clean sheet in nine months
📅 17.10.2026 👁️ 4
Emi Martinez injury mars first Chelsea clean sheet in nine months
Goalkeeper Emiliano Martinez was taken to hospital as Chelsea's 2-0 win at Everton on Saturday meant they secured their first clean sheet in nine mont...
„Mjög lítil vinnsla“ í nefnd sem Jón leiddi
📅 17.10.2026 👁️ 4
„Mjög lítil vinnsla“ í nefnd sem Jón leiddi
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, segir að þingnefnd um málefni barna með fjölþættar stuðningsþarfir sem Jón Gnarr, þingmaður utan flokka, fór fy...
Fjórtán mánaða fangelsi fyrir 88 þjófnaðarbrot
📅 17.10.2026 👁️ 4
Fjórtán mánaða fangelsi fyrir 88 þjófnaðarbrot
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í fjórtán mánaða fangelsi fyrir áttatíu og átta þjófnaðarbrot og eina tilraun til þjófnaðar yfir um eins og...
Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruð barna - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruð barna - Vísir
Atvikið átti sér stað í Heshi Peixin-leikskólanum í Tianshui í Gansu-héraði í júlí á síðasta ári. Allt í einu fór fjöldi barna að veikjast og mældist ...
Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna - Vísir

Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út í gærkvöldi vegna slyss á hálendinu