Fastagestir í Laugardalslaug upplifa að félagsneti þeirra hafi verið kippt undan þeim eftir að fimm heitum pottum sunnan stúkumannvirkisins í Laugardalslaug og eimbaði laugarinnar var lokað um ófyrirséðan tíma.
„Þetta er bara eins og stærsta félagsheimili í Reykjavík væri lokað skyndilega og skellt í lás. Þetta er bara skelfileg hegðun,“ segir Halldór Kristjánssen sem hefur vanið komur sínar í Laugardalslaug í 50 ár.
Þar hefur hann hitt stóran hóp fólks daglega enda eru sundlaugar vinsæll samkomustaður fjölmargra og uppspretta félagslegra tengsla. Hann segir sig og aðra sundgesti vera gáttaða á vinnubrögðum borgarinnar í málinu.
„Skelfileg hegðun“
Pottunum fimm og eimbaði laugarinnar var lokað af öryggisástæðum eftir að tekin var ákvörðun um að færa alla starfsemi úr stúkunni. Nýtt áhættumat stúkunnar sýnir að ástand stúkunnar sé bágborið vegna alkalí- og tæringarskemmda í steypu og burðarvirki.
Stúkan í Laugardalslaug var reist árið 1968 en hefur verið lokuð almenningi undanfarin ár og aukið eftirlit verið með starfsemi hennar.
„Þetta er bara skelfileg hegðun því það er ekkert að stúkunni. Hún stendur uppi og það er bara einhver laus múr. Ef það er einhver hætta á að stúkan sé að hrynja, af hverju setja þeir þá ekki stoðir undir eða fá iðnaðarmann til að koma og hreinsa upp þetta lausa?“ spyr Halldór.
Aðstaðan aðdráttarafl laugarinnar
Halldór segir að hann hafi tamið sér komur í sundlaugina daglega um hádegisbilið. Undir venjulegum kringumstæðum séu rúmlega hundrað manns sem koma þangað í hádeginu. Nú séu færri í lauginni á þessum tíma dags.
„Þetta er bara félagsleg einangrun,“ segir hann.
Halldór segir helsta aðdráttarafl laugarinnar vera svæðið undir stúkunni þar sem sé að finna skjólgóða heita potta og eimbað. Nú séu hins vegar fáir pottar opnir og komast færri að í laugina.
„Það sem dregur okkur kúnnana að er þessi góða aðstaða undir stúkunni, svo ekki sé minnst á það að ef þessi stúka yrði fjarlægð þá væri þetta ekki sama sundlaug vegna þess að þetta eru bestu skjólveggir á Íslandi.“
Aðspurður segir Halldór þá sundgesti sem hann hafi rætt við vera miður sín yfir núverandi fyrirkomulagi.