Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei - Vísir

Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei - Vísir

Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei - Vísir

Kelsey er sjálf greind með OCD (áráttu- og þráhyggjuröskun) og hefur svo sannarlega fundið fyrir því í gegnum tíðina hversu hamlandi röskunin getur verið.

Talið er að um 1 til 3 prósent mannkyns greinist með OCD á einhverjum tímapunkti ævinnar. Hún er því talin fjórða algengasta geðröskunin á eftir fælni, þunglyndi og áfengissýki.

Kelsey segir OCD þó enn vera í skugganum í samfélagsumræðunni og þörf sé á úrbótum þar sem OCD sé algengara og fjölbreyttara en margir gera sér grein fyrir. Hún er ein af stjórnendum OCD-félagsins, sem er tiltölulega nýstofnað.

Sjúkleg fullkomnunarárátta

Kelsey er fædd í Bandaríkjunum og ólst upp í Kanada en hefur búið á Íslandi í tæp tólf ár.

„Ég er rosalega mikill tungumálanörd og hef alltaf haft mikinn áhuga á norrænum tungumálum. Ég byrjaði að læra norsku þegar ég var kannski fimmtán eða sextán ára. Ég fór til Noregs á sumarnámskeið þegar ég var sautján eða átján ára. Ég lærði líka dönsku og sænsku í háskólanum í Kanada og var í Danmörku. Árið 2014 fékk ég síðan þriggja ára styrk í gegnum menntamálaráðuneytið og Árnastofnun til að læra íslensku við HÍ. Ég þekkti ekkert til Íslands áður en ég kom hingað en ég tengdist landinu strax mjög sterkum böndum, ég lauk BA-náminu og fór svo í meistaranám og svo gerðist ég ríkisborgari fyrir þremur árum.“

Kelsey hefur nær alla tíð þurft að glíma við hamlandi fullkomnunaráráttu.Aðsend

Í dag er Kelsey þó í starfi sem er algjörlega ótengt menntun hennar en hún starfar á dauðhreinsunardeild Landspítalans þar sem lækningatæki og verkfæri eru sótthreinsuð, pökkuð og send aftur á spítala og heilsugæslur.

„Ég þarf oft að útskýra fyrir fólki hvað starfið mitt snýst um, vegna þess að þegar ég segi „dauðhreinsun“ þá halda margir að ég sé að vinna í líkhúsi,“ segir hún kímin. „En þetta snýst sem sagt um dauðhreinsun og sótthreinsun.“

Kelsey fékk formlega OCD-greiningu þegar hún var um tvítugt en segir að hún muni ekki eftir sér án einkenna. Hún telur einkennin hafa byrjað mjög snemma, jafnvel þegar hún var fimm eða sex ára. Á þeim tíma var augljóslega minni þekking á OCD en í dag.

Hún útskýrir að OCD geti birst í ólíkum myndum.

„Hjá sumum er það til dæmis þessi árátta varðandi hreinlæti; að vera alltaf að þvo sér um hendurnar. Það er þessi klassíska staðalímynd. Aðrir eru kannski með ítrekaðar hugsanir um að skaða sig eða aðra, til dæmis að stökkva af brú eða ýta einhverjum fyrir bíl. Það er mjög dæmigert. Í mínu tilfelli birtist þetta fyrst og fremst í fullkomnunaráráttu. Til dæmis þegar ég var að skrifa lokaritgerðina mína í meistaranáminu þá skrifaði ég allt í glósubækur. Ef mér leið eins og eitthvað hefði ekki verið gert rétt strikaði ég yfir það sem ég var búin að skrifa og skrifaði það aftur. 

Ég kláraði aldrei verkefni á réttum tíma af því að ég var föst í þessari áráttukenndu endurskoðun. Þegar ég var að skrifa stutta námsritgerð notaði ég á tímabili fimmtíu, sextíu eða jafnvel áttatíu glósubækur til að klára eina ritgerð,“ segir Kelsey og bætir við að þetta snúist ekki einfaldlega um að vilja gera vel eða vera vandvirk. Það sé ekki sama og að segjast vera „smá fullkomnunaráráttumanneskja“ vegna þess að maður vill hafa snyrtilegt skrifborð eða skila góðu verki. Hjá henni varð þetta hamlandi að því marki að hún gat ekki klárað verkefni.

„Það komu upp mörg tímabil áður en ég fékk greininguna, þar sem mig grunaði að ég væri með OCD, en ég bældi alltaf niður þær hugsanir vegna þess að skömmin var svo mikil. 

Ég gat ekki hugsað mér neitt sem væri meira niðurlægjandi en að fá slíka greiningu.

Hún tekur þó fram að einkenni hennar hafi breyst með tímanum og að það sem hafi valdið henni mikilli vanlíðan áður skipti hana ekki endilega máli í dag.

Í dag er hún ekki lengur í námi og því birtist fullkomnunaráráttan ekki með sama hætti. Hún segir OCD þó enn hafa mikil áhrif á daglegt líf, meðal annars í vinnu.

Þar getur óttinn við að gera mistök, valda vandræðum eða missa starfið orðið mjög sterkur.

„Ég er til dæmis stöðugt að leita eftir staðfestingu eða hughreystingu frá öðrum. Ég er með þráhyggju um að ég hafi gert eitthvað sem muni leiða til þess að ég missi vinnuna og þarf stöðugt að spyrja yfirmanninn minn hvort allt sé í lagi og hvort ég sé að standa mig vel. 

Það veitir hughreystingu í smá tíma en til lengdar er það samt engin lausn og það linar ekki kvíðann.

Hamfarahugsanir

Kelsey segir stundum erfitt að útskýra muninn á almennum kvíða og OCD. Kvíði sé stór hluti af OCD, en röskunin feli líka í sér ákveðið mynstur þráhyggju og áráttu.

Hún tekur annað dæmi úr hversdagslífinu.

„Þegar ég stilli vekjaraklukkuna í símanum, segjum klukkan hálf átta, þá fer ég aftur og aftur að kíkja á símann til að vera fullviss um að ég hafi stillt hana rétt. Ég verð stressuð út af þessu og eyði kannski klukkutíma bara í að vera að kíkja á símann.“

Hún tekur undir þá lýsingu að OCD geti verið eins og kláði sem hverfur ekki, alveg sama hversu mikið maður klórar sér. Því meira sem maður reynir að lina óþægindin, því verri verða þau. Það sem á að hjálpa verður hluti af vandanum.

Hún segir hugsanirnar geta stækkað hratt og orðið að keðjuverkun. Eitt lítið atriði verður að stórslysi í huganum.

Kelsey segir marga af þeim sem eru með OCD vera ranglega greindir með kvíða.Aðsend

„Ég verð reyndar að viðurkenna að þetta getur stundum verið dálítið fyndið, eða að minnsta kosti þegar maður reynir að horfa á það þannig. Til dæmis ef ég er hrædd um að sofa yfir mig og þá fara hugsanirnar á fullt: Ég sef yfir mig af því að ég stillti ekki klukkuna. Þá verður mér sagt upp úr vinnu. Ég mun ekki finna nýja vinnu, því ég er komin á fertugsaldur eða fimmtugsaldur og á ekki mjög góðan starfsferil að baki. Þá mun ég enda úti á götunni, heimilislaus, allt af því að ég neitaði að kíkja einu sinni enn á símann!“

Eitt af því sem Kelsey vill að fólk skilji er að einstaklingur með OCD veit oft fullvel að hugsanirnar eru órökréttar. Það gerir þær ekki endilega veikari. Hún getur vitað að hugsunin sé fáránleg og samt upplifað hana sem ógnandi.

Það er eins og að vera sannfærð um að eitthvað muni gerast, á sama tíma og maður veit að það er fáránlegt.

Mikilvægt að mæta óttanum

Kelsey var lengi í hugrænni atferlismeðferð, bæði í Kanada og á Íslandi. Hún segir þá meðferð ekki hafa hjálpað sér. Þvert á móti hafi hún í hennar tilfelli stundum orðið hluti af OCD-mynstrinu.

Hún útskýrir að HAM gangi oft út á að rökræða við eigin hugsanir. Í hennar tilfelli varð sú rökræða að áráttuhegðun.

„Ég var lengi að rökræða við sjálfa mig: „Mun þetta gerast?“ Og þá sagði heilinn alltaf: „Nei. Eða jú. Kannski.“

Það sem hefur hjálpað henni mest eru berskjöldunaræfingar, eða ERP (exposure and response prevention). Meðferðin gengur út á að mæta óttanum án þess að bregðast strax við með áráttuhegðun, með öðrum orðum: að leyfa kvíðanum að vera til staðar án þess að fóðra hann stöðugt.

„Þetta er mjög skilvirk meðferð við OCD og hefur virkað best í mínu tilfelli.“

Vinnuveitendur þurfa að sýna skilning

Hún er ein af stofnendum OCD-félagsins á Íslandi og situr í stjórn félagsins. Félagið var stofnað í október á seinasta ári og er því tiltölulega ungt.

OCD Félagið hefur það sem aðalmarkmið að aðstoða þá sem þjást af OCD (áráttu- og þráhyggjuröskun) og aðstandendur þeirra. Einnig vill félagið efla fræðslu um OCD bæði meðal almennings og fagaðila, auðvelda aðgengi að úrræðum og efla rannsóknarvinnu tengda sjúkdómnum.

„Eitt af helstu markmiðum okkar er að fræða þjónustuveitendur og fagfólk. Það eru sálfræðingar, læknar og aðrir í heilbrigðiskerfinu sem þekkja lítið sem ekkert til þess hvernig þetta lýsir sér og hvernig OCD er í raun og veru. Persónulega er mér í raun sama hvort almenningur, Jón úti í bæ, hafi einhverja þekkingu á þessu. Það er ekki mitt hlutverk að fræða alla en fyrir mig skiptir þekking fagfólks miklu máli,“ segir Kelsey.

Hún bætir við að það sé einnig á stefnuskránni að vera með fræðslu í skólum, þar sem snemmtæk íhlutun geti skipt sköpum, og þá sé ekki síður mikilvægt að fræða vinnuveitendur.

Hún hefur sjálf ítrekað upplifað að missa vinnu vegna kvíða og OCD-einkenna, áður en hún fékk raunverulegt tækifæri til að útskýra stöðu sína eða vinna úr aðstæðum.

„Það er eins og ákvörðun sé tekin fyrir mína hönd áður en ég fæ tækifæri til að vinna í reynslunni og segja frá því sem er í gangi hjá mér. Ég hef mjög oft lent í því að vera sagt upp fyrirvaralaust. Ég er til dæmis þrjátíu og níu ára, næstum því fertug, og mér hefur aldrei tekist að halda í vinnu lengur en núna. Ég byrjaði í núverandi starfi í september á seinasta ári, þannig að ég hef verið þar í tæpa tíu mánuði og þetta er lengsta tímabil sem ég hef verið í einu starfi.“

Kelsey bendir á að þó svo að OCD sé að vissu leyti eilífðarverkefni þá sé það ekki óyfirstíganlegt.Aðsend

Ástand sem þarf að lifa með

Kelsey hyggst taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu þann 22. ágúst næstkomandi og safna áheitum fyrir OCD félagið.

Þetta verður fyrsta heila maraþonið hennar. Hún hefur hlaupið frá því hún var um tólf ára en aldrei áður farið alla vegalengdina. Nú ætlar hún að gera það fyrir málefni sem stendur henni nærri.

Hún vill að fólk með OCD fái betri skilning, betri úrræði og meiri möguleika á að lifa lífi sínu án þess að þurfa stöðugt að útskýra eða sanna eigin vanlíðan. Hún segir OCD ekki endilega vera eitthvað sem hverfur. Það sé frekar langvarandi ástand sem þurfi að læra að lifa með og halda utan um. Það þýði þó ekki að fólk með OCD geti ekki lifað góðu lífi.

„Þetta er lífstíðardómur, að mörgu leyti. Það er hægt að meðhöndla OCD, en ekki endilega lækna það. Það er samt fullkomlega hægt að lifa góðu lífi með þessa röskun. En þetta er eitthvað sem þarf að passa upp á reglulega.“

Hér má heita á Kelsey og styðja við starfsemi OCD félagsins.

#eins #kláða #með #sem #vera


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262905118d/eins-og-ad-vera-med-klada-sem-hverfur-aldrei

📰 Aðrar fréttir

AI chip boom pushes Samsung profits to record $80bn
📅 08.10.2026 👁️ 2
AI chip boom pushes Samsung profits to record $80bn
The tech giant is also expected to get a boost from its latest folding devices that were launched in August.
Þrjú látin eftir árásir Húta á tvo flugvelli í Sádi-Arabíu
📅 08.10.2026 👁️ 2
Þrjú látin eftir árásir Húta á tvo flugvelli í Sádi-Arabíu
Yfirvöld í Sádí-Arabíu segja að þrír óbreyttir borgarar hafi verið drepin og að 36 hafi særst í árásum á tvo alþjóðaflugvelli sem Hútar hafa lýst ábyr...
Virðist ekki muna eftir aftökunni
📅 08.10.2026 👁️ 2
Virðist ekki muna eftir aftökunni
Lögmaður Christu Pike segir að legið hafi við því að hún yrði tekin úr öndunarvél eftir að hún var lögð inn á spítala og áður en hún komst til meðvitu...
Kaldrifjað morð í Kentucky – Ólétt kona fannst látin og fóstrið skorið úr henni
📅 08.10.2026 👁️ 3
Kaldrifjað morð í Kentucky – Ólétt kona fannst látin og fóstrið skorið úr henni
Ólétt kona á fimmtugsaldri fannst látin á heimili sínu í Kentucky. Hafði kviður hennar verið ristur upp og fóstrið fjarlægt úr legi hennar.Breska blað...
Vestnorrænir leiðtogar funduðu í fyrsta sinn
📅 07.10.2026 👁️ 3
Vestnorrænir leiðtogar funduðu í fyrsta sinn
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra fundaði í dag með leiðtogum Færeyja og Grænlands sem eru staddir hér á landi á fyrsta fundi oddvita vestnorrænu...
Eritrea skiptir um lið og sendir her­menn inn í Tigray - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 3
Eritrea skiptir um lið og sendir her­menn inn í Tigray - Vísir
Leiðtogar Frelsisfylkingarinnar lýstu því yfir í síðasta mánuði að þeir hefðu gert bandalag við aðrar fylkingar í Eþíópíu og saman ætluðu þessar fylki...
VR hyggst segja upp kjarasamningum á morgun
📅 07.10.2026 👁️ 3
VR hyggst segja upp kjarasamningum á morgun
Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir að kjarasamningum félagsins verði sagt upp á morgun að öllu óbreyttu. Stjórn VR kom saman síðdegis í dag og lauk...
We spent thousands on a Tui river cruise but ended up on coach trips
📅 07.10.2026 👁️ 3
We spent thousands on a Tui river cruise but ended up on coach trips
Passengers have described their anger after their itineraries changed to involve hours spent on coach trips instead.
Burnham and Merz to hold security talks in Berlin
📅 07.10.2026 👁️ 3
Burnham and Merz to hold security talks in Berlin
Downing Street said deeper co-operation in the face of rising hybrid threats from Russia would be high on the agenda during Burnham's first official v...
Bank of England reveals the four animals to feature on banknotes
📅 07.10.2026 👁️ 3
Bank of England reveals the four animals to feature on banknotes
The decision comes after nearly half a million people cast their votes from a shortlist of 18 creatures.
„Kannski eru þau að niðurlægja okkur öll og grafa undan sjálfri menningunni“
📅 07.10.2026 👁️ 4
„Kannski eru þau að niðurlægja okkur öll og grafa undan sjálfri menningunni“
Ekki myndu allir sætta sig við 10 þúsund krónur í laun fyrir einn og hálfan vinnudag. Þetta þurfa þó þeir pistlahöfundar sem taka þátt í Uppástandi á ...
Samþykktu einróma að slíta kjarasamningum á morgun
📅 07.10.2026 👁️ 4
Samþykktu einróma að slíta kjarasamningum á morgun
Stjórn VR samþykkti einróma í kvöld að slíta kjarasamningum á morgun. Frá þessu greinir Vísir.Halla Gunnarsdóttir formaður VR segist ekki skynja vilja...
Segir orð sín um „heimskulegt“ frumvarp hafa verið tekin úr samhengi
📅 07.10.2026 👁️ 4
Segir orð sín um „heimskulegt“ frumvarp hafa verið tekin úr samhengi
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir ummæli sín um frumvarp stjórnvalda um leiguvernd hafa verið tekin úr samhengi að einhverju leyti.Ásgeir sagði í ...
Former Venezuelan President Nicolás Maduro expected to face more charges this week
📅 07.10.2026 👁️ 4
Former Venezuelan President Nicolás Maduro expected to face more charges this week
The new charges are expected to accuse Maduro and his wife of playing a role in the torture of Americans in Venezuelan prisons, US media reports.
Byggðaráð vill ekki breyta Valaskjálf í bæjarskrifstofur
📅 07.10.2026 👁️ 4
Byggðaráð vill ekki breyta Valaskjálf í bæjarskrifstofur
Byggðarráð í Múlaþingi hefur mælt gegn því að sveitarfélagið kaupi Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum undir bæjarskrifstofur. Íbúar hafa undanfarið lýst ó...
Sam­þykktu að slíta kjara­samningum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Sam­þykktu að slíta kjara­samningum - Vísir
„Ég var með fund í stjórn VR þar sem var einróma samþykkt að slíta kjarasamningum á morgun,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR í samtali við Vísi....
Niður­rif hafið á Laugasól - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Niður­rif hafið á Laugasól - Vísir
Samkvæmt svörum frá Reykjavíkurborg er unnið að gerð deiliskipulags á grundvelli hönnunarforsendna fyrir nýjan leikskóla. Ekki liggi þó enn fyrir enda...
Drap Christian Zedig með einu hnefahöggi – dæmdur í aðeins eins árs fangelsi
📅 07.10.2026 👁️ 4
Drap Christian Zedig með einu hnefahöggi – dæmdur í aðeins eins árs fangelsi
Nkumba Ludovic Tshiembe, 31 árs, hefur verið dæmdur í eins árs fangelsi fyrir árásina á sænska lögreglumanninn og tveggja barna föðurinn Christian Zed...
Ummæli Trump um árásir á tvær bandarískar borgir sögð landráð - Hvíta húsið segir viðbrögðin bjánaleg
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ummæli Trump um árásir á tvær bandarískar borgir sögð landráð - Hvíta húsið segir viðbrögðin bjánaleg
Ummæli Donald Trump Bandaríkjaforseta um árásir Írans á tvær borgir í Kaliforníu hafa vakið hörð viðbrögð og þá sérstaklega hjá pólitískum andstæðingu...
Christa Pike 'angry and confused' after failed execution, lawyers say
📅 07.10.2026 👁️ 4
Christa Pike 'angry and confused' after failed execution, lawyers say
Lawyers say the convicted killer was surprised to have survived and remained "shackled" to her hospital bed.
Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ - Vísir
„Þá mátt ekki sýna forsetaembættinu vanvirðingu,“ sagði Trump við blaðamenn í Hvíta húsinu í dag. Forsetinn var spurður út í ummæli hans um að ef Demó...
Gervigreind mun bæði útrýma og skapa milljónir starfa
📅 07.10.2026 👁️ 4
Gervigreind mun bæði útrýma og skapa milljónir starfa
Erik Brynjolfsson er einn kunnasti hagfræðingur Bandaríkjanna þegar kemur að mati á efnahags- og félagslegum áhrifum gervigreindar á vinnumarkað. Hann...
Fangelsi undir Vatna­jökli - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Fangelsi undir Vatna­jökli - Vísir
Nýi leikvangurinn var gefinn út í gær, þriðjudag, samhliða uppfærslu á leiknum þar sem nýtt efni var kynnt til leiks. Overwatch er fjölspilunarleikur ...
„Von­brigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
„Von­brigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ - Vísir
„Það eru auðvitað vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk,“ segir Jens-Frederik Nielsen, formaður grænlensku landstjórnarinnar, í samta...
Hvað eiga danskir tómatar og íslensk svefntækni sameiginlegt?
📅 07.10.2026 👁️ 4
Hvað eiga danskir tómatar og íslensk svefntækni sameiginlegt?
Þróun gervigreindarlíkana fleygir fram á ógnarhraða. Árið 2023 töldu tæplega 3.000 sérfræðingar að það gæti tekið allt að 27 ár fyrir gervigreind að l...
Ógnarástand um borð í flugi Icelandair þegar æði rann á íslenskan taugasálfræðing
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ógnarástand um borð í flugi Icelandair þegar æði rann á íslenskan taugasálfræðing
Maður sem ákærður hefur verið fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn lögum um loftferðir um borð í flugi Icelandair á leið frá Baltimore í Bandaríkjunum...
Ljósa­staurar bilaðir víða í Reykja­vík - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ljósa­staurar bilaðir víða í Reykja­vík - Vísir
Meðal annars hafa borist ábendingar um að slökkt sé á ljósastaurum á Sæbraut og í Breiðholti. Frá Vegagerðinni, sem heldur utan um ljósastaura við sto...
Kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á Hringbraut
📅 07.10.2026 👁️ 4
Kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á Hringbraut
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli við JL-húsið við enda Hringbrautar. Talsverður eldur kom upp og mikill reykur myndaðist í framhaldinu. Unnið er a...
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi
📅 07.10.2026 👁️ 4
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi í JL-húsinu við enda Hringbrautar. Talsverður eldur kom upp og mikill reykur myndaðist í framhaldinu...
Ræst út vegna logandi rafmagnshlaupahjóls - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ræst út vegna logandi rafmagnshlaupahjóls - Vísir
Að sögn varðstjóra slökkviliðs gekk vel að slökkva eldinn og hann hefur ekki breiðst út. Nú stendur reykræsting yfir. Slökkviliðið hafi verið ræst út ...
Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls - Vísir
Að sögn varðstjóra slökkviliðs gekk vel að slökkva eldinn og hann hefur ekki breiðst út. Nú stendur reykræsting yfir. Slökkviliðið hafi verið ræst út ...
Bilun í ljósastaurum víða um borgina
📅 07.10.2026 👁️ 4
Bilun í ljósastaurum víða um borgina
Bilun er í ljósastaurum víða um borgina. Vegagerðin segir að tilkynnt hafi verið um bilanir á Sæbraut og Miklubraut og að unnið sé að viðgerðum. Vegag...
Israelis mourn 7 October attack victims as Gaza lies in ruins three years on
📅 07.10.2026 👁️ 4
Israelis mourn 7 October attack victims as Gaza lies in ruins three years on
Memorial events have taken place in Israel on the third anniversary of the Hamas-led attack that sparked the devastating Gaza war.
Engin brottfararstöð í desember
📅 07.10.2026 👁️ 4
Engin brottfararstöð í desember
Ljóst er að opnun brottfararstöðvar fyrir útlendinga í Reykjanesbæ tefst um að minnsta kosti nokkra mánuði. Hana átti að opna eftir minna en tvo mánuð...
„Það er smá töffari í mér“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
„Það er smá töffari í mér“ - Vísir
Sigríður Margrét er fimmtíu ára gömul og sækir tískuinnblásturinn meðal annars til kvenna í kringum sig. Sömuleiðis er hún dugleg að lesa tískutímarit...
Serbar á Ís­landi mót­mæla: „Það er ósann­gjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Serbar á Ís­landi mót­mæla: „Það er ósann­gjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ - Vísir
„Við söfnuðum yfir 100 undirskriftum og fundum hentugt húsnæði í Reykjavík til að opna kjörstað fyrir komandi kosningar í Serbíu, eins og kosningalög ...
Watch: What we know about Christa Pike's 'shock' recovery
📅 07.10.2026 👁️ 3
Watch: What we know about Christa Pike's 'shock' recovery
The US death row inmate's legal team said at a press conference that she is now "conscious and speaking" after her failed execution.
Hannes segir þetta ástæðuna fyrir stuðningi við Hamas – „Hvaða þvæla er þetta eiginlega?“
📅 07.10.2026 👁️ 4
Hannes segir þetta ástæðuna fyrir stuðningi við Hamas – „Hvaða þvæla er þetta eiginlega?“
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, er harðlega gagnrýndur fyrir að segja að Hamas njóti stuðnings á Vesturlöndum þar...
„Þetta minnti okkur á upphaf stríðsins“
📅 07.10.2026 👁️ 4
„Þetta minnti okkur á upphaf stríðsins“
Í dag eru þrjú ár síðan Hamas-samtökin gerðu mannskæðustu hryðjuverkaárás á Ísrael í sögu landsins. Íbúar Gaza vöknuðu við árásir snemma morguns sem m...
Vilja framtíðarsýn í skólamálum og kalla eftir samtali
📅 07.10.2026 👁️ 4
Vilja framtíðarsýn í skólamálum og kalla eftir samtali
Kennarasamband Íslands kynnti í dag tillögur að stefnumótun til framtíðar í menntamálum, Blásum byr í seglin, og þau verkefni sem ráðast þarf í til að...
Loðinn rummungur fer ránshendi um Vesturbæinn
📅 07.10.2026 👁️ 4
Loðinn rummungur fer ránshendi um Vesturbæinn
Kötturinn Dreki fer ránshendi um Vesturbæinn í Reykjavík, tekur ýmislegt ófrjálsri hendi - en sinnir líka hreinsunarstörfum.„Hann er þjófóttur kisi. H...
Fangaði sólar­upp­rás á Mars - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Fangaði sólar­upp­rás á Mars - Vísir
Könnunarfarið Curiosity, sem er statt á yfirborði Mars, fangaði í ágúst sólarupprás á rauðu plánetunni svokölluðu. Það var þegar farið var notað til a...
Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni - Vísir
Högni Alvar Harðarson Önnuson er formaður Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, en hann útskýrir í samtali við Vísi að félagið bjóði um þessar...
Fraudster jailed over multi-million pound PPE scam
📅 07.10.2026 👁️ 4
Fraudster jailed over multi-million pound PPE scam
Craig Morris was sentenced to three years and nine months in prison at Northampton Crown Court.
Tug­milljóna gjald­þrot fé­lags fíkniefnasmyglara - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Tug­milljóna gjald­þrot fé­lags fíkniefnasmyglara - Vísir
Í auglýsingu í Lögbirtingablaði dagsins segir að félagið hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta þann 3. júní síðastliðinn og skiptum lokið þann 23. sep...
Fékk nóg eftir aldarfjórðung og vildi ekki leyfa nágrönnunum lengur að keyra yfir lóðina
📅 07.10.2026 👁️ 4
Fékk nóg eftir aldarfjórðung og vildi ekki leyfa nágrönnunum lengur að keyra yfir lóðina
Eigandi lóðar í frístundabyggð í Grímsnes- og Grafningshreppi hafði ekki erindi sem erfiði þegar hann kærði breytingu á deiliskipulag fyrir byggðina s...
Spanish pensioner whose eviction sparked nationwide protests dies, union says
📅 07.10.2026 👁️ 4
Spanish pensioner whose eviction sparked nationwide protests dies, union says
Maricarmen Abascal, 87, was forcibly removed on a stretcher from her apartment of more than 70 years in September.
Telur orð Seðlabankastjóra fullkomlega óábyrg
📅 07.10.2026 👁️ 4
Telur orð Seðlabankastjóra fullkomlega óábyrg
Fyrstu umræðu um áðurnefnd húsaleigulög ríkisstjórnarinnar, sem oft eru kölluð leigubremsa, var fram haldið á Alþingi í dag en stjórnarandstaðan vildi...
Man to face trial for attempted murder of British child in Alps park attack
📅 07.10.2026 👁️ 4
Man to face trial for attempted murder of British child in Alps park attack
Abdalmasih Hanoun, accused of carrying out an attack at a French park in 2023, is set to face trial.
Man charged with 13 attempted murders including British child
📅 07.10.2026 👁️ 4
Man charged with 13 attempted murders including British child
Abdalmasih Hanoun, accused of carrying out an attack at a French park in 2023, is set to face trial.