Einn var fluttur á slysadeild eftir tveggja bíla umferðaslys við Suðurlandsbraut fyrir skemmstu.
Að sögn Stefáns Más Kristinssonar, varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, voru einn sjúkrabíll og einn dælubíll sendir á vettvang.
Hann segir að nú sé verið að þrífa olíu af götunni á meðan beðið er eftir að bílarnir verði fjarlægðir.
Sá sem fluttur var á slysadeild er ekki alvarlega slasaður.