Héraðssaksóknari gaf í gær út ákæru á hendur fjórum mönnum í svokölluðu Dettifossmáli. Málið snýst um smygl á rúmum 14 lítrum af amfetamínbasa til landsins með Dettifossi, gámaskipi Eimskips.
Sex voru í fyrstu handteknir eftir að lögregla og tollgæsla fóru um borð í Dettifoss í Sundahöfn 6. apríl. Þremur var fljótlega sleppt en hinir þrír úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Sá fjórði var svo hnepptur í varðhald 24. apríl.
Amfetamínbasinn var 47-48% að styrkleika og miðað við það má áætla að úr vökvanum hefði mátt framleiða hátt í fimmtíu kíló af hreinu amfetamíni í duftformi. Ljóst er að götuvirði þess hefði numið hundruðum milljóna króna.
Tveir skipuleggjendur
Tveir hinna ákærðu voru starfsmenn Eimskips þegar smyglið kom upp. Þeir hafa báðir verið samstarfsfúsir við rannsóknina, að því er fram kom í gæsluvarðhaldsúrskurði í málinu, og segjast lítið sem ekkert hafa komið að skipulagningu smylgsins.
Hinir tveir eru sagðir hafa staðið að skipulagningunni. Annar þeirra er Sævar Örn Hilmarsson. Hann er 33 ára og hefur ítrekað komið við sögu lögreglu frá sextán ára aldri. Hann hefur mest hlotið eins árs fangelsisdóm þegar hann rauf skilorð með umferðarlagabrotum og minniháttar fíkniefna- og vopnalagabrotum fyrir rúmum áratug.
Alþingi veitti fjórða manninum ríkisborgararétt
Fjórði maðurinn og hinn skipuleggjandinn samkvæmt ákæru er Kastriot Pepaj, 54 ára, albanskur að uppruna. Hann fékk íslenskan ríkisborgararétt með lögum frá Alþingi í árslok 2015.
Mál hans vakti talsverða athygli – fjölmiðillinn Stundin fylgdist með því þegar Kastriot og fjölskylda hans voru sótt af lögreglu að næturlagi og þau flutt á Keflavíkurflugvöll, þaðan sem þeim var flogið til Albaníu ásamt annarri albanskri fjölskyldu. Kastriot sagðist þá hafa flúið heimalandið af ótta við glæpagengi sem hefði skotið hann í höndina.
Synir beggja hjóna glímdu við sjúkdóma en þeim var engu að síður neitað um dvalarleyfi af mannúðarástæðum. Brottflutningurinn vakti slík viðbrögð að Alþingi skarst í leikinn og veitti báðum fjölskyldum ríkisborgararétt níu dögum síðar. Fjölskyldurnar komu aftur til landsins 12. janúar 2016.
Vilja gera muni í eigu sambýliskonu upptæka
Nafn fimmtu manneskjunnar, sambýliskonu eins hinna ákærðu, er einnig að finna á ákæruskjalinu. Hún er þó ekki ákærð í málinu, heldur er gerð krafa um upptöku á alls kyns verðmætum í hennar eigu.
Mennirnir eru allir í gæsluvarðhaldi og hafa verið frá því í apríl. Tólf vikna frestur sem lögregla hefur til að halda mönnum í varðhaldi án útgáfu ákæru rann út í gær. Við það tilefni var ákæran gefin út og gæsluvarðhaldið framlengt. Ákæran hefur ekki verið birt neinum sakborninganna og ekki liggur fyrir hvenær málið verður þingfest fyrir héraðsdómi.