Ein­elti kvenna birtist oft með lúmskari hætti - Vísir

Ein­elti kvenna birtist oft með lúmskari hætti - Vísir

Ein­elti kvenna birtist oft með lúmskari hætti - Vísir

Í rannsókninni skoðaði Kristín reynslu fólks sem hafði orðið fyrir einelti á vinnustað þar sem gerandinn var kona, hvaða form eineltið tók, hvaða áhrif það hafði og hvernig vinnustaðir brugðust við.

Minna hefur verið fjallað um reynslu þolenda þegar gerandinn er kona, en rannsókn Kristínar bendir til þess að eineltið geti oft birst með lúmskum hætti; í stjórnsemi, niðurlægingu, útilokun, gaslýsingu og brotnu trausti.

Slegin yfir viðbrögðunum

Í samtali við Vísi segir Kristín að áhugi hennar á viðfangsefninu hafi meðal annars sprottið upp úr eigin starfsreynslu sem ráðgjafi fyrir þolendur ofbeldis.

„Hugmyndin kom eftir að ég átti gott spjall við Thelmu Ásdísardóttur vinkonu mína. Ég þekkti vel til starfs Drekaslóðar, sat í stjórn samtakanna í tíu ár og kom þar líka að ráðgjöf. Þegar kom að því að velja viðfangsefni fyrir meistararannsóknina átti ég dálítið erfitt með að velja hvað ég vildi gera þar sem ég hef mikinn áhuga á þessum málaflokki. Ég ákvað þess vegna að taka gott spjall við Thelmu yfir kaffibolla og kroppa í heilann á henni, hvort hún hefði einhverjar hugmyndir fyrir mig.“

Í tengslum við ransóknina ræddi Kristín við tíu einstaklinga sem öll áttu þa sameiginlegt að hafa upplifað einelti á vinnustað þar sem gerandinn var kona.Aðsend

Í því samtali hafi Thelma sagt henni að á þeim tíu árum sem Drekaslóð var starfandi hefðu um sextíu mál komið inn á borð til hennar þar sem einstaklingur varð fyrir einelti á vinnustað.

„Í öllum tilfellum nema einu var kona gerandi. Mér fannst það strax mjög áhugavert og fór að velta því fyrir mér hvers vegna það væri svona miklu algengara að konur væru gerendur.“

Kristín auglýsti eftir viðmælendum fyrir rannsóknina á Facebook-síðu sinni. Fimm dögum síðar voru fimmtán einstaklingar búnir að hafa samband.

„Það var ótrúlega áhugavert, og eiginlega sjokkerandi og grátlegt, hversu fljótt ég fékk viðmælendur fyrir rannsóknina. En þetta segir okkur auðvitað að þetta er bara mun algengara en við gerum okkur grein fyrir.“

Hún leggur áherslu á að rannsóknin hafi ekki snúist um að bera saman konur og karla sem gerendur, heldur að skoða upplifun einstaklinga sem höfðu orðið fyrir einelti þar sem gerandinn var kona.

Kristín segir það hafa verið átakanlegt að heyra hversu mikil áhrif eineltið hafði á líf þátttakenda, langt út fyrir vinnustaðinn.

„Þetta fór að hafa mikil áhrif á daglegt líf hjá flestum þeirra, til dæmis á fjölskyldulíf og á traust gagnvart nýjum kvenkynsyfirmönnum. En það sem stendur kannski mest upp úr er klárlega það traust sem mér var gefið. Að heyra þessar frásagnir fólksins og hversu djúpt þetta greinilega ristir fyrir marga.“

Henni kom einnig á óvart hversu illa var tekið á eineltinu á mörgum vinnustöðum.

„Oft var ekkert gert þegar einstaklingur tilkynnti, verkferlar voru ekki til staðar eða ekki unnið eftir þeim, þolanda var stundum einfaldlega ekki trúað og þetta var allt til þess að þolandinn hætti í starfi. Það vantar alveg klárlega á mörgum vinnustöðum að það sé unnið mun betur með einelti  og þolandinn fái viðeigandi aðstoð með að vinna úr ofbeldinu.“

Stjórnsemi, gaslýsing og niðurlæging

Kristín ræddi við tíu manns í tengslum við rannsóknina, níu konur og einn karlmann, á aldrinum 34 til 61 árs. Þau áttu það öll sameiginlegt að hafa upplifað einelti á vinnustað þar sem gerandi var kona og að hafa þurft að yfirgefa vinnustaðinn í kjölfarið.

Í flestum tilvikum voru gerendur í yfirmanna- eða stjórnunarstöðu en í þremur tilvikum voru þær samstarfskonur þátttakenda.

Þátttakendur lýstu því að eineltið hefði oft byrjað með lúmskri gagnrýni, vanvirðingu eða útilokun sem smám saman gróf undan faglegri stöðu þeirra. Í mörgum tilvikum gátu gerendur, vegna stöðu sinnar innan vinnustaðarins, haft áhrif á verkefni, upplýsingaflæði, trúverðugleika og stöðu þátttakenda gagnvart öðru starfsfólki.

Samskiptin einkenndust af niðurlægingu, stjórnsemi, brotnu trausti og skorti á stuðningi. Margir lýstu því að talað hefði verið niður til þeirra eða störf þeirra gagnrýnd á niðrandi hátt, bæði í einkasamtölum og fyrir framan samstarfsfólk.

„Svona niðurlæging, fyrir framan líka alla samstarfsmenn. Bara um leið og hún labbaði inn, þá sáu þær á svipnum á henni hvernig hún horfði á mig.“

Í nokkrum tilvikum var hegðunin lúmsk og birtist í síendurteknum athugasemdum, svipbrigðum eða tónfalli sem gaf til kynna fyrirlitningu eða vanmat. Þessi framkoma gerði það að verkum að þátttakendur áttu erfitt með að skilgreina hana strax sem einelti.

„Ég upplifði þetta ekkert strax endilega sem ofbeldi eða einelti. Ég bara skildi ekki alveg hvað þetta var.“

Sumir lýstu því að þeir hefðu verið útilokaðir frá samskiptum, ákvörðunum eða upplýsingum sem skiptu máli fyrir starf þeirra.

„Ég upplifði það að það væri verið að sneiða fram hjá mér. Og ég var ekki tekin með. Svona ákveðin útskúfun og ég var að upplifa höfnun.“

Þátttakendur lýstu því að þessi stöðuga vanvirðing hefði grafið undan sjálfsmynd þeirra sem fagfólks og skapað óöryggi í starfi. Ein úr hópnum sagði geranda sinn hafa gefið í skyn, í viðurvist annarra, að hún bæri ábyrgð á trúnaðarbresti á vinnustaðnum.

„Ef það var starfsmannafundur og það var trúnaðarbrestur einhvers staðar, ekki frá mér, heldur frá einhverjum öðrum, þá horfði hún alltaf í augun á mér. Og það voru fleiri sem tóku eftir því. Og ég var spurð stundum eftir á: „Varst það þú? Hún horfði svo mikið á þig.“

Aðrir sögðu að þeim hefði ekki lengur verið treyst fyrir verkefnum sem þeir höfðu áður sinnt eða að þeim hefði verið haldið utan við upplýsingar sem voru nauðsynlegar til að sinna starfinu.

„Það var reynt að gera hluti þannig að ég missti af upplýsingum eða gat ekki gert hlutinn. Þetta var rosa skrýtið. Það var bara verið að hunsa mig, oft var mér ekki leyft að fylgjast með eða vera með.“

Stjórnsemi var einnig áberandi í frásögnum þátttakenda. Hún birtist meðal annars í því að gerendur stjórnuðu verkefnum, vinnutíma eða aðgengi að tækifærum án skýringa eða í ósamræmi við venjur. Ein úr hópnum rifjaði upp að hafa fengið að heyra frá yfirmanni sínum:

„Ef þér líkar ekki hvernig ég stýri hlutum þá bara getur þú leitað þér að annarri vinnu.“

Stöðugt með hnút í maganum

Eineltið hafði djúpstæð áhrif á líðan þátttakenda, sjálfsmynd og daglegt líf. Þeir lýstu kvíða, streitu, svefnleysi, orkuleysi, skertu sjálfstrausti og líkamlegum einkennum sem fylgdu þeim bæði í vinnu og heima.

Áhrifin náðu í mörgum tilvikum langt út fyrir vinnustaðinn.

„Ég var bara svona skugginn af sjálfri mér.“

Sumir þátttakendur lýstu stöðugum eða endurteknum kvíða í tengslum við vinnudaginn. Einn þátttakandi sagði ástandið hafa haft bein áhrif á svefn, heilsu og daglega virkni.

„Ég svaf ekki þegar þetta var í gangi og ég fékk svefntöflur hjá lækni, bara til þess að sofa. Ég var með bauga hingað og grá í framan og drakk áfengi og ég var bara vakandi og ég veit ekki hvernig ég fúnkeraði.“

Í sumum tilvikum leiddu einkennin til þess að þátttakendur leituðu sér aðstoðar, til dæmis hjá læknum eða öðrum fagaðilum, eða þurftu að taka sér hlé frá vinnu. Ein úr hópnum lýsti því að reynslan hefði haft varanleg áhrif á heilsu hennar.

„Í dag er ég með almenna kvíðaröskun og ég er komin með vefjagigt, slæma vefjagigt.“

Þátttakendur lýstu einnig hvernig eineltið hafði áhrif á sjálfsmynd þeirra og trú á eigin hæfni. Sumir tóku gagnrýni og framkomu annarra inn á sig og fóru að líta á hana sem staðfestingu á eigin vanhæfni.

„Mér leið þannig. Af því ég var svo ófagleg og stóð mig svo ógeðslega illa.“

Fleiri sögðust hafa óttast að þau væru ekki hæf til að sinna starfi sínu annars staðar eða að reynslan myndi fylgja þeim áfram á vinnumarkaði.

„Maður trúir því bara að maður sé ömurlegur starfsmaður, að maður fái ekkert vinnu einhvers staðar annars staðar.“

Álagið hafði einnig áhrif á heimilislíf og nánustu sambönd. Margir lýstu því að þeir hefðu verið orkulausir eftir vinnudaginn og átt erfitt með að sinna fjölskyldu, heimili eða félagslegum samskiptum.

„Ég hafði bara ekki orku í meira. Ég kom heim og bara sofnaði í sófanum. Ég gat ekki sinnt fjölskyldunni.“

Í sumum tilvikum einangruðu þátttakendur sig félagslega, annað hvort vegna orkuleysis eða vegna þess að þeir höfðu ekki bolmagn til að eiga samskipti við aðra. Aðrir sögðu álagið hafa skapað spennu innan heimilisins og bitnað á maka og börnum.

„Þetta var farið að bitna á barninu mínu, þetta var farið að bitna á manninum mínum.“

Kerfisbundnar hindranir og skortur á stuðningi

Þátttakendur lýstu því að viðbrögð stjórnenda hefðu í mörgum tilvikum verið takmörkuð, óljós eða ófullnægjandi. Margir sögðu erfitt að fá eineltið viðurkennt og að ekki væri ljóst hvert ætti að leita eða hvaða ferli færi af stað þegar kvörtun var lögð fram.

Upplifun þeirra var sú að málum væri ekki alltaf fylgt eftir með skýrum hætti og að stuðning skorti innan vinnustaðarins. Í sumum tilvikum töldu þátttakendur að ekki hefði verið hlustað á þá þegar þeir reyndu að segja frá.

„Ég var alveg búin að láta vita að mér fyndist þetta vera einelti. En mér fannst enginn vera að hlusta.“

Í frásögnum kom einnig fram að sumir upplifðu að athyglinni væri beint að þeim sjálfum í stað þess að brugðist væri við hegðun gerandans. Ein úr hópnum sagðist hafa fengið þau viðbrögð að hún ætti að fara í veikindaleyfi þar sem vandamálið væri talið liggja hjá henni.

„Þú ert farin að sjá rautt í hverju horni, viltu ekki bara fara í veikindaleyfi?“

Þátttakendur lýstu því að skortur væri á skýrum verkferlum og eftirfylgni. Kvartanir hefðu sjaldan leitt til sýnilegra viðbragða eða aðgerða og margir upplifðu að mál væru tekin á móti án þess að nokkuð breyttist.

„Það virðist aldrei neitt vera hægt að koma neinu til leiðar eða segja fólki til. Og stoppa fólk af. Það er alltaf einhver fyrirstaða. Einhver hræðsla við að „feisa“ stjórnendur og segja þeim bara: „Heyrðu nú verður þú bara að stoppa þessa vitleysu.“

Kristín segir þetta sýna hversu mikilvægt það sé að vinnustaðir hafi skýrar leiðir til að bregðast við einelti og tryggi að þolendur fái stuðning.

Mikilvægt að hlusta á reynslu þolenda

Í niðurstöðum rannsóknarinnar kemur fram að einelti á vinnustað þar sem gerandi er kona birtist oft sem stigvaxandi og dulið ferli. Það geti þróast frá lúmskri vanvirðingu yfir í kerfisbundna útilokun, niðurlægingu, gaslýsingu og valdanotkun.

Slíkar birtingarmyndir geti verið erfiðar að greina og bregðast við, ekki síst þegar þær birtast í félagslegum samskiptum, svipbrigðum, tónfalli, upplýsingaskorti eða stöðugri jaðarsetningu innan vinnustaðarins.

„Hefðbundnar skilgreiningar og viðbragðsleiðir ná því ekki alltaf að fanga allar birtingarmyndir eineltis, sem undirstrikar þörfina fyrir aukinn skilning á fjölbreyttum birtingarmyndum þess og tengslum þeirra við samskipti, vald og vinnustaðamenningu.“

Niðurstöðurnar undirstrika jafnframt að einelti sé ekki aðeins einstaklingsbundið vandamál milli tveggja einstaklinga, heldur geti það orðið hluti af menningu og skipulagi vinnustaðar ef ekki er brugðist við.

„Þegar skortur er á skýrum verkferlum og viðbrögðum eykst hættan á að einelti viðhaldist og festist í sessi. Þetta bendir til þess að einelti sé ekki einungis einstaklingsbundið vandamál heldur einnig skipulagslegt viðfangsefni sem krefst markvissra og ábyrgra viðbragða af hálfu vinnustaða.“

Kristín telur niðurstöðurnar benda til þess að þörf sé á frekari rannsóknum á einelti á vinnustað þar sem konur eru gerendur, enda hafi það fengið tiltölulega litla athygli í fyrri rannsóknum.

Að lokum segir hún mikilvægt að hlusta á reynslu þeirra sem verða fyrir einelti og taka hana alvarlega.

„Með því að byggja á slíkri reynslu er hægt að þróa skilvirkari leiðir til að greina einelti á frumstigi, bregðast við því með faglegum hætti og stuðla að heilbrigðara og öruggara vinnuumhverfi.“

#birtist #einelti #kvenna #með #oft


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262905436d/einelti-kvenna-birtist-oft-med-lumskari-haetti

📰 Aðrar fréttir

AI chip boom pushes Samsung profits to record $80bn
📅 08.10.2026 👁️ 0
AI chip boom pushes Samsung profits to record $80bn
The tech giant is also expected to get a boost from its latest folding devices that were launched in August.
Þrjú látin eftir árásir Húta á tvo flugvelli í Sádi-Arabíu
📅 08.10.2026 👁️ 2
Þrjú látin eftir árásir Húta á tvo flugvelli í Sádi-Arabíu
Yfirvöld í Sádí-Arabíu segja að þrír óbreyttir borgarar hafi verið drepin og að 36 hafi særst í árásum á tvo alþjóðaflugvelli sem Hútar hafa lýst ábyr...
Virðist ekki muna eftir aftökunni
📅 08.10.2026 👁️ 2
Virðist ekki muna eftir aftökunni
Lögmaður Christu Pike segir að legið hafi við því að hún yrði tekin úr öndunarvél eftir að hún var lögð inn á spítala og áður en hún komst til meðvitu...
Kaldrifjað morð í Kentucky – Ólétt kona fannst látin og fóstrið skorið úr henni
📅 08.10.2026 👁️ 2
Kaldrifjað morð í Kentucky – Ólétt kona fannst látin og fóstrið skorið úr henni
Ólétt kona á fimmtugsaldri fannst látin á heimili sínu í Kentucky. Hafði kviður hennar verið ristur upp og fóstrið fjarlægt úr legi hennar.Breska blað...
Vestnorrænir leiðtogar funduðu í fyrsta sinn
📅 07.10.2026 👁️ 2
Vestnorrænir leiðtogar funduðu í fyrsta sinn
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra fundaði í dag með leiðtogum Færeyja og Grænlands sem eru staddir hér á landi á fyrsta fundi oddvita vestnorrænu...
Eritrea skiptir um lið og sendir her­menn inn í Tigray - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Eritrea skiptir um lið og sendir her­menn inn í Tigray - Vísir
Leiðtogar Frelsisfylkingarinnar lýstu því yfir í síðasta mánuði að þeir hefðu gert bandalag við aðrar fylkingar í Eþíópíu og saman ætluðu þessar fylki...
VR hyggst segja upp kjarasamningum á morgun
📅 07.10.2026 👁️ 2
VR hyggst segja upp kjarasamningum á morgun
Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir að kjarasamningum félagsins verði sagt upp á morgun að öllu óbreyttu. Stjórn VR kom saman síðdegis í dag og lauk...
We spent thousands on a Tui river cruise but ended up on coach trips
📅 07.10.2026 👁️ 2
We spent thousands on a Tui river cruise but ended up on coach trips
Passengers have described their anger after their itineraries changed to involve hours spent on coach trips instead.
Burnham and Merz to hold security talks in Berlin
📅 07.10.2026 👁️ 2
Burnham and Merz to hold security talks in Berlin
Downing Street said deeper co-operation in the face of rising hybrid threats from Russia would be high on the agenda during Burnham's first official v...
Bank of England reveals the four animals to feature on banknotes
📅 07.10.2026 👁️ 2
Bank of England reveals the four animals to feature on banknotes
The decision comes after nearly half a million people cast their votes from a shortlist of 18 creatures.
„Kannski eru þau að niðurlægja okkur öll og grafa undan sjálfri menningunni“
📅 07.10.2026 👁️ 3
„Kannski eru þau að niðurlægja okkur öll og grafa undan sjálfri menningunni“
Ekki myndu allir sætta sig við 10 þúsund krónur í laun fyrir einn og hálfan vinnudag. Þetta þurfa þó þeir pistlahöfundar sem taka þátt í Uppástandi á ...
Samþykktu einróma að slíta kjarasamningum á morgun
📅 07.10.2026 👁️ 3
Samþykktu einróma að slíta kjarasamningum á morgun
Stjórn VR samþykkti einróma í kvöld að slíta kjarasamningum á morgun. Frá þessu greinir Vísir.Halla Gunnarsdóttir formaður VR segist ekki skynja vilja...
Segir orð sín um „heimskulegt“ frumvarp hafa verið tekin úr samhengi
📅 07.10.2026 👁️ 3
Segir orð sín um „heimskulegt“ frumvarp hafa verið tekin úr samhengi
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir ummæli sín um frumvarp stjórnvalda um leiguvernd hafa verið tekin úr samhengi að einhverju leyti.Ásgeir sagði í ...
Former Venezuelan President Nicolás Maduro expected to face more charges this week
📅 07.10.2026 👁️ 3
Former Venezuelan President Nicolás Maduro expected to face more charges this week
The new charges are expected to accuse Maduro and his wife of playing a role in the torture of Americans in Venezuelan prisons, US media reports.
Byggðaráð vill ekki breyta Valaskjálf í bæjarskrifstofur
📅 07.10.2026 👁️ 3
Byggðaráð vill ekki breyta Valaskjálf í bæjarskrifstofur
Byggðarráð í Múlaþingi hefur mælt gegn því að sveitarfélagið kaupi Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum undir bæjarskrifstofur. Íbúar hafa undanfarið lýst ó...
Sam­þykktu að slíta kjara­samningum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Sam­þykktu að slíta kjara­samningum - Vísir
„Ég var með fund í stjórn VR þar sem var einróma samþykkt að slíta kjarasamningum á morgun,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR í samtali við Vísi....
Niður­rif hafið á Laugasól - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Niður­rif hafið á Laugasól - Vísir
Samkvæmt svörum frá Reykjavíkurborg er unnið að gerð deiliskipulags á grundvelli hönnunarforsendna fyrir nýjan leikskóla. Ekki liggi þó enn fyrir enda...
Drap Christian Zedig með einu hnefahöggi – dæmdur í aðeins eins árs fangelsi
📅 07.10.2026 👁️ 4
Drap Christian Zedig með einu hnefahöggi – dæmdur í aðeins eins árs fangelsi
Nkumba Ludovic Tshiembe, 31 árs, hefur verið dæmdur í eins árs fangelsi fyrir árásina á sænska lögreglumanninn og tveggja barna föðurinn Christian Zed...
Ummæli Trump um árásir á tvær bandarískar borgir sögð landráð - Hvíta húsið segir viðbrögðin bjánaleg
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ummæli Trump um árásir á tvær bandarískar borgir sögð landráð - Hvíta húsið segir viðbrögðin bjánaleg
Ummæli Donald Trump Bandaríkjaforseta um árásir Írans á tvær borgir í Kaliforníu hafa vakið hörð viðbrögð og þá sérstaklega hjá pólitískum andstæðingu...
Christa Pike 'angry and confused' after failed execution, lawyers say
📅 07.10.2026 👁️ 4
Christa Pike 'angry and confused' after failed execution, lawyers say
Lawyers say the convicted killer was surprised to have survived and remained "shackled" to her hospital bed.
Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ - Vísir
„Þá mátt ekki sýna forsetaembættinu vanvirðingu,“ sagði Trump við blaðamenn í Hvíta húsinu í dag. Forsetinn var spurður út í ummæli hans um að ef Demó...
Gervigreind mun bæði útrýma og skapa milljónir starfa
📅 07.10.2026 👁️ 4
Gervigreind mun bæði útrýma og skapa milljónir starfa
Erik Brynjolfsson er einn kunnasti hagfræðingur Bandaríkjanna þegar kemur að mati á efnahags- og félagslegum áhrifum gervigreindar á vinnumarkað. Hann...
Fangelsi undir Vatna­jökli - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Fangelsi undir Vatna­jökli - Vísir
Nýi leikvangurinn var gefinn út í gær, þriðjudag, samhliða uppfærslu á leiknum þar sem nýtt efni var kynnt til leiks. Overwatch er fjölspilunarleikur ...
„Von­brigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
„Von­brigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ - Vísir
„Það eru auðvitað vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk,“ segir Jens-Frederik Nielsen, formaður grænlensku landstjórnarinnar, í samta...
Hvað eiga danskir tómatar og íslensk svefntækni sameiginlegt?
📅 07.10.2026 👁️ 4
Hvað eiga danskir tómatar og íslensk svefntækni sameiginlegt?
Þróun gervigreindarlíkana fleygir fram á ógnarhraða. Árið 2023 töldu tæplega 3.000 sérfræðingar að það gæti tekið allt að 27 ár fyrir gervigreind að l...
Ógnarástand um borð í flugi Icelandair þegar æði rann á íslenskan taugasálfræðing
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ógnarástand um borð í flugi Icelandair þegar æði rann á íslenskan taugasálfræðing
Maður sem ákærður hefur verið fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn lögum um loftferðir um borð í flugi Icelandair á leið frá Baltimore í Bandaríkjunum...
Ljósa­staurar bilaðir víða í Reykja­vík - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ljósa­staurar bilaðir víða í Reykja­vík - Vísir
Meðal annars hafa borist ábendingar um að slökkt sé á ljósastaurum á Sæbraut og í Breiðholti. Frá Vegagerðinni, sem heldur utan um ljósastaura við sto...
Kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á Hringbraut
📅 07.10.2026 👁️ 4
Kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á Hringbraut
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli við JL-húsið við enda Hringbrautar. Talsverður eldur kom upp og mikill reykur myndaðist í framhaldinu. Unnið er a...
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi
📅 07.10.2026 👁️ 4
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi í JL-húsinu við enda Hringbrautar. Talsverður eldur kom upp og mikill reykur myndaðist í framhaldinu...
Ræst út vegna logandi rafmagnshlaupahjóls - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ræst út vegna logandi rafmagnshlaupahjóls - Vísir
Að sögn varðstjóra slökkviliðs gekk vel að slökkva eldinn og hann hefur ekki breiðst út. Nú stendur reykræsting yfir. Slökkviliðið hafi verið ræst út ...
Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls - Vísir
Að sögn varðstjóra slökkviliðs gekk vel að slökkva eldinn og hann hefur ekki breiðst út. Nú stendur reykræsting yfir. Slökkviliðið hafi verið ræst út ...
Bilun í ljósastaurum víða um borgina
📅 07.10.2026 👁️ 4
Bilun í ljósastaurum víða um borgina
Bilun er í ljósastaurum víða um borgina. Vegagerðin segir að tilkynnt hafi verið um bilanir á Sæbraut og Miklubraut og að unnið sé að viðgerðum. Vegag...
Israelis mourn 7 October attack victims as Gaza lies in ruins three years on
📅 07.10.2026 👁️ 4
Israelis mourn 7 October attack victims as Gaza lies in ruins three years on
Memorial events have taken place in Israel on the third anniversary of the Hamas-led attack that sparked the devastating Gaza war.
Engin brottfararstöð í desember
📅 07.10.2026 👁️ 4
Engin brottfararstöð í desember
Ljóst er að opnun brottfararstöðvar fyrir útlendinga í Reykjanesbæ tefst um að minnsta kosti nokkra mánuði. Hana átti að opna eftir minna en tvo mánuð...
„Það er smá töffari í mér“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
„Það er smá töffari í mér“ - Vísir
Sigríður Margrét er fimmtíu ára gömul og sækir tískuinnblásturinn meðal annars til kvenna í kringum sig. Sömuleiðis er hún dugleg að lesa tískutímarit...
Serbar á Ís­landi mót­mæla: „Það er ósann­gjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Serbar á Ís­landi mót­mæla: „Það er ósann­gjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ - Vísir
„Við söfnuðum yfir 100 undirskriftum og fundum hentugt húsnæði í Reykjavík til að opna kjörstað fyrir komandi kosningar í Serbíu, eins og kosningalög ...
Watch: What we know about Christa Pike's 'shock' recovery
📅 07.10.2026 👁️ 2
Watch: What we know about Christa Pike's 'shock' recovery
The US death row inmate's legal team said at a press conference that she is now "conscious and speaking" after her failed execution.
Hannes segir þetta ástæðuna fyrir stuðningi við Hamas – „Hvaða þvæla er þetta eiginlega?“
📅 07.10.2026 👁️ 4
Hannes segir þetta ástæðuna fyrir stuðningi við Hamas – „Hvaða þvæla er þetta eiginlega?“
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, er harðlega gagnrýndur fyrir að segja að Hamas njóti stuðnings á Vesturlöndum þar...
„Þetta minnti okkur á upphaf stríðsins“
📅 07.10.2026 👁️ 4
„Þetta minnti okkur á upphaf stríðsins“
Í dag eru þrjú ár síðan Hamas-samtökin gerðu mannskæðustu hryðjuverkaárás á Ísrael í sögu landsins. Íbúar Gaza vöknuðu við árásir snemma morguns sem m...
Vilja framtíðarsýn í skólamálum og kalla eftir samtali
📅 07.10.2026 👁️ 4
Vilja framtíðarsýn í skólamálum og kalla eftir samtali
Kennarasamband Íslands kynnti í dag tillögur að stefnumótun til framtíðar í menntamálum, Blásum byr í seglin, og þau verkefni sem ráðast þarf í til að...
Loðinn rummungur fer ránshendi um Vesturbæinn
📅 07.10.2026 👁️ 4
Loðinn rummungur fer ránshendi um Vesturbæinn
Kötturinn Dreki fer ránshendi um Vesturbæinn í Reykjavík, tekur ýmislegt ófrjálsri hendi - en sinnir líka hreinsunarstörfum.„Hann er þjófóttur kisi. H...
Fangaði sólar­upp­rás á Mars - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Fangaði sólar­upp­rás á Mars - Vísir
Könnunarfarið Curiosity, sem er statt á yfirborði Mars, fangaði í ágúst sólarupprás á rauðu plánetunni svokölluðu. Það var þegar farið var notað til a...
Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni - Vísir
Högni Alvar Harðarson Önnuson er formaður Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, en hann útskýrir í samtali við Vísi að félagið bjóði um þessar...
Fraudster jailed over multi-million pound PPE scam
📅 07.10.2026 👁️ 4
Fraudster jailed over multi-million pound PPE scam
Craig Morris was sentenced to three years and nine months in prison at Northampton Crown Court.
Tug­milljóna gjald­þrot fé­lags fíkniefnasmyglara - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Tug­milljóna gjald­þrot fé­lags fíkniefnasmyglara - Vísir
Í auglýsingu í Lögbirtingablaði dagsins segir að félagið hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta þann 3. júní síðastliðinn og skiptum lokið þann 23. sep...
Fékk nóg eftir aldarfjórðung og vildi ekki leyfa nágrönnunum lengur að keyra yfir lóðina
📅 07.10.2026 👁️ 4
Fékk nóg eftir aldarfjórðung og vildi ekki leyfa nágrönnunum lengur að keyra yfir lóðina
Eigandi lóðar í frístundabyggð í Grímsnes- og Grafningshreppi hafði ekki erindi sem erfiði þegar hann kærði breytingu á deiliskipulag fyrir byggðina s...
Spanish pensioner whose eviction sparked nationwide protests dies, union says
📅 07.10.2026 👁️ 4
Spanish pensioner whose eviction sparked nationwide protests dies, union says
Maricarmen Abascal, 87, was forcibly removed on a stretcher from her apartment of more than 70 years in September.
Telur orð Seðlabankastjóra fullkomlega óábyrg
📅 07.10.2026 👁️ 4
Telur orð Seðlabankastjóra fullkomlega óábyrg
Fyrstu umræðu um áðurnefnd húsaleigulög ríkisstjórnarinnar, sem oft eru kölluð leigubremsa, var fram haldið á Alþingi í dag en stjórnarandstaðan vildi...
Man to face trial for attempted murder of British child in Alps park attack
📅 07.10.2026 👁️ 4
Man to face trial for attempted murder of British child in Alps park attack
Abdalmasih Hanoun, accused of carrying out an attack at a French park in 2023, is set to face trial.
Man charged with 13 attempted murders including British child
📅 07.10.2026 👁️ 4
Man charged with 13 attempted murders including British child
Abdalmasih Hanoun, accused of carrying out an attack at a French park in 2023, is set to face trial.